08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (3096)

25. mál, lánveitingar til íbúðabygginga

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. 8. þm. Reykv. fyrir stuðning við till. okkar hv. 7. þm. Reykv. Og ég verð að segja, að hún megi draga úr ótta sínum og óþarfi sé fyrir hana að halda, að á till. hennar sé litið sem einhverja firru. Annars verð ég að segja það, að ég sárvorkenni þessum hv. þm. að þurfa að standa upp og tala um þessi mál, ekki vegna þess, að hún kunni ekki að hafa áhuga um þessi mál, heldur vegna þess, að flokksbræður hennar hafa bundið fyrir augu hennar í þessum efnum, og þótt þeir leyfi henni að tala og bera fram till., þá munu þeir ekki veita henni mikinn stuðning, er til kastanna kemur.

Ég vil einnig láta í ljós ánægju mína yfir þeim framförum, sem orðið hafa í afstöðu annars þm. Framsfl., hv. þm. V-Húnv. (SkG), því að fyrir nokkrum árum hélt hann því fram, að í Reykjavík mætti alls ekki byggja hús, en nú heldur hann því fram, að bærinn ætti bara að byggja. Þetta er mikil framför frá því, þegar hann var einn af ritstjórum blaðs framsóknarmanna hér í Reykjavík og hélt því fram, að byggingar í Rvík yrðu landinu sá myllusteinn um háls, sem riði því að fullu. Annars vil ég ekki vera að ýfa upp gömul sár, vegna þess að slíkt er ætið gagnslítið, og svo virðist nú sem Framsfl. sé nokkuð að sjá að sér í þessum efnum.

Inn í þessar umræður hafa spunnizt fleiri mál og orðið af nokkurs konar kappræður um afrek flokkanna í húsnæðismálunum. Hv. 8. landsk. var .að guma af afrekum Alþfl. á þessu sviði og minntist m. a. á veðdeild Landsbankans í því sambandi, en honum láðist bara að þakka mér fyrir þá till. Í umr., sem fram fóru um þessi mál á Alþ., benti ég á þessa lausn. Hv. þm. veitti þessu athygli, og daginn eftir kom till. um veðdeild Landsbankans fram. Ég sé ekki, að neinum sé greiði gerður með því að rugla svona staðreyndum.

Ræða hv. 8. landsk. byggðist á því að þakka Alþfl. forustu í baráttunni fyrir verkamannabústöðunum, en hann gekk þó ekki jafnlangt í því sem hv. 6. landsk., sem lýsti því yfir, að Sjálfstfl. hefði alltaf verið á móti byggingu verkamannabústaðanna. Slík brenglun staðreynda sem þetta er í hæsta máta ósæmileg og ósamboðin hv. þingmönnum er enda þeim sjálfum fyrir verstu, vegna þess að það tekur þá langan tíma að þvo þetta af sér og ávinna sér traust á ný á öðrum vettvangi. Annars vil ég ekki hætta mér út í rökræður við hv. 6. landsk. þm., vegna þess að nokkuð erfitt er að festa hendur í hári hans og hann er kunnur að því að vera sleipur í umræðum. En ég vil benda á, að Byggingarfélag verkamanna, sem hefur haft með höndum stærstu framkvæmdir fyrir fé byggingarsjóðs og hefur merkar framkvæmdir um þessi mál með höndum nú, — að þetta félag — og form. þess er Guðmundur Í. Guðmundsson — hefur talið ástæðu til að sýna nokkrum mönnum þakklætisvott fyrir sérstaka umhyggju í þessum málum. Þetta félag gaf Jakob Möller, er hann varð 65 ára, forkunnarfagran lampa sem þakklætisvott fyrir störf hans í þágu félagsins. Og þegar Bjarni Benediktsson, hæstv. núv. utanrrh., varð 40 ára, fann stjórn þessa félags ástæðu til að gefa honum lýsandi vita útskorinn ásamt þessu ávarpi: „Þökkum yður styrkan stuðning, og árnum allra heilla.“ Mér finnst nú, að þetta taki af öll tvímæli um afstöðu þessara manna til félagsins, enda þori ég að segja í nafni allra, er hlut eiga að máli, að þetta félag hafi engan stuðningsmann átt styrkari en Bjarna Benediktsson. Og það er ekki aðeins gjöfin í heild, vitinn sjálfur, sem ber vott um þetta álit forustumanna félagsins, heldur eru hinar ýmsa táknmyndir á honum, svo sem innsigli lýðveldisins, brautryðjandinn og fleira, sem má lesa þetta út úr. Ég geri ekki ráð fyrir, að þessi tákn séu sett þar af neinu handahófi, heldur eigi þau að hafa þar sfna ákveðnu merkingu. — Ég skal svo láta útrætt um þetta, en vildi aðeins vekja athygli á þessum staðreyndum, þegar haldið er fram slíkum firrum sem þeim, að Sjálfstfl. sé og hafi verið í andstöðu við þessi mál. Ég endurtek svo það, sem ég hef sagt við fyrri umr., að ég óska, að þessi till. fái góðan stuðning þingmanna. Ég hef von um, að ríkisstj. standi heilsteypt í því máli. Ég vil þó segja það, að þótt úrlausn fáist á þessu þingi, þá má ekki una við neina bráðabirgðalausn í þessu máli.