16.01.1952
Sameinað þing: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í D-deild Alþingistíðinda. (3227)
51. mál, mótvirðissjóður
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Það hefur nú orðið, eins og komið hefur hér fram í umr., mjög mikil breyt. á þessari till., sem hér liggur fyrir, a. m. k. eftir þeirri meiningu, sem hv. flm. og hv. meiri hl. fjvn. leggur í hana. Þegar hún var lögð hér fram, var hún till. um það að ráðstafa helmingi þess fjár, sem væri í mótvirðissjóði, þegar búið væri að greiða úr honum það fé, sem þegar hefur verið samþ. með l., hvert renna skuli. Þetta ætla ég, að hafi verið skýrt í upphafi. Upphaflega gat till. ekki þýtt neitt annað en ályktun til ríkisstj. um að gera ráðstafanir til, að varið yrði helmingi þess fjár, sem eftir yrði í mótvirðissjóði, þegar Marshallaðstoðinni lyki, enda leit hæstv. landbrh. svo á, er hann gaf þá yfirlýsingu í ræðu sinni á dögunum um þetta mál, að hann mundi um leið og þessi till. hefði verið samþ. vinna að því, að gerð yrðu brbl. um þessa fjárveitingu, eftir að fengið hefði verið samþykki Marshallstofnunarinnar í Washington. Ég vil vekja athygli á, að hæstv. landbrh. hefði ekki gefið þessa yfirlýsingu, nema um hefði verið að ræða ráðstöfun þess fjár, sem eftir verður í mótvirðissjóði, þegar Marshallaðstoðinni lýkur og greidd hafa verið úr honum þau fjárframlög, sem þegar hafa verið samþ. með l. Hæstv. landbrh. hefur að sjálfsögðu verið ljóst, að það þarf ekkert samþykki frá Washington um það, hvernig skuli ráðstafa því fé, sem kemur inn við endurgreiðslu þeirra lána, sem ríkisstj. hefur veitt úr sjóðnum og samþykki Marshallstofnunarinnar hefur verið fyrir. Þannig álít ég, að upphaflega hafi ekki verið um neitt annað fé að ræða en það, sem eftir yrði í mótvirðissjóði, þegar Marshallaðstoðinni lýkur. — Síðan er nú farið að ræða þetta mál á allt öðrum og betri grundvelli, a. m. k. að því er virðist vaka fyrir hv. meiri hl. fjvn. Nú er gert ráð fyrir, að till. fjalli um að ráðstafa því fé, sem kemur inn, þegar farið verður að endurgreiða þau lán, sem ríkisstj. hefur veitt úr mótvirðissjóði. Það er það, sem verið er að ræða um núna, að því er mér skilst á grg. meiri hl. fjvn. En þá álit ég, að orðalagið á tillgr. meiri hl. nái alls ekki þeim tilgangi, sem virðist vaka fyrir n. Í tillgr. stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir til þess, að mótvirðissjóði verði, þegar fé hans er tiltækt til slíkrar ráðstöfunar, varið til lánastarfsemi að hálfu í þágu landbúnaðarins og að hálfu til eflingar framleiðslu og framkvæmdum fyrir kaupstaði og kauptún.“
Hér er aðeins tekið fram, að um sé að ræða fé úr mótvirðissjóði, þegar fé hans sé tiltækt til slíkrar ráðstöfunar. Þetta er mjög ágreinilegt orðalag, og má skilja það á fleiri en einn veg. Þar sem sagt er: „þegar fé hans er tiltækt til slíkrar ráðstöfunar,“ — getur eins vel þýtt það, að því fé, sem afgangs yrði, þegar búið er að veita þau lán úr sjóðnum, sem nú eru ákveðin, og þegar að því kæmi, að hægt væri að ráðstafa þessum afgangi, þá skuli því varið til þessara hluta, sem í till. greinir, því að það hefur ekki enn, svo að ég viti, verið tekin nein ákvörðun um það, að endurgreiðslur og vextir af þeim lánum, sem ríkisstj. hefur veitt úr mótvirðissjóði, skuli renna í mótvirðissjóð. Um þetta hefur engin ákvörðun verið tekin af hálfu Alþ. — Nú skal ég viðurkenna, að ég veit ekki, á hvern hátt eða með hvers konar skilmálum ríkisstj. hefur lánað það fé, sem nú hefur verið lánað úr mótvirðissjóði, en nær