17.01.1952
Efri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 424 í C-deild Alþingistíðinda. (3052)

152. mál, húsrými fyrir geðsjúkt fólk

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Heilbr.- og félmn. hefur í þessu hléi á milli umr. tekið þetta mál til nýrrar athugunar, eins og sést á brtt., sem hún ber fram. Var sú athugun í því fólgin að eiga viðræður við yfirlækninn á Kleppi og landlækni og að lokum við yfirlækninn á Kleppi og skrifstofustjórann í félmrn. báða saman, og er það, sem hér liggur fyrir, raunverulega árangur þeirra viðræðna. Gegnum þessar viðræður við læknana fengum við ýmsar upplýsingar, sem okkur þóttu mjög fróðlegar og náttúrlega væri skemmtilegt fyrir hv. d. að fá frá okkur aftur, en ég mun þó láta niður falla að mestu, enda býst ég við, að eitthvað af því sé nú gleymt.

Yfirlæknirinn á Kleppi sagði, að sú skylda, sem meiningin er með frv. að leggja á geðveikrahælið á Kleppi, sé svo sjálfsögð, að hann vildi meina, að það væri allt að því móðgun að álíta, að taka þyrfti slíkt fram í fyrirsögn frv., og taldi hann sig ekki geta risið undir því, að slíkt kæmi fram í l. Taldi hann þetta vera óumdeilanlega skyldu geðveikrahælisins og bætti við, að reynt hefði verið á allan hátt að fullnægja þeirri skyldu. Að vísu kom það fram í þessum viðræðum, að um einstöku tilfelli hefði verið að ræða, sem ef til vill hefði mátt líta á sem undantekningar frá þessu, en yfirlæknirinn hélt því fram, að þar hefði verið gersamlega um ómöguleika að ræða, og tókum við í n. það trúanlegt og viðurkenndum viðleitni hans. En aðalatriðið í þeim upplýsingum var það, að jafnskjótt og viðbótarhúsnæði það, sem komið var upp á Kleppi, var tekið í notkun, fór fram viðgerð á eldri hluta spítalans, þannig að um tíma kom þessi viðbót ekki fram sem aukning, vegna þess að tilfærsla átti sér stað úr gamla hluta spítalans í nýja hlutann. Það var fyrst síðast í nóvember, sem málið stóð þannig, að allt húsnæði Klepps var komið í notkun, og komst yfirlæknirinn þannig að orði, þegar hann átti tal við okkur síðasta laugardag, að um langan tíma hefðu verið laus rúm á Kleppi, auk þess sem hann mundi í framtíðinni reyna að hafa — eins og hann kallaði það, að mig minnir — tilfærslu, sem þýðir að hafa vissan rúmafjölda handbæran, þegar eitthvað sérstakt ber að höndum. Það hefur sem sagt alveg nýskeð losnað þarna pláss, sem áður var ekki til, þannig að það má þegar af þeirri ástæðu gera ráð fyrir, að fyrst um sinn verði hægt án erfiðleika að fullnægja þessari skyldu, sem yfirlæknirinn telur allra fyrstu skyldu hælisins, en það er að hafa tiltækileg laus rúm fyrir menn, sem brjálast skyndilega. Af þessum sökum leggur n. til þá breyt., sem gerð er á þskj. 631, og ég vil undirstrika, að þótt þetta virðist nú vera gerbylting á frv., eins og það var upphaflega, hefur n. í engu hvikað frá því, sem var hinn upphaflegi tilgangur með því að flytja málið, þ. e., að fyrst og fremst verði reynt að sjá fyrir rúmum því fólki, sem brjálast skyndilega og verður hættulegt sér og umhverfi sínu. Og það gladdi okkur að heyra einmitt þetta sjónarmið koma fram hjá yfirlækninum á Kleppi, að það er þetta fólk, sem alltaf á fyrst og fremst að sitja fyrir um spítalavist og geta fengið rúm með stuttum fyrirvara. — Það er fullt samkomulag um þessa till., og hún er samin á fundi, þar sem voru við bæði yfirlæknirinn á Kleppi og skrifstofustjórinn í félmrn. Ég vil svo vænta þess, að hv. d. geti fallizt á að samþ. þessa brtt.