24.10.1951
Sameinað þing: 6. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í D-deild Alþingistíðinda. (3197)

51. mál, mótvirðissjóður

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég gæti búizt við því, að hæstv. fjmrh. segði eitthvað um þetta mál hér, en ég sé, að hann ætlar sér ekki að taka hér til máls. Með því að hér er afar stórt mál á ferðinni, þykir mér eðlilegt, að umr. verði um málið. Hæstv. forseti hefur ákveðið aðeins eina umr. um málið, en þar sem um er að ræða á annað hundrað millj. kr., þykir mér nokkuð linlega tekið á jafnstóru fjárhagsmáli. Nú hefur hv. flm. óskað eftir, að því verði vísað til hv. fjvn. og umr. frestað, og tel ég það rétt, úr því sem komið er. Það hefði verið eðlilegt að hafa tvær umr. um málið.

Mér finnst það bera ákaflega lítinn ábyrgðarblæ, þegar fjöldamargir af stuðningsmönnum ríkisstj. bera fram á Alþ. ýmist þáltill. eða lagafrv. um að skipta stórum fjárfúlgum, sem verða til einhvern tíma í framtíðinni til þess að skipta. Hér er till. um að skipta mótvirðissjóði, en það kostar, að það yrði gert annaðhvort af handahófi eða með áróðri, án þess að menn viti, hvaða fé er að skipta. — Í öðru lagi eru hér till. um skiptingu á tekjum ríkisins 1951, eins og þær kunna að verða umfram gjöldin. Þetta er gert af stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj., sem ætla sér að bera meðábyrgð á fjármálum ríkisins. Ein af þessum till. er sú, sem hér er til umr. Mér sem formanni fjvn. finnst þessi vinnubrögð einkennileg og sýna, að borið sé sáralítið traust til ríkisstj., sem þessir menn styðja og eiga að bera traust til, bæði nú og í framtíðinni. Mig furðar á, að þessi till. skuli geta komið fram eins og hún er. Mér finnst ókleift að ákveða með þáltill. að skipta þessu fé á þessari stundu. Það þarf miklu meiri undirbúning frá hæstv. ríkisstj., til þess að hægt sé að taka um þetta ákvörðun. Koma þar ekki einungis til greina sjónarmið atvinnuvegar, hversu nauðsynlegt sem það er að styðja hann. Ég mótmæli alls ekki neinu af því, sem hv. flm. hefur sagt um nauðsyn landbúnaðarins. En ég vil benda á það, sem skeði nýlega í Ed. Var þar borin fram mjög sterk krafa um að uppfylla nú loforð, sem gefið var á Alþ. 1945 í bjartsýni um ágætan fjárhag. Það hafa verið aðalrökin í því máli, að það bæri að láta þetta mál ganga fyrir öðrum málum, þar sem því hefði verið lofað á Alþ. 1945. Nú hefur viðhorfið breytzt síðan og m. a. í þeim málum, og aðrar kröfur hafa komið fram, sem eiga ákaflega mikinn og kannske meiri rétt á sér en það, sem lofað var 1945. Þetta sýnir, hversu það er ákaflega óvarlegt af Alþ. að binda sig með loforðum eins og hér er ætlazt til, um á annað hundrað millj. kr. — Mér þótti rétt að láta þetta koma fram við þessar umr.

Þá vil ég einnig ræða nokkuð um meðferð hv. flm. á þessu máli. Hann hældi hér sem von var mjög landbúnaði sem atvinnuvegi og færði mörg rök að því, að hann ætti að styðja. Þetta er sannmæli hjá honum, svo langt sem það nær. En það er hægt að láta landbúnaðinn njóta sannmælis, án þess að sneiða að öðrum atvinnuvegum eða níða þá niður, en það stappaði nærri því, að hv. flm. gerði það viðkomandi sjávarútveginum. Hann minntist t. d. á, að það væri nú sannað, að hin stóru atvinnutæki, togararnir, hefðu þau áhrif, að fiskurinn gengi til þurrðar við strendur landsins. Það er ekki hægt að skilja annað af hans orðum en að þess vegna eigi að hætta að auka flotann og jafnvel helzt að selja þessi skip úr landi, a. m. k. væri hér ekki um eins mikinn bjargvætt að ræða og landbúnaðurinn væri. Taldi hann, að það væri mjög óvarlegt að treysta á þann atvinnuveg í framtíðinni. Aðvaraði hann þingheim um að fara varlega í það að eyða fé til sjávarútvegsins framvegis. — Nú vil ég benda hv. þm. á, að það er einmitt togaraflotinn, sem hefur margfaldað tekjur þeirra manna, sem stunda veiðar á togurum, ekki aðeins frá því, sem þeir höfðu áður við sama atvinnuveg, heldur í samanburði við þá, sem aðra atvinnuvegi stunda. [ Frh.]