12.12.1951
Sameinað þing: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í D-deild Alþingistíðinda. (3160)

80. mál, tunnuverksmiðja ríkisins

Steingrímur Aðalsteinsson:

Herra forseti. Mig minnir, að það hafi verið á næstsíðasta þingi, sem ég flutti þáltill. um tunnuverksmiðjuna á Akureyri. Þessi þáltill. fjallaði bæði um, að gerðar yrðu endurbætur á verksmiðjunni, sem ríkið lofaði að mínu áliti, þegar það keypti verksmiðjuna af Akureyri, og að þá yrðu gerðar ráðstafanir til þess að smíða tunnur í henni. Þegar þetta mál var svo til umr., urðu miklar og hávænar raddir til að andmæla, að tunnusmíði yrði framkvæmd á Akureyri, heldur yrði það aðeins lítils háttar á Siglufirði. Það var fært fram sem rök, að innlendar tunnur væru miklu dýrari en erlendar, og nefndar ýmsar tölur því til stuðnings, en ég vildi ekki taka þær góðar og gildar. Þá var ákveðin andstaða gegn því, að nokkrar ráðstafanir væru gerðar til að framkvæma tunnusmíði á Akureyri eða undirbúa tunnuverksmiðju þar. Nú virðist hafa orðið breyt. hvað þetta snertir, og gleður það mig. Þáltill. sú, sem nú er flutt, hefur engin andmæli fengið fram til þessa, og hv. allshn. mælir með, að till. verði samþ. efnislega, og tekur fram í nál. sínu, að það sé sjálfsagt, að þessar verksmiðjur smíði allar þær tunnur, sem nota þarf í landinu. Þessu hélt ég fram, að það ætti að smíða tunnurnar í landinu, en ekki kaupa þær erlendis frá. Það virðast hafa orðið skoðanaskipti hvað þetta snertir, og lýsi ég ánægju minni yfir því, að nú virðist eiga að smíða hér allar þær tunnur, sem notaðar verða í landinu, og vona ég, að notkun og smíði tunna fari hér í vöxt. Til að framfylgja þessu og þar sem nú hafa ekki komið fram mótmæli gegn áliti n., þarf að gera ráðstafanir til þess, að þessar verksmiðjur séu í því sóandi, að þær geti smíðað allar þær tunnur, sem hér þarf að nota. Ég álit því sjálfsagt, jafnframt því að þessi till. verði samþ., að gerðar verði ráðstafanir til, að verksmiðjan verði gerð þannig úr garði, — og á ég þar við verksmiðjuna á Akureyri, — að hún geti annazt þetta starf. Verksmiðjan á Siglufirði er nýendurbætt, svo að það þarf ekki að endurbæta hana. Ég flyt því brtt. á þskj. 298 um, að jafnframt því að gerðar verði ráðstafanir til þess að smíða úr því efni, sem nú er fyrir hendi, og að þar við bættri till. hv. þm. Siglf. um að útvega efnið nógu snemma, verði gerðar ráðstafanir til þess að endurbæta tunnuverksmiðjuna á Akureyri, svo að hún geti sinnt sínu hlutverki í þessari innlendu tunnuframleiðslu, og þó sérstaklega að byggð verði geymsla undir smíðaðar tunnur. Einnig tei ég sjálfsagt, að á Akureyri, þar sem vélakostur er ekki góður, verði bætt úr því, svo að þessi framleiðsla geti orðið eins góð og þarf og geti orðið samkeppnisfær við erlenda tunnuframleiðsíu. Ég vil vænta þess eftir þær undirtektir, sem till. hefur fengið, að menn geri sér ljósa þörfina á því, að gengið verði sæmilega vel frá þessum verksmiðjum, sem ríkið á, og geri sér ljósa þörfina á því að búa þannig að þeim, að þær geti innt af hendi hlutverk sitt. — Vænti ég svo, að hv. þm. geti fallizt á þessa till.