er mér að halda, og mér finnst það eðlilegast, að sá aðili, sem lánar úr mótvirðissjóði, sé ríkissjóður, og efast ég um, að í þeim lánssamningum, sem nú hafa verið gerðir um þetta fé, standi annað en það, að þessi lán skuli greidd ríkissjóði til baka. Um þetta get ég að sjálfsögðu ekkert sagt með vissu, þar sem mér er þetta atriði ekki kunnugt. Það hafa aldrei verið sett lög um það, að þessi lán skyldu endurgreiðast í mótvirðissjóð. Hins vegar hafa þessar ákvarðanir verið teknar, að lána fé úr mótvirðissjóði, og það er ríkisstj., sem hefur lánað það, og býst ég þá við, að lagalega skuli endurgreiðslur á þessum lánum renna í ríkissjóð, og yrði því fé síðan varið eftir venjulegum reglum. Þetta held ég að sé lögfræðilega rétt skoðun. Það þýðir, að eftir meiningu þeirri, sem kemur hér fram hjá meiri hl. fjvn., er hér verið að taka ákvörðun um alveg sérstaka ráðstöfun þessa fjár, sem væntanlega á að renna í ríkissjóð, hvort sem við viljum kalla það mótvirðissjóð eða annað. M. ö. o., hér er verið að taka ákvörðun um það, að þegar þetta fé er greitt til baka, skuli það renna til sérstakrar notkunar. En þetta fæ ég ekki séð að komi greinilega fram, eins og brtt. hv. meiri hl. fjvn. er orðuð, þótt þessi meining kæmi ótvírætt fram hjá hv. frsm. meiri hl. og í nál. hans. En í sjálfri tillgr. fæ ég ekki séð, að þetta komi fram. Þarna vantar alla ákvörðun um, að það fé, sem ríkisstj. hefur lánað úr mótvirðissjóði, skuli endurgreiðast í hann aftur, og því væri viðkunnanlegra, að brtt. meiri hl. væri greinilega orðuð um það, hvaða fé væri um að ræða. Auk þess hef ég áður látið þá skoðun mína í ljós, að ég tel ekki nægilegt, að endanleg ákvörðun Alþ. um ráðstöfun þessa fjár sé aðeins gerð með þál. Til þess að ráðstafa þessu fé þarf lög, og því er það lögfræðilega rétt, sem fram kemur í brtt. minni hl. fjvn., að rétt sé að undirbúa lög um þetta. Þessi afgreiðsla, sem meiri hl. leggur til, getur aldrei orðið annað en viljayfirlýsing Alþ.
Ég vil svo vekja athygli á því, sem hæstv. landbrh. sagði í sinni ræðu og tekur af öll tvímæli um það, að hann ætlar að skilja brtt. meiri hl. á allt annan hátt en virðist vaka fyrir meiri hl. fjvn. Meiri hl. hefur lýst sinni meiningu í nál. svo, að þessi þál. nái yfir ráðstöfun á afborgunum og vöxtum þeirra lána, sem úr mótvirðissjóði hafa verið veitt. Þetta kemur skýrt fram í nál. hv. meiri hl., að hann leggur þennan skilning í till. Það sé ekki þarna um
hinn eiginlega mótvirðissjóð að ræða, heldur það fé, sem kemur inn vegna lána úr honum. Hæstv. landbrh. segir hins vegar: Ég vil skilja þessa till. svo, að hún feli í sér áskorun til ríkisstj. um að sjá svo til, að því fé, sem afgangs yrði í mótvirðissjóði, yrði varið til landbúnaðarins. — Í þessari yfirlýsingu kemur fram tvöfaldur árekstur við auðsæjan tilgang hv. meiri hl. fjvn. með till. Í fyrsta lagi sá, að till. taki aðeins til hluta þess fjár, sem er í mótvirðissjóði nú, og þarna styðst hæstv. landbrh. við óheppilegt orðalag brtt. Í öðru lagi rekst þessi yfirlýsing hæstv. ráðh. á sjálfa brtt., vegna þess að hann virðist líta svo á, að verja skuli öllu þessu fé til landbúnaðarins, en í brtt. er gert ráð fyrir, að helmingurinn gangi til landbúnaðarins og helmingur til kaupstaða og kauptúna. Ég vil því benda á, að þegar skilningur hæstv. landbrh. á brtt. er svo frábrugðinn skilningi hv. meiri hl. fjvn., eins og hann kemur fram í nál., þá virðist nauðsynlegt, að brtt. verði breytt, svo að tryggt verði, að hún verði framkvæmd í samræmi við vilja meiri hl.
