16.01.1952
Sameinað þing: 33. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í D-deild Alþingistíðinda. (3269)

173. mál, ríkisaðstoð vegna atvinnuörðugleika

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. þm. Barð. tók svo til orða, að það væri aumingjalegt, ef bæjarstjórn Ísafjarðar gæti ekki séð til þess, að togararnir væru notaðir til atvinnuaukningar í bænum. (GJ: Það sagði ég ekki. Ég sagði, ef það væri ekki gott fyrir Ísafjörð að hafa togarana.) Ég skildi hv. þm. svo, að hann hefði átt við, að togararnir væru notaðir til atvinnuaukningar. Skýringin á þessu er einföld. Í stjórn togarafélagsins eru 5 menn, 3 þeirra eru kosnir hlutbundnum kosningum af bæjarstjórninni, en hinir tveir af öðrum hluthöfum. Venjan hefur orðið sú, að samvinna hefur tekizt milli fulltrúa hluthafa í stjórninni og þess fulltrúa, sem Sjálfstfl. hefur kosið í bæjarstjórninni. Þeir hafa því haft meiri hl. í stjórninni. Stjórn togarafélagsins mun líta svo á, að eins og nú er ástatt á Ísafirði, sé ekki álitlegt að leggja upp aflann þar. Í bænum eru tvö smá frystihús, en fiskimjölsverksmiðjan brann í haust. Stjórn félagsins hefur vísað til þess, að sumt af aflanum verður að keyra til Bolungavíkur til vinnslu, en það er erfitt um þetta leyti árs og kostnaðarsamt. Ég hygg þó, að ef bæjarstjórnin ein hefði hér ráðin, þá mundi hún leggja meiri áherzlu á að skapa atvinnu í bænum en stjórn togarafélagsins gerir nú. En lausnin á þessum vanda er auðsæ, og hún er sú, að komið verði upp hæfilega stóru fiskiðjuveri til að hagnýta aflann.

Um undirbúning þessa máls vil ég segja það, að meðan nýbyggingarráð starfaði, var gerð áætlun af Ísfirðingum um stofnun fiskiðjuvers, og taldi form. nýbyggingarráðs, að ekki hefði annað mál komið betur undirbúið til nýbyggingarráðs. Málið var þó látið sitja á hakanum og hefur ekki fengið neinn stuðning. Hitt er ljóst, að ástandið er nú svo alvarlegt á Ísafirði, að þar stefnir beint í stórkostlegan voða, ef ekkert er aðhafzt, og neyð er nú ríkjandi í bænum. Ég er því fyllilega sammála, að ástæða sé til þess, að Siglufjörður fái þennan stuðning, þó að hæstv. ríkisstj. hafi gert margt fyrir Siglufjörð áður, en ég álít, að hér væri mismunað. ef Ísafirði væri synjað um það sama. Ef hæstv. ríkisstj. kynnir sér undirbúning þessa máls, þá hygg ég, að hún muni komast að raun um, að á honum má byggja.

Ég get ekki skilið svo við þetta mál, að ég ekki spyrji hæstv. ríkisstj., hvað hún hefur í huga að gera varðandi ástandið í Reykjavík. Hæstv. ráðh. hefur lagt áherzlu á, að þessi till. sé flutt vegna hins ískyggilega ástands á Siglufirði. Nú er hæstv. ríkisstj. kunnugt, að í Reykjavík er stórfellt atvinnuleysi. Sumir telja, að fast að 3000 manns séu atvinnulausir, en hver sem talan verður við næstu skráningu, er það víst, að ástandið er ekki viðhlítandi. Ég efa ekki, að hæstv. ríkisstj. hafi gert sér þetta ljóst, svo glöggskyggn sem hún er á þarfir Siglufjarðar, er það ótrúlegt, að hún hafi beint blinda auganu að Reykjavík. Þess verður að mega vænta, að hún hafi rætt þetta við borgarstjórann í Reykjavík og bæjarstjórnina, sem eru aðilar að málinu. Það hefur nýlega verið lagt fram frv. hér á Alþ. um ráðstafanir til þess að ráða bót á þessu, en það, sem næst liggur fyrir, er að finna úrræði til að bæta úr bráðri neyð, sem byrjuð er að gera vart við sig og magnast, ef þúsundir manna ganga atvinnulausar. Það, sem mest mundi um muna, væri, ef gerðar væru ráðstafanir til þess, að sem flestir togaranna legðu afla sinn upp hér til vinnslu, svo að full atvinna væri á öllum verkunarstöðvum. Þetta mál þarf að athuga, og bæjarstjórnin mun hafa það til athugunar og sjálfsagt önnur úrræði líka, en hvað langt þessum málum er komið er mér ekki kunnugt. Ríkisstj. ætti að veita úrræðum bæjarstjórnarinnar alla þá fyrirgreiðslu, sem hún getur, m. a. með því að útvega rekstrarfé í bönkunum til vinnslu aflans, því að ýmsir hafa haldið því fram, að ekki sé unnt að vinna úr aflanum vegna skorts á rekstrarfé.

Á fjárlögunum nú er nokkurt fé veitt til byggingarframkvæmda í bænum, m. a. 1 millj. kr. til byggingar iðnskóla. Mikill fjöldi iðnaðarmanna gengur nú atvinnulaus, sem þar gæti fengið verk að vinna, því þó að útivinna sé torveld nú, er auðvelt að vinna inni. Hæstv. ríkisstj. gæti greitt úr fyrir allmörgum, ef fjárveitingin væri bundin því skilyrði, að vinna hæfist þegar. Nokkurt fé hefur verið veitt til byggingar heilsuverndarstöðvar, og mætti athuga, hvort einhver innivinna er ekki hugsanleg í sambandi við hana. Þá mun vera byrjað á að grafa grunninn að bæjarspítalanum, og er það einnig til athugunar, hvort hægt er að hefja vinnu þar. Í öllu þessu getur hæstv. ríkisstj. létt undir með bæjarstjórninni, og ég vildi mega vænta þess, að hæstv. ríkisstj. léti okkur heyra, hvort hún ætlar að gera eitthvað í þessum efnum eða hvort hún ætlar að loka augunum og hafast ekkert að. Það væri óskiljanlegt og óverjandi, ef hún hefði ekki hug á því að bæta úr atvinnuleysinu í Reykjavík, því að þar er svipað ástatt og á öðrum stöðum.