14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í D-deild Alþingistíðinda. (3212)

51. mál, mótvirðissjóður

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð út af ummælum hv. 7. þm. Reykv. (GTh). — Hann ræddi um, að það hefði ekki verið meira átak að reisa Ljósafossstöðina fyrir stríð en Sogsvirkjunina nú. Ég meinti mín orð þannig, og held því fram enn, að það hafi verið meira átak miðað við okkar getu og efnahagsástæður. Ég sagði þetta vegna þess, að mér fellur illa sjálfsánægja hv. þm., þegar þeir eru að býsnast yfir þessum framkvæmdum. Sannleikurinn er sá, að þær eru gerðar allt of seint. Það þarf að vera búið að fullgera þriðju virkjunina 1954 til þess að fá áburðarverksmiðjuna. Það hefði verið praktískt að byrja á henni næsta sumar, vegna þess að búið er að flytja upp eftir vélar. Til þess að geta verið búnir að koma áburðarverksmiðjunni upp 1954, — og því verðum við að vera búnir að, — þá þarf að vinna að þriðju virkjuninni næstu 2–3 árin.

Það, sem hv. þm. var að tala um, að borgað væri inn af lánum, á að réttu lagi ekki að renna í mótvirðissjóð, eins og hann talaði um, heldur beint í ríkissjóð eða nýjan sjóð, sem stofnaður yrði í þessu sambandi til eflingar atvinnuvegunum, og væri það kannske betra. Það heyrir undir Alþ. og ríkisstj. að ráðstafa lánum, sem greidd eru úr mótvirðissjóði. Og það mál, sem ágreiningur er nú um, að vextir af útlánum úr sjóðnum eru 51%, hlýtur að koma hér fyrir Alþ. Mig langar bara til að vita, hvort hæstv. ríkisstj. gerir ráðstafanir til þess, að þetta mál komi fyrir Alþ., eða hvort þm. verða að eiga að því frumkvæðið.

Hæstv. landbrh. sagðist taka þetta mál alvarlega eins og hv. þm. Borgf. Og landbrh. sagði, að ef þetta yrði samþ. eins og hér er lagt fyrir, yrði að skoða þetta sem viljayfirlýsingu Alþ. Þetta þýddi þá, að um þetta yrðu gefin út brbl. af ríkisstj. Og nú skil ég vel það, sem hv. þm. Borgf. talaði um þetta mál. Hann vill, að út verði gefin brbl. um þetta. Þetta verða þm. að gera sér ljóst, og hv. fjvn. þarf að tala málið til athugunar frá því sjónarmiði.