31.10.1951
Sameinað þing: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (3083)

25. mál, lánveitingar til íbúðabygginga

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna, að mínum skilningi er gersamlega ofvaxið, hvernig hæstv. ríkisstj. á að gera það, sem fyrir hana er lagt í seinni hluta till., eftir þeim upplýsingum, sem henni er ætlað að fá samkv. fyrri hl. till. — Og eftir því sem hæstv. viðskmrh. túlkaði þá till., sem samþ. var hér á síðasta þingi og hann ræddi í dag, og eftir skilningi hans um það mál, þá er óhætt að fullyrða, að það verður ekki gerður nokkur skapaður hlutur með þessa till., þótt samþ. yrði. Hér stendur: „Alþ. ályktar að fela ríkisstjórninni að láta safna ýtarlegum skýrslum um lánveitingar til íbúðabygginga . . .“ Það er ekki lánaþörfin, heldur lánin, sem hafa verið veitt, sem á að safna skýrslum um, hve mörg lán hafi verið veitt á undanförnum árum til þessa eða hins viðkomandi íbúðarhúsabyggingum. Hér er ekki talað um, að safna þurfi upplýsingum um, hve mikið þurfi að byggja upp, hve margir búi í bröggum og hve margir í lélegum kjöllurum, né heldur um fjölgun fólksins og þörfina á að auka íbúðarhúsabyggingar af þeim sökum, — nei, heldur hve mörg lán hafi verið veitt á síðustu árum til íbúðarhúsabygginga. Og þegar ríkisstj. er svo búin að fá að vita, að kannske eitt þúsund lán hafi verið veitt til þessara hluta í kaupstöðum og 300 í sveitum á einhverju ári, hvað á þá aumingja ríkisstj. að gera? Á hún bara að ganga út frá því, að fyrst lánuð hafi verið út þúsund lán á ári í þessu skyni, þá sé sjálfsagt að veita þúsund lán aftur í sama skyni á næsta ári, án tillits til annars en þess, hve mörg lán hafi verið veitt? — Mér virðist rétt að breyta þessu orðalagi þannig, að ríkisstj. eigi að rannsaka lánaþörfina, og það á að vera auðgert mál. (GTh: Ríkisstj. á á grundvelli þeirrar rannsóknar að leggja fyrir þingið tillögur til úrbóta.) Ég veit, að eftir till. á hæstv. ríkisstj. að finna það út eftir þessum forsendum. En hún getur ekkert gert aðeins eftir þeim rannsóknum, og þó að borgarstjórinn sé mikill maður, getur hann ekki ráðið eftir því, hve mikið hefur verið byggt árið sem leið, hve mörg hús verði byggð í ár. Hann getur það ekki á þeim forsendum. Það þarf ekki árlega að byggja jafnmörg Bústaðahús. Og þótt þurft hafi að lána til 100 bæjarbygginga í ár, þá er alls óvíst, að lána þurfi til jafns fjölda næsta ár. Það geta verið fleiri eða færri, og það er lánaþörfin, sem rannsaka þarf, en ekki fyrri lánveitingar. Ef hæstv. ráðherrar eiga ekki að geta skotið sér undan framkvæmdum í þessum efnum eins og hæstv. viðskmrh. gerði viðkomandi þáltill., sem samþ. var á síðasta þingi og hér var rætt um nýlega, þá verður að hafa þessa till. öðruvísi. — Hitt er annað mál, að það er nauðsynlegt að rannsaka lánaþörfina ýtarlega, hvernig húsnæði t. d. eiga við að búa sex til sjö þúsund heimili hér í Reykjavík, sem búa í leiguíbúðum, og hve mikið þarf að byggja í næstu framtíð til þess að bæta úr húsnæðisvandamálum þeirra, sem búa í óviðunandi húsnæði, og til þess að mæta húsnæðisþörfinni, sem skapast fyrir eðlilegan vöxt þjóðarinnar, hve miklu þurfi að útrýma af torfbæjum og hve miklu af timburhúsum, sem ekki eru talin íbúðarhæf, hvort sem er í sveitum eða þorpum og kaupstöðum á landinu. Það er þetta, sem þarf að rannsaka. En lánveitingarnar, sem veittar hafa verið á undanförnum árum, sýna okkur, hversu miðað hefur til þess að útrýma þessum lélegu íbúðum, en alls ekki, hver þörf er á byggingu íbúðarhúsa í framtíðinni.