24.10.1951
Sameinað þing: 6. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 122 í D-deild Alþingistíðinda. (3196)
51. mál, mótvirðissjóður
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Við hv. þm. Borgf. höfum leyft okkur að bera fram þessa till., sem er á þskj. 73, um að leyft verði að veita úr mótvirðissjóði helming þeirrar upphæðar, sem þar verður á sínum tíma, til landbúnaðarins. Hv. þm. Borgf. er nú fjarverandi og hefur fyrir þá sök ekki orð fyrir þessari till.
Undanfarna áratugi hefur skipazt svo um starfshætti þjóðarinnar, að æ stærri hluti hennar hefur byggt afkomu sína á atvinnuvegum bæjanna og sjávarþorpanna. Það fer tæpast hjá því, þegar athugaðir eru möguleikar þjóðarinnar til lífsbjargar, að í ljós komi, að afkoma hennar sé ótrygg, einkum ef því heldur áfram, að straumur fólksins liggi til kaupstaðanna úr sveitunum, eins og hefur verið áberandi í seinni tíð, þótt þess sjáist nú nokkur merki, að þetta kunni að breytast. Ef litið er á hlutfallið milli landsmanna, þeirra er búa í sveitum og hinna, er dveljast við sjávarsíðuna, sést að þetta hlutfall hefur nú í langan tíma verið að breytast í þá átt, að fólkinu hefur fækkað í sveitunum eftir því, sem því hefur fjölgað í kaupstöðunum. Og því skemmra sem farið er aftur í tímann, því örar hefur þetta breytzt tiltölulega. Ef þetta væri fyrir fólksfjölgun í kaupstöðunum, væri nokkuð öðru máli að gegna, en það stafar af fólksflutningum til bæjanna, einkum til höfuðborgarinnar, af ýmsum ástæðum, og einnig þó nokkuð til annarra bæja, þótt ekki sé í eins stórum stíl. Orsakir til þessa eru margar og mismunandi, og er gagnslaust að fara að rekja þær ýtarlega, en mikið liggur þetta í því, að það fjármagn, sem þjóðin hefur aflað, hefur mest safnazt saman og starfað í Reykjavík. Í síðasta stríði var hér erlendur her með mikla atvinnu, sem hann veitti, og dró það mjög fólk hingað til bæjarins. Eitt árið greiddi herinn á annað hundrað millj. í atvinnutekjur hér. Má nærri geta, hver áhrif slíkt hefur haft.
Nú á síðustu þingum hefur það verið höfuðviðfangsefnið að tryggja atvinnuvegunum rekstrargrundvöll. Okkar atvinnulíf er fábreytt: landbúnaður, sjávarútvegur og iðnaður. Á síðustu árum hefur miklu fé verið varið til eflingar og styrktar sjávarútveginum og einnig nokkru til iðnaðarins. Er það allt gott og blessað, meðan það getur gengið. En þegar litið er til landbúnaðarins, er strax nokkuð öðru máli að gegna. Hann hefur orðið mjög afskiptur á þessu sviði. Eftir stríðið höfum við aflað mikils skipastóls. 40–50 nýir togarar hafa verið keyptir til landsins og stór vélbátafloti og mikið af ýmiss konar vélum til þessa atvinnuvegar. Ber sízt að lasta þetta eða telja eftir. En því ber þó ekki að neita, að maður getur ekki verið óttalaus, ef mjög mikill hluti þjóðarinnar á að byggja afkomu sína á þessari einu atvinnugrein. Hvað iðnaðinum viðvíkur, er hann svo skammt á veg kominn, að við getum ekki sagt með réttu, að við getum byggt á honum útflutning okkar. Hitt er ljóst, að gott er fyrir okkur að geta framleitt iðnaðarvörur til eigin þarfa og jafnvel að geta stuðzt við útflutning iðnaðarvara. Íslenzka þjóðin hefur til skamms tíma byggt tilveru sína á landbúnaði. En eftir meiningu okkar hefur helzt til litið verið gert að því að styrkja landbúnaðinn með fé. Nú ber þó að viðurkenna, að á síðari árum hefur nokkurt fé verið veitt til ræktunar og annars slíks, en í allt of smáum stíl. Margar þessar framkvæmdir gefa ekki arð fyrr en eftir nokkur ár, og er því þörf mikils fjármagns til þessa atvinnuvegar. Nú, er svo háttar, að fólkinu fækkar, vex vélaþörfin að sama skapi, en þessar vélar koma ekki að gagni fyrr en búið er að búa jörðina undir komu þeirra. Er þess vegna auðséð, að kapp ber að leggja á að auka ræktunina, en slíkt er aðeins hægt með miklu fjármagni. Mótvirðissjóðurinn sjálfur kemur ekki að gagni fyrr en eftir nokkurn tíma og smátt og smátt, en helmingur hans, nokkuð á annað hundrað millj. kr., kemur þessum öðrum aðalatvinnuvegi þjóðarinnar að miklum notum. Þetta kann að vísu að þykja nokkuð há upphæð, en ræktun, uppbygging og rafmagn fyrir landið kostar geysimikið fé, og er fljótt að koma í hverja milljón. — Allt þetta kallar að og er óhjákvæmilegt, ef stöðva á fólksstrauminn til kaupstaðanna.
