12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í D-deild Alþingistíðinda. (3132)
57. mál, heimilisdráttavélar, prjónavélar og bifreiðar til landbúnaðarþarfa
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Hv. þm. V-Sk. sagði í ræðu sinni, að eðlilegt væri, að þm. létu það í ljós, hvaða vörutegundir þeir kysu helzt að gengju fyrir með innflutning og leyfisveitingar. Hér er nú raunar ekki verið að fara neina bónarför, heldur er ríkisstj. falið að taka þessar landbúnaðarvélar á frílista. Þetta er mjög óvenjuleg aðferð og reyndar mjög óheppileg vegna þess fordæmis, sem hún veitir. Það er látið í veðri vaka, hversu þetta sé nauðsynlegt, vegna þess að þetta séu landbúnaðarvélar. Mér er nú kunnugt um, að nú þegar er búið að veita talsvert af leyfum fyrir heimilisdráttarvélum. Mér hefur og verið sagt, að óskum um þær hafi nær verið fullnægt. — Hv. þm. Dal. talaði um það, hversu nauðsynlegt það væri fyrir landbúnaðinn að fá þessar vélar. Það er nú sama að segja um fleiri vörutegundir, t. d. byggingarvörur ýmiss konar. Svipaða sögu má og segja um vörubifreiðarnar. Mörg fyrirtæki og verzlanir eiga 10–15 ára gamlar vörubifreiðar, sem kosta hálft bílverð í viðhaldi á ári hverju. Þær eru úr sér gengnar og kosta mikið fé í viðhaldi. Það má ef til vill segja, að hér sé ekki búmannlega að verið, en þetta er nú samt svona, að fjárhagsráð hefur ekki séð ástæðu til þess að veita leyfi fyrir vörubifreiðum, þótt nauðsynin hafi blasað alls staðar við í þeim efnum. Hins vegar tel ég og mjög æskilegt, að hægt væri að fullnægja þörfum landbúnaðarins í þessum efnum, ef nægur gjaldeyrir er fyrir hendi, en hætt er nú við því, að það kunni að reynast nokkuð umdeilanlegt, hvenær slíkt ástand hefur skapazt.
Hv. þm. V-Sk. talaði um það, að mikið hefði borið á því, að þær jeppabifreiðar, sem úthlutað hefði verið til bænda, streymdu hingað til Reykjavíkur. Taldi hann nauðsynlegt, að settar yrðu þær hömlur, að fyrir slíkt yrði tekið. Ég hef nú ekki trú á því, að hægt sé að setja slíkar reglur. Hætta mun æ verða á því, að leiðir finnist til að fara í kringum þær. Hefur sú reynsla, sem fengizt hefur í þessum efnum, bent í þá átt.