17.01.1952
Sameinað þing: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (3256)

64. mál, veðlán til íbúðabygginga

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég hef ekki skrifað undir nál. á þskj. 610 og ekki heldur gefið út sérstakt nál. Óska ég ekki, að hæstv. forseti fresti málinu þess vegna. Það liggja nú fyrir þinginu ýmsar till. og frv. um þessi mál. Flest af þeim eru borin fram til auglýsingastarfsemi, en ekki til þess raunverulega að bæta úr í þessu efni, það er alveg sýnilegt. Þessi mál eru öll í höndum ríkisstj. til athugunar og þeirra aðila sem hún hefur til þess valið.

Ég hafði hugsað mér að leggja fram till. um að vísa þessari till. til stj., en fell frá því og mun ekki greiða atkv. um málið, þegar það kemur til atkv.