07.12.1951
Neðri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 84 í B-deild Alþingistíðinda. (299)
59. mál, tollskrá
Frsm. meiri hl. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Frv. það, sem er 59. mál Ed. og hér er tekið til meðferðar, er framlenging á ákvæðum laga nr. 106 frá 1950, um bráðabirgðabreytingu á lögum frá 1939, um tollskrá o.fl. Þó er sú breyting gerð á l. frá 1950, að 4. gr. er ekki tekin upp í frv. En í þeirri grein var ákvæði um, að ekki væri heimilt að hækka álag á vörur vegna tollahækkana samkvæmt þeim lögum. Nú er vitað, að verðlagseftirlit á flestum þeim vörum, sem hér greinir, hefur fallið niður, og þykir því ekki ástæða til að halda þessu ákvæði varðandi þessar vörur, sem eru háðar verðlagseftirliti, enda er það á valdi fjárhagsráðs að hafa hemil á álagningunni, eftir því sem ástæða þykir til. — Fjhn. hefur tekið frv. til athugunar á fundi sínum 3. þ. m, Hefur meiri hl. mælt með því, að frv. verði samþ., en minni hl., hv. 2. þm. Reykv., er því andvígur.