10.01.1952
Efri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 381 í C-deild Alþingistíðinda. (2971)
93. mál, skattfrelsi sparifjár
Frsm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil endurtaka það, sem ég sagði við upphaf þessarar umr., að fjhn. hefur ákveðið að taka til endurskoðunar 2.–3. gr. frv., og mun hún taka til yfirvegunar og hafa til hliðsjónar þær ábendingar, sem fram hafa komið.
Hv. 1. þm. N-M. (PZ) vakti máls á því, hvort hér væri átt við álagningu útsvars. Ég skal lýsa því yfir, að það vakti ekki fyrir mér, og er aðalástæðan sú, að sveitarfélögin kvarta nú mikið undan tekjuskorti og hafa snúið sér til Alþ. í því efni, en þær málaleitanir hafa ekki fengið jákvæð svör, og ég teldi það of harkalegt að taka þennan tekjustofn af sveitarfélögum, vitandi þó það, að útsvarið er oft þyngri skattur en tekju- og eignarskatturinn, sem greiddur er til ríkisins. Í öðru lagi er tillit til þess að taka. að sveitarfélög hafa oft ívilnað sparifjáreigendum að þessu leyti, þar sem þeir eiga við óréttlæti að búa, miðað við aðrar eignir, sem til greina koma í því sambandi: — Í þriðja lagi er þess að gæta, að útsvör eru yfirleitt lögð á eftir efnum og ástæðum, og er því sveitarfélögum í sjálfsvald sett, hvaða hátt þau hafa á um útsvarsálagningu. En hitt skal athugað rækilega, hvort það er nógu skýrt fram tekið, að hér er ekki átt við útsvarsálagningu, og verður það athugað ásamt öðrum þeim ábendingum, sem fram hafa komið.