28.11.1951
Sameinað þing: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í D-deild Alþingistíðinda. (3153)

80. mál, tunnuverksmiðja ríkisins

Frsm. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hefur tekið til meðferðar till. til þál. um rekstur tunnuverksmiðja ríkisins, sem hér hefur verið lögð fram, og hefur nefndin skilað áliti á þskj. 254.

Það er öllum hv. þm. kunnugt, að ríkið á tvær tunnuverksmiðjur, aðra á Akureyri, en hina á Siglufirði. Það hefur nú gengið á ýmsu um rekstur þeirra. En hins vegar hefur það sýnt sig, að mikil nauðsyn er að tryggja rekstur þeirra, bæði til þess að tryggja atvinnulíf á þessum stöðum og hins vegar er það nauðsyn fyrir þjóðfélagið í heild. Það virðist því réttmætt að gera kröfu til þess, að ríkisvaldið haldi þessum verksmiðjum gangandi til þess að tryggja innlenda tunnuframleiðslu og auka atvinnu þessara aðila, en á þessum stöðum eru oft slæm atvinnuskilyrði á vetrum.

Nefndin hefur fallizt á till. í sinni upphaflegu mynd, en gert á henni orðalagsbreytingu, þannig að það sé ótvíræðara tekið fram, að allar þær tunnur, sem nota á næsta sumar, verði smíðaðar þar í vetur og að strax verði gerð gangskör að því að afla efnis til þessara verksmiðja. Það er nú allmiklum annmörkum háð að ná í efni, og var það m. a. af þeirri sök, sem réttara þótti að hafa orðalag till. skýrara.

Allshn. leggur því til, að till. verði samþ. í því formi, sem hún er á þskj. 254, og vænti ég þess, að hv. alþm. geti fallizt á þær breytingar.