17.10.1951
Sameinað þing: 5. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 22 í D-deild Alþingistíðinda. (3074)

25. mál, lánveitingar til íbúðabygginga

Jónas Rafnar:

Herra forseti. Ég vil lýsa yfir fylgi mínu við hina fram komnu tillögu. Eins og allir vita, hefur skortur á lánsfé farið vaxandi frá ári til árs. Má segja, að ekki sé lengur á færi annarra en stóreignamanna, er hafa mikið reiðufé handa á milli, að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Þó má segja, að opinberir starfsmenn njóti nokkurrar sérstöðu í þessu efni, þar sem þeir eigi kost á allt að 50% að láni úr lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. En það, sem ég vil sérstaklega minna á, er, að í þessu máli má ekki ganga fram hjá bæjum úti á landi, þar sem lánsfjárskorturinn er engu minni þar en hér í Reykjavík, og vil ég enn leggja áherzlu á, að rannsókn sú, er hér um ræðir, verði ekki bundin við Reykjavík einungis, heldur taki hún til bæjarfélaga úti á landi eigi síður. Á Akureyri, en þar hefur bærinn verið í örum vexti síðastl. 30 ár, hefur þessarar lánsfjárkreppu gætt mjög. Þar hefur sá háttur verið tekinn upp, að fyrir þremur árum réðst bærinn í að stofna sérstakan sjóð til lánveitinga til íbúðabygginga með því fyrirkomulagi, að árlega hafa verið veittar úr sjóðnum 200 þús. kr., en þar sem eftirspurnin eftir þessum lánum hefur verið mjög mikil, hefur ekki verið unnt að ráðstafa nema 10 þús. kr. til hvers einstaks lántakanda, og hefur sú upphæð eðlilega hrokkið heldur skammt. Ég vil því sérstaklega undirstrika það, að ekki verði gengið fram hjá hinum smærri bæjum í sambandi við rannsókn þá, er þáltill. þessi fjallar um.

Ég er sömu skoðunar og flm. till., að þetta mál verði ekki til lykta leitt nema fyrir tilstilli hæstv. ríkisstj., og vil ég að lokum láta í ljós þá von, að málsmeðferð allri verði hraðað sem mest.