16.01.1952
Sameinað þing: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (3231)
51. mál, mótvirðissjóður
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal nú ekki hafa eins hátt og hinir hv. þm. — Hv. þm. Borgf. tók það skýrt fram, að till. væri flutt af meiri hl. fjvn., og óskaði hann samþykkis á henni. Tilgangur n. með þessari lagasetningu er á því stigi, að mig undrar, að ríkisstj. skuli vilja láta bera slíkt fram. Skoðanamunur er talsverður á milli mín og hv. frsm. varðandi meðferð þessa máls. Ég tel óheppilegt að búta féð svona niður, án þess að þrauthugsuð stefna hafi verið mörkuð um heildarmeðferð þess. Eðlilegra væri, að Alþ. ráðstafaði þessu fé, en það verði ekki sett í vald ríkisstj. að ráðstafa því. Það ætti að setja um þetta löggjöf, þar sem ýtarlega væri tekið fram, til hvers fénu skyldi varið, með hvaða vaxtakjörum o. s. frv. Ef þetta er ekki gert, getur hvaða ríkisstj. sem er ráðstafað fénu eftir vild sinni og geðþótta. Ég skal ekki hefja deilur varðandi ákvarðanir um, að nota skuli þessi fjárframlög til fjósbygginga eða annars. Hins vegar er nú mikið talað um að beizla jarðhita og vatnsorku til hitunar og aukinnar iðnaðarstarfsemi á ýmsum sviðum. Talað hefur verið um byggingu mikilla vatnsorkuvera, t. d. við Þjórsá. Mætti nú ekki gera ráð fyrir, að hagkvæmt yrði að nota hluta þessa fjár hér? Og hvað um jarðhitavirkjanir? Gætu þær ekki orðið hagkvæmari landbúnaðinum en ýmislegt annað? Orðalag þessarar till. er of óákveðið, — þetta, að helmingur fjárins skuli renna til landbúnaðarins, en hinn hlutinn til framkvæmda í bæjum og borgum.
Ég get svo látið þetta nægja, en vil undirstrika, að réttara er, að Alþ. ráðstafi fénu, en að það sé sett í vald ríkisstj.