17.10.1951
Sameinað þing: 5. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í D-deild Alþingistíðinda. (3076)
25. mál, lánveitingar til íbúðabygginga
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að feta í fótspor þeirra hv. þm., er látið hafa uppi álit sitt á þessu máli hér á undan, og fagna þeirri hugmynd, sem felst í þáltill. um lánveitingar til íbúðabygginga. Það er máske heldur vægt að kalla þetta hugmynd, það er orðuð hugmynd. Og ég tel það mikið gleðiefni, að till. skuli vera komin fram, enda var hennar sízt vanþörf. Tvö undanfarin þing hef ég verið í fararbroddi að berjast fyrir því, að menn fengju leyfi til þess að byggja smá íbúðarhús, og ég þakka hv. 5. þm. Reykv. fyrir að geta um þessa forustu, því að ég kann því vel, að þess sé getið sem gert er. En það er um þessar framkvæmdir að segja, þegar þær loksins koma fram, að þær eru, eins og Englendingar orða það, „too little and too late.“ Þegar loksins á að gera eitthvað, er það allt mikils til of lítið og smávaxið, þegar loksins er hengslazt við að gera eitthvað. Það var ekki fyrr en undir haust, að menn, sem voru að byggja eða ætluðu að reyna að koma sér upp einhverju þaki yfir höfuðið, þorðu án þess að eiga á hættu hjól og steglur að byrja á neinum undirbúningi. Á sama tíma risu upp stóru íbúðahverfin í Hlíðunum og Skjólunum. Og þegar svo loks er látið undan, er þetta haft svo smátt og gengur svo skammt, að það gerir hugmyndina að engu. Það hefur verið dregið svo lengi, að hlutirnir hafa hækkað og margfaldazt svo í verði, að nú er hlutur, sem kostaði 1 kr., þegar átti að gera þetta, kominn í 2 kr., og hlýtur þetta að gera þeim, sem eiga að njóta þessara blessunarríku aðgerða, allt tvöfalt og margfalt dýrara og erfiðara en orðið hefði, ef ekki hefði verið skellt skollaeyrunum við þessu svo lengi, að þetta tjón hlyti að leiða af því. Og það, sem hv. flm. fara fram á í þáltill., er það, að ríkisstj. láti fram fara rannsókn og safni skýrslum um lánsfjárþörf til íbúðabygginga.
Ég hygg, að flestir menn, sem hafa opin augu og eyru og hafa þetta fyrir augunum daglega, hljóti að sjá, að það er ekki um neina lánveitingu að ræða fyrir allan almenning til þess að hann geti byggt hús. En ef menn eru í þjónustu hins opinbera, hafa þeir vísan aðgang að lánum með sérstaklega góðum kjörum. Það er t. d. sagt, að menn í opinberum stöðum eigi kost á lánveitingum, sem eru látnar þannig af hendi, að reikningsglöggir menn segja, að það nemi því, að þeir fengju 100 þús. kr. gefins í húsum sínum, þegar tekið er tillit til vaxtamismunar. En almenningur á ekki kost á þessum lánum. Ég ætla, að það sé þýðingarlaust að fara með víxil í bankana til þess að fá veðdeildarlán. Það orð heyrist ekki. En nú heyrist, að það sé kominn svartur lánsmarkaður í landinu. Það er á þennan markað, sem margur verður að flýja í vandræðum sínum til þess að geta t. d. komið húsi sínu undir þak fyrir veturinn, til þess að ekki skemmist það, sem gert hefur verið. Af hálfu þess opinbera virðist ekki hafa verið gerður nokkur skapaður hlutur — nema síður sé til þess að greiða fyrir mönnum með lánveitingar. Hv. fyrsti flm. þessarar þáltill. benti réttilega á það, sem fyrir löngu var búið að víkja að, að ýmsum, sem standa sjálfir fyrir sinum smáíbúðarhúsabyggingum, verði margt að efni, sem menn koma almennt ekki auga á. Þeir safna að sér og víða að sér efni, stundum afgöngum af stærri byggingum. Nú geta menn loks byrjað óttalausir að steypa kjallara, og er þá margt sem nýtist, sem nýttist ekki áður undir ófrelsinu og höftunum. sem á hvíldu.
Ég ber mikla virðingu fyrir því, að hæstv. ríkisstj. skuli taka að sér að safna skýrslum í þessu sambandi, en ég held, að ég verði að vera sammála hv. 2. þm. Reykv. um það, að hér er allt of lauslega eða öllu heldur of einhliða á þessum málum tekið. Þessi skýrslustörf, sem hér um ræðir, geta tekið mjög langan tíma í höndum hæstv. ríkisstj., ef aðeins er framfylgt þeirri stefnu að draga úr því, að menn ráðist í byggingar. Mér er ekki grunlaust um, að það eigi að draga úr fjárfestingunni, og það gæti þá alveg eins hitt þetta mál. Mér hefði verið miklu nær skapi að sjá hér koma fram till. um það að skipa sérstaka þingnefnd til þess að rannsaka þessa lánamöguleika. Alþingi hefur sams konar tök á að skipa slíka nefnd eins og hæstv, ríkisstj.
