23.01.1952
Sameinað þing: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (3281)
173. mál, ríkisaðstoð vegna atvinnuörðugleika
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þessi till. á þskj. 623 mun vera borin fram af hæstv. forsrh. og hæstv. atvmrh. og er um að heimila ríkisstj. að verja af ríkisfé allt að 1½ millj. kr. til að koma upp hraðfrystihúsi á Siglufirði, og verði þess talin þörf, þá að ábyrgjast allt að 1½ millj. kr. til þessara framkvæmds. Við fyrri umr. málsins kom einnig fram brtt. á þskj. 630 frá hv. 6. landsk. þm. þess efnis, að Ísafjörður yrði einnig látinn njóta sömu hlunninda. Jafnframt kom brtt. á þskj. 659 frá hv. 4. þm. Reykv. og hv. 3. landsk. þm., þar sem þeir óska eftir, að þetta verði látið verða víðtækara og ná til kaupstaða og kauptúna almennt.
Þessum brtt. var ásamt þáltill. vísað til fjvn. þann 17. þ. m., og hefur n. rætt þetta mál allýtarlega og einnig þær till., sem bornar voru fram af öðrum þm., og þær, sem komu fram við síðustu umr. Þótti ekki gerlegt að afgreiða till. þannig, að taldir væru upp einstakir staðir á landinu. Að vísu fór mjög róttækur undirbúningur fram á Siglufirði, og aðrir þm. töldu, að einnig hefði farið fram allverulegur undirbúningur í sambandi við kröfur um atvinnu á þeim stöðum.
Ef þessi till. hefði verið samþ. eins og hún kom fram, þá þótti fullvíst, að fljótt mundu berast að hróp um aðstoð víðar frá, því að eins og öllum er kunnugt eru atvinnumálin víðar alvarleg en á Siglufirði, svo að ástæða er til að ræða þau á sama grundvelli. Nefndinni þótti því rétt að breyta till. og gera hana almennari en sú var, sem borin var fram á þskj. 623. Eftir að hafa rætt þetta á fundi innan n. og sömuleiðis við ríkisstj. þótti einsýnt að hafa till. almennara eðlis og treysta því, að ríkisstj. sinnti þeim beiðnum, sem berast kynnu um aðstoð til atvinnuaukningar, jafnóðum og þær bærust. Kemur þá til hennar kasta að sinna bæði Siglufirði og Ísafirði, svo og þeim stöðum öðrum, sem svipað er ástatt um og hjálpar beiðast. Um þessi atriði var n. algerlega sammála, en hins vegar kom fram sú skoðun innan n., að þessi aðstoð skyldi vera bundin vissum skilyrðum, og gaf minni hl., hv. þm. Borgf., út sérstakt nál., og mun hann skýra sína afstöðu sérstaklega. Ýmsir aðrir vildu einnig setja skilyrði, en um þau varð ekkert samkomulag, en hins vegar var sett inn í till., að ríkisstj. skyldi geta sett þau skilyrði, sem hún teldi nauðsynleg, svo sem um mótframlög og annað. Það getur verið mikil aðstoð, þó að ekki sé allt lagt fram og eitthvað verði að leggja fram af mótframlögum, en það er erfitt að skilgreina það í stuttri þáltill., svo að heppilegra þótti að vísa aðeins til ríkisstj. með það atriði.
Ég get ekki látið hjá líða að taka nokkuð til athugunar, að það verði sett sem skilyrði fyrir framlagi, að ekki standi á þeim stöðum, sem veita á stuðning, yfir verkföll á sama tíma og verið er að veita þeim fé til atvinnuaukningar. Forsrh. sagði, að það væri erfitt að gera þetta að skilyrði. En það er mín skoðun, að það sé nauðsynlegt að setja það skilyrði, að ekki sé verið að gera tilraunir til að stöðva atvinnuvegina á sama tíma og verið er að leggja fram til þeirra fé til að halda þeim gangandi. Það þótti hins vegar ekki rétt að setja þetta skilyrði í till.
