29.11.1951
Efri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 407 í C-deild Alþingistíðinda. (3009)

130. mál, orkuver og orkuveitur

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Mér þykir vænt um að heyra þetta hjá hæstv. landbrh. Mér hefur oft blætt þetta í augum og síðast nú fyrir fáum dögum, þegar ég var að taka lán fyrir mann nokkurn, sem byggði rafstöð fyrir 96 þús. kr., hvort sem það var fyrir hann einan eða fleiri. Gat ég fengið skrúfað út 30 þús. kr. lán handa þessum manni. Hann fékk ekki styrk, en fyrir náð og miskunn 30 þús. kr. lán, en var lofað 26 þús. kr. Það er litið svo á, að stjórn þessara mála þurfi að gera sér vel grein fyrir því, hvort t. d. þessi maður, sem ég nefndi, væri á svæði, þar sem ætla mætti, að stór veita kæmi innan 20–30 ára. Ef svo væri, átti hann ekkert að fá. En nú er það ákaflega víða á landinu, að staðhættir eru þeir, að það er ekki von um stórar virkjanir. Þannig er þetta víða á Vestur- og Austurlandi. Er alveg sjálfsagt að veita mönnum á þessum stöðum greiðari aðgang að lánum en þeir hafa nú og kannske veita þeim líka styrki. En jafnframt ber þess að gæta að spilla ekki fyrir því, að veitur komi þar, sem þær eiga að koma, með því að láta menn skerast úr leik vegna þess, að þeir hafi fengið lán til eigin veitubyggingar. Þeir, sem engar aðstæður hafa til þess að fá rafmagn frá stórvirkjunum, eiga frá mínu sjónarmiði að fá há lán frá hinu opinbera, en ekki hinir, sem eiga von á að fá rafmagn þannig eftir nokkur ár. Ég held, að menn eigi að reyna að átta sig á þeim aðstæðum, sem um ræðir, og koma vel á móti öðrum, en beinlínis neita hinum um lán, því að með því að veita þeim mönnum lán, sem búa þar sem stórvirkjanir eiga að koma, þá er sama sem verið að kasta þessu fé á glæ. Væri þannig staðið í vegi fyrir því, að aðrir, sem meiri rétt hafa til að fá slík lán, fengju þau.