Það hefur kveðið að því nú upp á síðkastið, að fiskimiðin séu að ganga til þurrðar. Þessi stórvirku veiðitæki, sem nú er farið að nota, virðast ætla að eyðileggja fiskimiðin fyrr en nokkurn óraði fyrir. Nú virðist ætla að taka fyrir fiskigöngur inn í firði landsins og afkoma fólks í kauptúnum því næsta ótrygg, auk þess að erlendir markaðir eru mjög svo stopulir. Af þessu má ljóst vera, að þótt þakka beri og meta, hvers virði sjávarútvegurinn hefur verið þessari þjóð, og gott sé meðan vel gengur, að varasamt og ekki skynsamlegt sé að treysta á hann eingöngu. Þess gætir nú æ meir meðal manna, að öryggi starfseminnar við sjávarútveginn sé ónógt og fólk sé farið að hugsa meir til landbúnaðarins. En ef fólk ætlar að halda áfram að vera í sveitunum eða flytja þangað, er það óhugsandi án mikillar opinberrar aðstoðar, sökum þess að allt, sem þarf til að koma slíku af stað og koma fótum fyrir sig, er svo fjárfrekt í bili.
Ég held, að það sé nauðsynlegt fyrir Alþ. að taka einmitt þetta mál til alvarlegrar athugunar og að af þess hálfu verði aðgerðir hafnar í því. Ég veit að vísu, að ekki er hægt að taka mikið skjótfengið kapítal í landbúnaðinum, en öryggi þessa atvinnuvegar ætti að bæta það upp. Það, sem fyrst og fremst ber að sjá um, er, að þjóðin framleiði nóg fyrir sjálfa sig. Þjóð, sem byggir jafnharðbýlt land, þarf að lifa á kjarnmikilli og góðri fæðu. Hér er hægt að framleiða nóg af bæði kjöti og mjólk handa landsmönnum. Þetta er alveg bráðnauðsynlegt. en það er þó ekki nægilegt. Það verður að framleiða landbúnaðarafurðir til útflutnings líka, og er það þá ekki einmitt kjöt?
Íslenzk bændastétt hefur nú um skeið átt við mjög mikla erfiðleika að etja, þar sem sauðfjárpestir hafa herjað. Hafa þær dregið mjög úr miklum framleiðslumöguleikum. Nú vonar maður, að það heppnist að yfirstíga slíka erfiðleika og sú stund renni upp, að skepnur verði heilbrigðar á ný. Hvað sauðfjárrækt snertir, þá höfum við mjög góð skilyrði til þess að geta framleitt í mjög stórum stíl til útflutnings. Til Ameríku hefur verið flutt töluvert af kindakjöti bæði í fyrra og nú. Hefur það verið selt háu verði og líkað ágætlega. Mér hefur verið sagt, að eftirspurn hafi verið miklu meiri en við höfum getað látið í té. Skilyrði til sauðfjárræktar eru prýðileg hér á landi, ekki sízt með aukinni ræktun. Heiðalöndin okkar, með þeim kjarngróðri, sem þar vex, eru gullnámur þessa lands. Ef þau væru skynsamlega notuð, gætu þau orðið mikill ávinningur fyrir þjóðina í efnahagsmálum, bæði í nútíð og framtíð. Líka má geta þess, hvað snertir nautgriparækt, að þá yrði meira notað ræktað land til beitar. Þetta hvort tveggja getur greitt fyrir því, að við getum framleitt í miklu stærri stíl landbúnaðarafurðir en við höfum nokkru sinni gert. Eins ber að gæta þess, hvað snertir þá fjármuni, sem til þessa starfs renna, að það er ekki eingöngu fyrir líðandi stund, sem þeim peningum er varið. Þetta er nokkurs konar framtíðarsjóður, sem verið er að mynda með slíkum framkvæmdum. Oftast fer það svo með slíkar framkvæmdir, að þeir, sem við taka, njóta meira góðs af því, sem gert hefur verið, heldur en þeir, sem að unnu. Með slíkum framkvæmdum og umbótum er verið að gera landið betra og byggilegra fyrir óbornar kynslóðir, og að því leyti er ólíkt ástatt með slík verk og t. d. þar, sem veiðar eru stundaðar. Þar er rányrkja, sem getur gengið meðan móðir náttúra er rík og getur látið mönnum í té af auðæfum sínum, án þess að nokkuð komi í staðinn. Þegar hún er þurrausin, er þar ekkert að fá. Þetta er hinn mikli munur, sem vert er að hafa í huga, þegar á að vega og meta það, sem gera skal.
Ég ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þessa þáltill. Þó að þetta sé allmikil upphæð á okkar mælikvarða og miðað við það, sem tekin hefur verið ákvörðun um í einu, þá er þetta ekki nema dálítill hluti af öllu því, sem þarf til þeirra framkvæmda, sem ég tel nauðsynlegar í þágu þjóðarinnar. Með það í huga, að þetta er fyrst og fremst fyrir framtíð hennar og velferð, en ekki okkar líðandi stund, ætla ég að gera það að till. minni, að hæstv. forseti fresti umr. og málinu sé vísað til hv. fjvn.