Svo var það einnig það, sem hv. 2. þm. Reykv. sagði um lánsfjárstefnu þá, sem nú ríkir í þjóðfélaginu, sem var sérstaklega eftirtektarvert, — ekki beinlínis eftirtektarvert vegna þess, að mönnum sé ekki þegar orðin vel ljós sú óskaplega lánsfjárpólitík þjóðbankans, sem nú er á ferðinni, heldur vegna þess, að hv. þm. drap á mörg meginatriði í þessu máli, sem skylt er að draga fram hér á Alþingi og öllum þm. er skylt að kynna sér og taka eftir.
Ég tók fram áðan, og ég hygg, að það sé rétt, að það muni vera til lítils að ota fram byggingarvíxli, þótt ekki væri hann stór, upp á væntanlegt veðdeildarlán, því að veðdeildarlánin eru orðin þannig, að þau koma að engu gagni.
Ég vil vaka undir þá ósk, að Alþingi láti þetta mál til sín taka á fleiri en einn veg. Það væri full ástæða til þess fyrir Alþingi að láta kynna sér fyrir milligöngu þar til hæfra manna, hvernig lánsfjárstefnunni í landinu er hagað af þeim, sem í umboði Alþingis fara með þau mál, t. d. í Landsbankanum. Þegar svo er komið, að menn eiga það á hættu vegna synjunar á smálánum að verða algerir vanskilamenn, jafnvel þátt miklar eigur standi að baki þeim, þá er fullkomin ástæða til þess fyrir þá stofnun, sem hefur vald og ráð þjóðbankans, að athuga, hvernig þessum málum er eiginlega háttað. Gengur þessi lánsfjársynjun jafnt yfir alla, eða mætti þar ríkja meira jafnrétti?
Hv. 2. þm. Reykv. minntist réttilega á, að það hafi komið fyrir, að orðið hafi að gripa til lagasetningar um stofnlánadeild sjávarútvegsins. Það þótti ekki beinlínis gott tiltæki á sínum tíma, þegar stofnuð var stofnlánadeild sjávarútvegsins með það markmið og það hlutverk, sem sú stofnun hafði. Allir, sem að stofnun hennar stóðu, bæði ríkisstj. sú, er þá var, og aðrir, sem voru þessu fylgjandi, hafa sýknt og heilagt fengið ámæli fyrir þá ráðstöfun. En hvaða horfur væru á áframhaldandi útflutningi fisks í þessu landi, ef fótunum hefði ekki verið komið undir lánsstofnun, er stæði straum af stofnkostnaði togaranna? Það er að verða með hverjum deginum, sem liður, augljósara, að einmitt það, að togararnir voru byggðir, — en þeir hefðu ekki verið byggðir, ef lánsfé hefði ekki verið fyrir hendi, — það virðist vera lykillinn að því, að Íslendingar geta nú hagnýtt sér veiðar, t, d. við Grænland. Það hefði verið ógerningur á öllum öðrum skipum, sem voru í okkar eigu og eru í okkar eigu nú, nema á togurunum, Ég bendi á þetta til þess að sýna, að afskipti Alþingis af störfum þjóðbankans þurfa ekki að vera þjóðinni til ills, heldur hefur það sýnt sig, að þau hafa orðið þjóðinni til mikillar blessunar. — Þegar svo er komið nú loks eftir langa mæðu, að viðurkenndur hefur verið réttur hins óbreytta borgarra til þess að byggja sér hús, þótt lítil séu, — og að mínum dómi of lítil, — þá er það böl við að stríða, að ekkert lánsfé er að fá nema þá með svo óbærilegum kjörum, að ekki er hægt að ætlast til þess, að nokkur maður komi sér upp húsi með slíkum hætti. Ég á þar við það, sem talað er um, að gangi í sumum tilfellum fyrir sig með einkalánum og því um líku, sem fást utan bankanna. Þess vegna er það, að þegar Alþingi hefur gert þá ráðstöfun, er sem betur fer knúði ríkisstj. til þess að láta undan á þessu sviði og lofa mönnum að byggja hús yfir sig, þá er sú aðgerð Alþingis að vísu góðra gjalda verð, en hún er ekki nema eitt spor í áttina til þess að leysa vandann, sem hér er fyrir hendi. Það þarf að sjá um, að menn geti fengið út á eigur sínar aðstoð með bærilegum kjörum til þess að koma upp þessum húsum sínum. Við, sem búum í eldri húsum og höfum á sínum tíma notið aðstoðar veðdeildarinnar og slíks til þess að koma upp okkar húsum, við vitum, hve mikill styrkur það var okkur. Okkur sem einstaklingum ber siðferðileg skylda til að gera það, sem í okkar valdi stendur, til þess að löggjafinn beiti áhrifum sinum í rétta átt og til þess að fá lánastefnu bankanna inn á mannúðlegri og skynsamlegri braut í þessum efnum.
Að svo mæltu vil ég fyrir mína hönd og kjördæmis míns beina þeim tilmælum til hv. fjvn., að hún taki þetta mál til meðferðar og hún taki það eins föstum tökum og hún sér sér fært og lesi milli línanna í hinni mjög svo vægu till., sem hér er borin fram í þessu efni, því að hv. fjvn. og þeir, sem í henni sitja, þekkja ástandið í þessu landi ekki síður en aðrir hv. þm. og vita, að hér kreppir skórinn svo að, að af því hefur hlotizt stórtjón og mun hljótast meira tjón, nema litið sé meir á hag þegna landsins en verið hefur fram að þessu.