Ég vil svo benda á það, að þrátt fyrir ótvíræða yfirlýsingu hæstv. landbrh. um, að Íslendingar gætu einir ráðstafað eftir vild því fé, sem kemur inn með endurgreiðslum á lánum úr mótvirðissjóði, þá getur samt verið vafasamt að láta þessar endurgreiðslur, sem og vextina af lánunum, renna í mótvirðissjóð. Nú hefur verið veitt úr mótvirðissjóði 50 millj. kr. til afborgana á lánum ríkisins, enn fremur 120 millj. kr. til Sogs- og Laxárvirkjananna og áburðarverksmiðjunnar, og innan skamms mun koma fram till. um að hækka um 95 millj. kr. lánin til þessara þriggja fyrirtækja. Þetta þýðir, að þá er búið að ráðstafa 265 millj. kr. úr mótvirðissjóði, en gert er ráð fyrir, að hann verði 340 millj. kr. allur. Það verða því eftir í sjóðnum 75 millj. kr., þegar búið er að samþ. þessar 95 millj. til Sogs- og Laxárvirkjananna og áburðarverksmiðjunnar. M. ö. o., enn þá eru eftir í mótvirðissjóði 75 millj. kr. til ráðstöfunar fyrir Alþ., og gerum nú ráð fyrir, að þetta þing yrði rofið, sem engan veginn er óhugsanlegt, eftir þeim upplýsingum, sem komið hafa fram frá hæstv. ráðh., og kosningar færu fram og nýtt þing kæmi saman og það þing vildi ráðstafa þessu fé eitthvað öðruvísi en við viljum. M. a. vildi það kannske ekki ráðstafa meiru úr sjóðnum, heldur geyma peningana, eins og þekkzt hefur meðal ýmissa fjármálamann. Ef við værum nú búnir að taka ákvörðun um, að endurgreiðslur á lánum úr mótvirðissjóði skyldu renna aftur í mótvirðissjóð, mundi það geta valdið hættulegum ruglingi, að þeim mótvirðissjóði yrði þá kannske ruglað saman við hinn upprunalega mótvirðissjóð, eða þá við væntanlegan hernaðarsjóð, eins og hv. minni hl. fjvn. bendir á. Enn fremur væri hugsanlegt, að efnahagsstofnunin í Washington styngi upp á því, að þessar 75 millj. kr. yrðu notaðar til annarra hluta en Alþ. vildi samþ. Það gæti þannig skapazt deila um þessar 75 millj. kr., sem eftir er að ráðstafa úr mótvirðissjóði. Því er það mjög óheppilegt að láta þessar endurgreiðslur renna aftur í mótvirðissjóð og rugla með því saman reikningum.
Ef svo færi, að þessar 75 millj. héldu áfram að vera til og standa í sjóðnum, um leið og rúmar 265 millj. rynnu í sjóðinn til viðbótar, þá verður ómögulegt að greina þarna á milli, ómögulegt að vita, ef ríkisstj. vildi t. d. verja 50 millj. kr. úr honum til landbúnaðarins, hvort við Íslendingar getum ráðið því sjálfir eða þyrftum að leita ráða um það til Ameríku. Það er því óhæft að fara að rugla þarna saman reytum, og fæ ég ekki skilið, af hverju menn vilja það. Ég álít, að við megum ekki gefa efnahagsstofnuninni í Washington, eða þeirri stofnun sem kemur til með að erfa völd hennar, tangarhald á því fé, sem allir eru sammála um, að Íslendingar eigi einir að ráða yfir. Og að láta endurgreiðslur á lánum úr mótvirðissjóði renna í hann aftur getur aldrei orðið nema til að rugla þessum málum, enda er mér ekki kunnugt um, að ríkisstj. hafi gert neinar ráðstafanir í þá átt. Við höfum oftlega verið varaðir við að láta ekki útlendinga ná tangarhaldi á okkur á neinn hátt með samningum eða ráðstöfunum, og ég held því, að það sé mjög þýðingarmikið, þegar nú allt Alþ. er sammála um, hvernig þessum 300–400 millj. kr. skuli varið, að við göngum svo frá þessum málum, að allt sé skýrt og ótvírætt. Þess vegna álít ég brtt. hv. minni hl. fjvn. eðlilega og rétta í þessu sambandi, og a. m. k. ætti ríkisstj. ekki að þurfa að kvarta yfir henni, þar sem þar er gert ráð fyrir, að hún undirbúi málið.
Þetta vildi ég sagt hafa um orðalag brtt. hv. meiri hl., og ég vona, þótt okkur kunni að greina á um formsatriði þessara mála, að þá verði ekkert því til fyrirstöðu, að hv. meiri hl. verði reiðubúinn til að ganga svo frá orðalagi sinnar brtt., að um engan misskilning geti orðið að ræða.