Það er kunnugt, að það kom til mála á Siglufirði að binda þessa aðstoð við síldarverksmiðjur ríkisins. Þetta kemur að vísu ekki fram í till. n., en hins vegar er það almenn skoðun, að þessu verði bezt háttað með því, að það verði haft í sambandi við þær. En hv. þm. Borgf. vildi ekki fylgja málinu, nema það væri gert að skilyrði, að þetta yrði ekki gert, og vill hann binda aðstoðina því skilyrði, að þetta sé veitt annaðhvort einstaklingum eða félögum á viðkomandi stöðum. Hins vegar er meiri hl. á þeirri skoðun, að óheppilegra sé að binda þetta svo við ákveðin fyrirtæki, og telur, að ekkert sé því til fyrirstöðu, að þetta sé látið vera í sambandi við síldarverksmiðjur ríkisins, ef því er haldið frágreindu. Þetta getur og haft þau áhrif að létta undir með þeim á þeim tíma, sem ekkert er þar að gera í sambandi við síldveiðarnar, og má þá um leið nota hús þeirra og vélar og starfsfólk til þessara framkvæmda. Þessi tvö sjónarmið geta þess vegna fallið saman, að létta undir með síldarverksmiðjum ríkisins og að bæta úr atvinnuástandinu á þessum stöðum. Meiri hl. vill þess vegna leggja það í vald ríkisstj., á hvern hátt hún ver þessu fé, og treystir henni til að gera það á sem beztan hátt í hverju tilfelli.
Meiri hl. n. var sammála um að hækka þessa upphæð úr 1½ millj. í 4 millj., eins og lagt er til í brtt. hans á þskj. 734, þ. e. a. s., að ríkisstj. er heimilað að verja allt að 4 millj. til þess að bæta úr atvinnuörðugleikum á hinum ýmsu stöðum að undangenginni rannsókn. Hins vegar þótti ekki ástæða til að baka upp heimild til ábyrgðar á lánum, þar sem í 22. gr. fjárlaga, XXIII. lið, er heimilað ábyrgðarlán, allt að 6 millj. kr., til hraðfrystihúsa og fiskimjölsverksmiðja. Og ef sú heimild er að fullu notuð, þá er ekki ástæða til frekari heimildar, og ef jafnframt er notuð heimild í XIX. lið sömu gr. um ábyrgðarlán að upphæð 2 millj. til þess að fullgera hraðfrystihús, sem hefur verið ætlað stofnlán úr stofnlánadeild sjávarútvegsins.
Í sambandi við þetta er vert að geta þess, að þegar fjvn. gekk frá fjárlögunum, lagði hún til, að XIX. liðurinn yrði orðaður eins og nú er í XXIII. lið, og var aldrei til þess ætlazt, að til þessara framkvæmda yrði látið meira en 6 millj., en hér er nú í fjárl. heimild fyrir 8 millj. kr. ábyrgðarlánum, og sé það notað að fullu, virðist ekki vera ástæða til, að þessi upphæð sé hærri.
Meiri hl. n. lýsir því yfir, að hann ætlast til, að ríkisstj. noti að fullu til þessara framkvæmda upphæð þá, sem um getur í XIX. lið, en það byggist aftur á því, að ríkisstj. geti notað allar þessar 8 millj. og þurfi ekki frekari heimild.
Meiri hl. n. leggur því til, að frv. verði samþykkt með svo hljóðandi breytingum:
Í fyrsta lagi, að tillgr. orðist svo: „Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að verja allt að 4 millj. kr. til þess að bæta úr atvinnuörðugleikum í landinu á þann hátt, er hún telur heppilegast. Ríkisstjórnin getur sett þau skilyrði fyrir aðstoð þessari, um mótframlög og annað, sem hún telur nauðsynleg.“ — Enn fremur verði fyrirsögn frv. breytt til samræmis við þetta, og orðist hún svo: „Till. til þál. um ríkisaðstoð vegna atvinnuörðugleika.“
Meiri hl. n. leggur engan dóm á það, hvaða staðir skuli ganga fyrir, en vill beina þeirri ósk til viðkomandi ráðherra, að hann láti fara fram rannsókn á öllum þeim stöðum, sem tilgreina koma og rætt hefur verið um í sambandi við afgreiðslu þessa máls, og enn fremur, að öllum þessum stöðum verði veitt sú aðstoð, sem möguleg er á hverjum tíma og nauðsyn krefur. — Nefndin leggur til, að till. verði samþykkt eins og hún er á þskj. 734.