08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í D-deild Alþingistíðinda. (3250)
64. mál, veðlán til íbúðabygginga
Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):
Herra forseti. Till. sú, sem ég ber hér fram á þskj. 90, er um veðlán til íbúðabygginga í kaupstöðum og kauptúnum. — Eins og mönnum er kunnugt, er nú starfandi nefnd, sem vinnur að endurskoðun bankalöggjafarinnar, og mun það vera starf hennar að koma skipulagi á peningamál þjóðarinnar í framtíðinni. Hér er lagt til í þessari till., að Alþ. álykti að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að þessi sérstaki liður peningamálanna verði tekinn upp í hina nýju bankalöggjöf, þ. e. a. s., að gerðar séu ráðstafanir til þess, að þeir, sem byggja í kaupstöðum og kauptúnum nauðsynlegar íbúðir, geti fengið til þeirra hæfileg 1. og 2. veðréttar lán með viðunandi kjörum. En svo sem kunnugt er, skortir mjög á, að slík lán séu fáanleg, eins og komið hefur skýrt fram í þeim umr., sem hér hafa farið fram nú og fyrir nokkru. Það hefur einnig komið fram, sem raunar allir vissu, að veðdeild Landsbankans, sem hafði ákveðnu starfi að gegna í þessum málum, hefur á síðari árum reynzt ómegnug þess að framkvæma það starf. Og þrátt fyrir það að þessi stofnun Landsbankans ynni á sínum tíma ágætt starf með lánveitingum sinum, þá má nú segja, að það sé alveg niður fallið nú, og liggja til þess ýmsar orsakir og þá fyrst og fremst það, að lánin eru svo lág, sem veðdeildin veitir, að þau hafa litla þýðingu, miðað við þann mikla byggingarkostnað, sem nú er. Og það er einnig vitað, að aðrar lánsstofnanir lána svo sem ekki út á íbúðarbyggingar. En það er jafnframt þekkt fyrirbrigði, að falsvert er af fé í umferð og fé, sem bankarnir mundu sjálfir hafa viljað halda til útlánastarfsemi, sem beinlínis er tekið úr sparisjóðsdeildum bankanna og lánað svo út með mjög háum vöxtum, jafnvel okurvöxtum. — Það er gengið út frá því í till., að verkefni þessarar stofnunar, sem í till. er gert ráð fyrir, verði að veita lán og jafnframt að útvega fé til þessarar lánastarfsemi, og sú útvegun væri fyrst og fremst fólgin í því að hafa hendur á því fé, sem er óumdeilanlega í umferð til þessara hluta, en fer ekki gegnum bankana, heldur gegnum allt aðrar hendur, og sömuleiðis að útvega innlent fé til þessarar starfsemi. Enn fremur má hugsa sér, þegar starfsemi sem þessi væri komin í öruggar hendur, að það gæti tekizt að útvega erlent fjármagn til útlána. Og æskilegast væri, að það ástand mætti skapast, sem maður getur fremur látið sig dreyma um, eins og nú er, heldur en að það sé þekkt hér hjá okkur, að hver maður, sem byrjar að byggja íbúð, geti nokkurn veginn gengið út frá því, hvaða fé hann geti haft til ráðstöfunar út á 1. og 2. veðrétt í húsi sínu, og geti nokkurn veginn vitað, hvað hann þarf til afborgana á láni til hússins og á hve löngum tíma hann geti borgað það. — Ég læt þessi orð nægja um till. að þessu sinni. Ég leyfi mér að óska þess, að þáltill. verði vísað til hv. fjvn.