28.11.1951
Sameinað þing: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í D-deild Alþingistíðinda. (3156)
80. mál, tunnuverksmiðja ríkisins
Frsm. (Magnús Jónsson):
Sú viðaukatill. frá hv. þm. Siglf., sem hér hefur verið lögð fram, hefur ekki legið fyrir allshn. til athugunar. Hún breytir í sjálfu sér ekkert þeirri till., sem fyrir lá, heldur er um viðbót að ræða, þar sem gert er ráð fyrir starfsemi, sem nái lengra fram í tímann, þ. e. a. s. til næsta vetrar, að nú þegar verði hafizt handa að tryggja visst magn af tunnuefni, til þess að það geti verið þá til staðar.
Nú rísa auðvitað ýmsar spurningar í sambandi við þetta. Það er að sjálfsögðu ekki nema rétt að hefjast sem fyrst handa um það á hverjum tíma að tryggja nægilegt hráefni til tunnugerðar, svo sem vera skal um alla framleiðslu, sem á að ganga á eðlilegan hátt. Nú þekki ég að vísu ekki til þess, hvort hefur verið látið undir höfuð leggjast að tryggja verksmiðjunum nægilegt efni. En hvernig sem því er háttað, væri ekkert óeðlilegt við það út af fyrir sig, að hafizt yrði handa um það sem fyrst að tryggja þetta efni fyrir næsta vetur, ekki sízt vegna þess, eins og hv. þm. Siglf. benti hér á og rétt mun vera, að það eru miklir erfiðleikar á því að fá efni til tunnusmíða.
En það er annað atriði, sem gerir það að verkum, að mér hefur fundizt rétt, að umr. um þetta mál yrði frestað og allshn. gefinn kostur á að athuga þessa vatill. nokkuð, — þó að það að vísu kunni að vera svo, að till. eigi ekki með öllu heima í þeirri n., vegna þess að gert er ráð fyrir, að ríkisstj. hlutist til um það, að keypt verði efni fyrir allverulega fjárhæð, sem ríkisstj. yrði þá væntanlega að leggja fram eða að fá lán til. Af þeim sökum virðist mér nauðsynlegt að íhuga, hvaða leið helzt þurfi að fara til þess að tryggja fjárhagslega hlið þessa máls. Mér fyndist því eðlilegt, — og ég hygg ég mæli fyrir munn nefndarinnar, — að henni gefist kostur að íhuga þessa viðbótartill., ef hæstv. forseti vildi á það fallast að fresta umr. og gefa n. kost á að athuga till. nánar í sambandi við þau atriði, sem ég hef minnzt á. Það hefur komið fram á fundi n., að hún hefur fullan vilja á að stuðla að því eftir megni, að verksmiðjustarfræksla þessi geti orðið eðlileg. Ég þykist fullviss, að einhugur er fyrir því í allshn. að greiða fyrir því, að öllum till., sem að því miða, verði vel tekið. En með hliðsjón af því, sem ég gat um viðkomandi fjárhagshlið þessa máls, hef ég talið æskilegt, að þessi leið yrði farin.