21.11.1951
Sameinað þing: 16. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (3185)

52. mál, rannsókn virkjunarskilyrða á Vestfjörðum

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Mér finnst ákaflega eðlilegt, að þm. Vestfirðinga hafa flutt þessa till., og auðvitað er hún ekki nema sanngjörn. Hitt er svo annað mál, hvað mikinn árangur hún kann að hafa, því þó að hér verði samþ. að rannsaka skilyrði til virkjunar á Vestfjörðum, þá kann að fara svo, að virkjun á Vestfjörðum komi ekki á næstunni fyrir það, jafnvel þó að þessi rannsókn færi fram, og jafnvel þótt fundinn væri staður til þess að virkja eitthvert vatnsfall á Vestfjörðum, sem ætti að nægja fyrir Vestfirði, þá er ekki víst, að rafmagninu verði dreift um Vestfirði á næstu árum fyrir því. Ég segi þetta sökum þess, að ég hef töluverða reynslu í því, hvað jafnvel samþykktir eða lög frá Alþ. hafa mikið að segja í þessum efnum, þegar láist að skaffa nægilegt fjármagn til þeirra framkvæmda, sem ráðgerðar eru.

Hv. aðalflm. þessarar till. segir, að Vestfirðingar séu orðnir óþreyjufullir að bíða eftir því að fá rafmagn, og ég skil vel, að þeir séu það. En ég get frætt bæði hann og aðra á Alþ. um það, að sumir þeir, sem jafnvel er talið, að séu búnir að fá rafmagn, svona út í frá, þeir eru orðnir óþreyjufullir eftir því að fá það.

Hv. flm. minntist á það, eins og margir fleiri hafa gert, að nú er verið að framkvæma tvær stórvirkjanir, við Sog og Laxá, og taldi hann, eins og rétt er, að Sogsvirkjunin væri fyrir Reykjavík og Suðurland, og má það til sanns vegar færa, því að það er ekki einasta Reykjavík, sem fær rafmagnið, heldur er þegar búið og á góðum vegi með að veita rafmagninu um öll héruð á Suðurlandi, þó að mikið sé eftir. Aftur er það um Laxá að segja, að hún er náttúrlega fyrir Akureyri, en mér sýnist ekki sérstaklega bjartar horfur um það, að fleiri en Akureyrarbúar hafi not af því stórvirki fyrst um sinn, eftir því sem mér virðist það mál liggja fyrir. Það er að vísu þegar búið að leggja línu frá Laxárvirkjuninni til Húsavíkur, og svo kemur að sjálfsögðu aukið rafmagn til Akureyrar, þegar framkvæmdum er lokið, en hvað meira verður er óljóst enn. Það eru full sex ár síðan Alþingi samþykkti lög um að leggja nokkrar rafveitur bæði út frá Sogsvirkjuninni og Laxárvirkjuninni. Það er nú búið að leggja flestar þessar rafveitur. En ein er þó sú rafveita, sem ákveðið var að skyldi lögð á árunum 1945–46, sem sé frá Akureyri til Dalvíkur, en hefur enn ekki verið lögð, þrátt fyrir það að Alþ. mælti svo fyrir, að þetta skyldi gert 1945–46. Ég hef nú flutt frv. hér á Alþ. um það, að þessar framkvæmdir verði gerðar á næsta ári, og sýnist það ekki mega seinna vera, en það mál hefur verið alllengi í n., og mér sýnist jafnvel ekki útlit fyrir, að þetta verði gert, a. m. k. er ekki enn búið að gera ráðstafanir til þess, að þetta verk, sem Alþ. fyrir 6 árum ákvað að skyldi verða gert, komist í framkvæmd. Og orsökin til þess, hvað hægt gengur í þessum efnum, er vitanlega sú, að fjármagn vantar bæði til eins og annars í þessum efnum, og ef á að framkvæma það stórvirki, að allir landsmenn fái rafmagn. þá verður að finnast einhver leið til þess, að það geti gengið hraðar en útlit er fyrir að verða muni eftir þeim fjárveitingum, sem nú er áætlað í fjárl. og Alþ. hefur veitt til þessa. Ég átti fyrir skömmu tal við raforkumálastjóra, og hann sagði þá, að með sömu fjárveitingum og nú væru áætlaðar til þessara framkvæmda og með sama verðlagi mundi það taka 60 ár að koma rafmagninu til landsmanna almennt.

Ég læt ekki þessar aths. falla til þess á nokkurn hátt að spilla fyrir því, að till., sem hér liggur fyrir, verði samþ., en í fyrsta lagi til þess að benda hv. flm. á, að það er kannske ekki svo ýkjamikið unnið með samþykkt þessarar till., því að rafmagnið er ekki komið, þó að hún verði samþ., eftir því sem verið hefur undanfarið. En þó hef ég sérstaklega látið þessar aths. falla til þess að benda á, að annaðhvort verður að falla frá þeirri hugmynd og hætta að vekja þær vonir hjá landsmönnum, að þeir geti innan skamms fengið rafmagn, eða hitt, að finna verður leið til þess að fá miklu meira fjármagn til þessara framkvæmda en enn hefur verið fundin leið til. Það eru sumir menn, sem meta það mikils, hvað þeir þykjast sjá hilla undir í framtíðinni. Ég hygg þó, að það séu ákaflega fáir, a. m. k. í dreifbýlinu, sem halda áfram að vera á afskekktum stöðum, ef þeim á annað borð finnst rafmagnið eins nauðsynlegt og flestir telja það vera. Ég hygg, að fáir geri nokkuð með það, þó að þeir sjái hilla undir, að barn þeirra eða barnabarn fái rafmagn að 60 árum liðnum. — Útgjöld ríkisins eru há á Íslandi, en þegnar þess þjóðfélags fá líka óvenjumikið í staðinn fyrir þau gjöld, sem þeir greiða. Ég sé ekki annað, ef þetta rafmagnstal á að verða annað en draumórar, þá verði með auknum álögum eða á annan hátt að útvega margfalt meira fé á næstu árum til rafmagnsframkvæmda en nú er gert og að óbreyttri löggjöf er fyrirsjáanlegt að gert verði. Og með beztu meðmælum með till. vildi ég leggja hv. flm. hennar það á hjarta, að það er hæpið að ganga að till., nema almennar verði hafizt handa í raforkumálum landsmanna en nú er gert, því að varla geta hv. flm. ætlazt til þess, að hætt verði við allar aðrar framkvæmdir til að koma lagi á raforkumál Vestfjarða.