05.12.1951
Sameinað þing: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í D-deild Alþingistíðinda. (3139)
106. mál, jöfnunarverð á olíum og bensíni
Flm. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Á þskj. 199 hef ég flutt þáltill. um jöfnunarverð á olíum og benzíni. Að ég flyt enn á ný þessa till., stafar af því, að hæstv. viðskmrh. lét þau orð falla, er ég gerði fsp. um framkvæmd á till., er samþ. var á síðasta Alþ., að hann teldi sér ekki beint falið að vinna að því að koma jöfnunarverðinu í framkvæmd. Ég tel hins vegar ótvírætt, að það hafi verið vilji Alþ., að stj. ynni að þessu, enda var till. samþ. með yfirgnæfandi meiri hl. Til frekari áréttingar vil ég þó enn á ný flytja þessa till., svo að Alþ. geti ítrekað viljayfirlýsingu sína í þessu mikilsverða máli.
Ég hef orðið þess var, að till. hefur sætt nokkurri gagnrýni, sérstaklega í Reykjavík, og tel ég það undravert, þó að þetta sé nokkurt hagsmunamál útvegsmanna og benzínnotenda í Reykjavík. Alþ. hlýtur þó að skilja, að menn, sem búa úti á landsbyggðinni, óska að sitja við sama borð um kaup á olíum og benzíni fyrir atvinnurekstur sinn og þeir, sem búa við Faxaflóa. Sú gagnrýni, sem till. hefur mætt, vekur enn meiri undrun, þegar þess er gætt, að jöfnunarverð er á ýmsum einkasöluvörum, og hefur það gengið vel. Þá er það öllum kunnugt, að þeir, sem hafa það fyrir atvinnu að kaupa fisk úti á Landi, borga sama verð fyrir fiskinn þar og borgað er við Faxaflóa. Það er því eðlilegt, að við, sem búum úti á landi, teljum sanngjarnt, að þær vörur, sem til útgerðarinnar þarf, séu seldar sama verði, að minnsta kosti þar, sem selt er frá birgðageymum. Hér er því um sanngirnismál að ræða, og vona ég, að Alþ. sýni sama vilja og áður í þessu efni og samþ. till.
Ég held ekki, að þörf sé á því að hafa um þetta fleiri orð. Ég geri ráð fyrir því, að hæstv. forseti láti vísa málinu til fjvn., og vil ég biðja n. að afgr. það fljótt, svo að unnt verði að samþ. það á þessu þingi.