10.01.1952
Efri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (2970)

93. mál, skattfrelsi sparifjár

Þorsteinn Þorsteinsson:

Herra forseti. Það var fyrir jól, sem þetta frv. var athugað hjá n., og ég er næstum búinn að gleyma, hvaða atriði það voru, sem ég var ekki ánægður með, en það voru þar nokkur atriði, sem ég vildi hafa öðruvísi, en ég er ekki tilbúinn að koma fram með brtt. um þau nú, en mun hins vegar leggja þær fram við 3. umr. málsins.

Ég hef alla tíð verið því meðmæltur að hækka sem mest í sparisjóðsskúffunum og hef verið því mjög fylgjandi, að sem flestir af þegnum landsins legðu fyrir sig sparnað, því að það hefur staðið mest undir okkar framkvæmdum hingað til, að til hefur verið fólk, sem hefur haft til að bera bæði hyggindi og vilja til að leggja fé sitt á vöxtu, sem síðan hefur verið lánað út í athafnalífið. Aftur á móti ber tillit að taka til þess, að margt af þessu fólki, sem þannig hefur ávaxtað fjármuni sína, hefur ekki lagt það inn á þá pósta, sem hér er um að ræða. Og enn fremur er margt af þessu fólki gamalt fólk, sem ekki er líklegt til að átta sig strax á, hvað um er að vera, og getur þess vegna orðið útundan með að njóta þeirra hlunninda, sem hér er um að ræða. Það er óvíst, að það hafi allt framtakssemi til að setja fé þannig inn í sparisjóði, að það sé ekki uppsegjanlegt nema með 6 mánaða fyrirvara. Þetta finnst mér ekki sanngjarnt. Mér finnst rétt, að þessu fólki sé gert það kleift ekki síður en öðrum að njóta þeirra hlunninda, sem um er að ræða, þó að það sé kannske ekki nógu fljótt að átta sig á, hvað er að gerast. — Mér hafði dottið í hug að bera fram brtt. um þetta atriði. Ég hef þá till. að vísu ekki tilbúna enn þá, en mér hafði dottið í hug, að hún gæti verið eitthvað á þá leið, að það sparifé, sem staðið hefur inni í 6 mánuði áður en fyrsta skattframtal fer fram eftir að lög þessi öðlast gildi, skuli vera skattfrjálst í það skipti. Þannig hafði mér dottið í hug, að þetta gæti orðið, og ég þykist vita, að n. muni ekki verða á móti því, að þetta fólk verði látið njóta sömu hlunninda og aðrir, sem fé eiga inni á vöxtum. — Þessa vildi ég geta nú við þessa umr., en þessar brtt. mínar eru ekki tilbúnar, en ég mun hafa þær til áður en 3. umr. fer fram.