14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 147 í D-deild Alþingistíðinda. (3216)

51. mál, mótvirðissjóður

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Þetta kemur dálítið flatt upp á mig, því að um þetta mál hefur ekkert verið rætt í ríkisstj. En ef samþykkt þessarar þáltill. á að hafa það í för með sér, sem hæstv. landbrh. gat um í sinni ræðu, þá verður þingheimur að gera sér grein fyrir því, hvað hann er að samþykkja. Ég álít, að á þessu stigi sé ekki hægt að semja slíka yfirlýsingu sem þessa um mótvirðissjóð, sem bindur notkun hans framvegis. Ég vil benda á það, sem reyndar öllum er kunnugt, að þegar er búið að ráðstafa miklum hluta af sjóðnum, og þessi till. getur ekki staðizt að því leyti, að meira en helmingur af mótvirðissjóði er nú bundinn og búið að veita til virkjana og áburðarverksmiðju, og það má segja, að það, sem veitt er til áburðarverksmiðjunnar, fari til landbúnaðarins. Ég er ekki að segja þetta af andúð til hagsmuna landbúnaðarins, en það er ekki hægt að afgr. þetta mál með einni þáltill., ef menn hugsa sér, að hér sé farið að eins og hæstv. landbrh. lýsti hér áðan.