29.11.1951
Efri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 405 í C-deild Alþingistíðinda. (3006)

130. mál, orkuver og orkuveitur

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Herra forseti. Það er eins með þetta mál og önnur, sem snerta raforkumálin, að það ber þess vott, að kröfurnar um, að hraðað verði framkvæmdum í að byggja ný orkuver og orkuveitur, koma víða að og eru ríkar hjá þjóðinni. Það, sem ég vildi segja í þessu máli, er það, að auðvitað skiptir engu meginmáli í þessu sambandi, hvort þessar veitur eru samþ. nú eða síðar, heldur hitt, hvort peningar fást til framkvæmdanna. Það kom fram í umr., og það þarf að koma ljósar fram hér á Alþ., að fjárveitingin til þessara framkvæmda er svo lág, að vonlaust er, að þeim geti miðað áfram með þeim hraða, sem þjóðin gerir sér vonir um. Það má geta þess hér, að ef gert er ráð fyrir, að raforkumálasjóður fái þá 1½ millj., sem ríkissjóður skuldar honum, og ef gert er ráð fyrir, að fjárveiting verði 1.35 millj., og sé enn fremur tekið 1½ millj. kr. lán á árunum 1952 og 1953, — ef allt þetta fjármagn fæst, verði hægt að ljúka þeim framkvæmdum, sem nú eru í smíðum, og engu nýju. Ég sé ekki ástæðu til og býst ekki við, að þm. kæri sig um, að ég lesi upp skrá yfir þær framkvæmdir, sem nú er verið að vinna að. En þannig stendur þetta, og til þess að þm. geti gert sér grein fyrir, hvað þessar framkvæmdir kosta, má geta þess, að Aðaldalsveitan í Þingeyjarsýslu kostar 900 þús. kr. Veitan, sem er frá Glaumbæ í Skagafirði að skólunum að Löngumýri og Varmahlíð, kostar 675 þús. kr. (GJ: Hvað eru það margir bæir?) Ég man nú ekki, hvað þeir eru margir, og hef ekki skrá yfir bæjatöluna, en líklega eru það 7 eða 8 bæir, sem eru á svæðinu milli Glaumbæjar og þessara tveggja skóla. En þessi stutti kafli kostar 675 þús. kr. Er það ekki lítið af fjármunum, sem þarf, og mun að jafnaði kosta um 50 þús. kr. á hvern bæ. Af þeirri upphæð, sem til virkjunarinnar er varið, koma venjulega um það bil 10 þús. kr. frá eiganda jarðarinnar eða ábúanda, 13 þús. kr. taka veiturnar að láni, og þær 27 þús. kr., sem eftir eru, er ætlazt til að ríkið borgi. Þessar tölur, sem ég hef nefnt, nálgast mjög að vera meðaltalstölur. Þegar maður lítur á kostnaðinn við virkjunina í Aðaldal, sem er 900 þús. kr., og við Glaumbæ, sem er 675 þús. kr., er fyrirsjáanlegt, hve mikill kostnaður mun verða og hve mikið þetta kostar á hvern bæ.

En það, sem ég vil sérstaklega taka fram, er í sambandi við ræðu hv. þm. Barð. Það er alveg rétt hjá honum, að sú stefna hefur verið tekin í þessum málum að leggja fyrst og fremst rafmagn í þéttbýlið. Þessi stefna var mörkuð áður en ég tók við þessum málum. og ég hef ekki reynt að breyta henni. Það var þá búið að leggja þessar veitur og ákveða lagningu þeirra að mjög miklu leyti. T. d. var búið að setja niður staura og annað þess háttar. Þetta er vitanlega gert vegna þess, að með því móti borgar orkuverið sig bezt og það með tvennum hætti. Það er mest afsetning fyrir orkuverið, og veiturnar kosta minnsta peninga með því móti, og hægt er að afsetja víða margfalt meira rafmagn með minni kostnaði við veitu en þar, sem strjálbýlt er.

Eins og hv. þm. Barð. sýndi fram á, þá er sú stefna, sem hér hefur verið mörkuð, vissulega bæði hættuleg og þýðingarlaus. Þá munu þeir, sem ekki fá rafmagn, telja sig afskipta af þeim þægindum, sem þjóðfélagið hefur að bjóða. Líklegt má og telja, að ýmsir flytji burt frá þessum rafmagnslausu stöðum og fari þangað, sem þessi þægindi eru fyrir hendi. En til þess að ráða bót á þessu er ekki nema eitt ráð, að því er mér virðist. Það er það ráð, sem Norðmenn og Svíar hafa gripið til. Þeir leggja skatt á alla raforku á þeim stöðum, þar sem hún er komin, og byggja síðan upp veitur þar, sem aðstæður eru verri. Ég hef látið rannsaka, með hvaða hætti þessi skattur er lagður á þar. Norðmenn leggja hann beinlínis á til þess að byggja upp nýjar veitur, en Svíar leggja hann á sem hvern annan skatt. Skatturinn rennur svo beint í ríkissjóð hjá þeim, án þess að áskilið sé, að fyrir þessa peninga skuli byggja nýjar veitur, en þeir eru látnir standa undir kostnaði af veitunum. Ég segi þetta án þess, að ég sé að tala sérstaklega fyrir þessum till. Þær koma fram á þingi, hvenær sem það verður.

Þá vildi ég aðeins benda hv. þm. Barð. á það, að ég geri ráð fyrir, að áður en langt um líði veitist honum tækifæri til þess að taka afstöðu til þessarar einu úrlausnar, sem virðist vera möguleg, til þess að ekki verði á þessu óeðlilegur dráttur. Ég ætla að taka hér dæmi: Menn hafa lagt ákaflega hart að sér til þess að koma rafmagni til þessara skóla í Skagafirði og bæjanna á milli þeirra. Nú ljómar rafljós fyrir dyrum úti og inni á þessum bæjum. En 4 eða 5 km frá eru mörg býli sem ekki hafa þessi þægindi. Ríkið hefur lagt fram 27 þús. kr. úr ríkissjóði til þess að veita nokkrum bæjum þessi þægindi. Rétt við hliðina á þessum bæjum eru svo bæir, sem ekki hafa þessi þægindi, og þeirra vegna hefur ríkið ekki borgað neinar 27 þús. kr. Það er líka ódýrara að hafa rafveitur en að hafa kol og olíu til ljósa, eldunar og upphitunar. Það er því ekki óeðlilegt. að þeir menn, sem hafa fengið rafmagn, sem ríkið hefur kostað miklu til að veita þeim, borgi eitthvað til þess að allir geti fengið þessi sömu þægindi. Það er ekki nema réttlætismál. Og án þess að fara lengra inn á þetta atriði vil ég benda á, m. a. að gefnu tilefni frá hv. þm. Barð., sem mér er vissulega kærkomið, þar sem ég er á sömu skoðun og hann, að ég álít hins vegar, að á fyrsta stigi málsins, meðan verið er að koma rafmagninu á þéttbýlustu staðina, er alveg útilokað, að hægt sé að fylgja þeirri stefnu, sem ég vildi. Ég álít, að það sé eðlileg stefna að veita rafmagni á þá staði, þar sem neyzlan er mest; finnst mér það réttlátt. En þeir, sem eiga að bíða mörg ár eða áratugi eftir rafmagni, eru beittir ranglæti og settir hjá í þjóðfélaginu samanborið við hina, sem hafa fengið rafmagn með ærnum kostnaði fyrir ríkissjóð.