14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í D-deild Alþingistíðinda. (3219)
51. mál, mótvirðissjóður
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Það virðist ekki vera vanþörf á því að ræða þessa þáltill. dálítið lengur og að málið fari til n., því að hér kemur fram eitt og annað, sem n. þarf að athuga og hafa í huga, þegar hún athugar þessa till. — Það var rétt, sem hæstv. viðskmrh. sagði, að þingheimur yrði að gera sér grein fyrir, um hvað hann væri að greiða atkv. Það er augljóst, að hugir hæstv. ráðh. stefna nokkuð sitt í hverja áttina í þessu máli. En yfirlýsing hæstv. landbrh. var skýr og sköruleg og á þá leið, að hann liti á sig sem landbrh. bundinn af vilja Alþ., ef þessi till. verður samþ., og hann mundi krefjast af ríkisstj., að hún tæki upp samninga til þess að fá fé varið í þessu skyni og fá þetta síðan staðfest með l. Þá sagði hæstv. ráðh., að hann teldi þessa þáltill. markleysu eina, ef ekki ætti að fara eftir vilja Alþ. Þetta er skýr og glögg afstaða. Þeir, sem taka þessa þáltill. sem ábendingu til ríkisstj., ætlast til þess, að það verði tekið til vinsamlegrar athugunar, hvort hægt verði að veita fé til landbúnaðarins, þegar fé verður næst ráðstafað úr mótvirðissjóði eða þegar það verður tiltækt til slíkrar ráðstöfunar eins og segir í þáltill. (GJ: Eftir 20 ár.) Eftir 20 ár, segir hv. þm. Barð. Það veltur á miklu, hvernig mótvirðissjóði er ráðstafað, og mér virðist ekki nokkurt vit í að gera nú slíka ráðstöfun hans sem hér um ræðir bindandi. Ég greiði því atkv. á móti þessari till. við síðari umr., ef til kemur. Hins vegar ber hæstv. ríkisstj. skylda til að undirbúa till. sínar um það, hvernig hún telur fé sjóðsins varið á hagnýtastan hátt fyrir landsmenn. Ég vildi ráða hæstv. ráðherrum til þess að ræða enn betur sín á milli um stórmál eins og þetta, þegar um 200 millj. kr. er að ræða, þannig að þingheimur geti vitað, hverju hann á að trúa, en hæstv. ráðh. rísi ekki upp og einn segi, að þetta eigi að skoðast bindandi samþykkt, en annar segi, að þetta sé vinsamleg bending til ríkisstj.