11.01.1952
Efri deild: 57. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í C-deild Alþingistíðinda. (3036)

152. mál, húsrými fyrir geðsjúkt fólk

Forseti (BSt):

Ég tók þetta frv. til 2. umr. sökum þess, hvað langt er liðið á þingtímann; ég býst við, að þingi verði slitið mjög bráðlega. Á hinn bóginn hefur ekki komið nein tilkynning frá n. um, að hún hafi tekið málið að nýju til athugunar eftir 1. umr. En ég vil gjarnan heyra frá n., hvort hún óskar eftir að málinu sé frestað.