23.01.1952
Sameinað þing: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (3283)
173. mál, ríkisaðstoð vegna atvinnuörðugleika
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til að þakka fjvn. fyrir þá breyt., sem hún hefur gert á þessari till. Ég álít, að það sé mikilsvert, að þarna sé miðað við almenna þörf í landinu, en þetta ekki bundið við einn eða tvo ákveðna staði. Að vísu skal það játað, að þetta framlag mun að mestu fara til þeirra staða, sem um var að ræða í hinum upphaflegu till., en samt er þetta spor í rétta átt, og er það þess virði að þakka það.
Ég mun því leyfa mér að taka aftur brtt. okkar hv. 3. landsk. þm. á þskj. 659 um þetta efni. en þar var lagt til, að Alþ. heimilaði ríkisstj. að verja allt að 4 millj. kr. til þess að bæta úr atvinnuástandinu í kaupstöðum og kauptúnum. Ég hef áður orðað, að hún yrði borin upp í tvennu lagi, og tek ég hér með síðasta málsl. hennar til baka, en óska þess, að fyrri hlutinn verði borinn upp sem viðbótartill. við till. meiri hl. svo og till. um breyt. á fyrirsögninni.
Ég skal svo ekki fara að lengja þessar umr. mikið. En út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði, að ríkisstj. hefði ekki heimild nema fyrir 6 millj., þá álít ég, að þetta séu lög og hún hafi heimild til 8 millj., og þegar þessi lög hafa verið undirrituð af forseta Íslands, held ég, að þeim sé ekki hægt að breyta nema með nýjum lögum.
Um brtt. hv. þm. Borgf. vil ég segja það, að ég hef ekkert á móti því að heimila að veita lán, þar sem þess er þörf. Hins vegar er ég andvígur hinum hluta till., að þegar slík aðstoð er veitt til þess að koma upp fyrirtækjum, þá skuli hún því aðeins látin í té, að bæjar- eða sveitarfélag eða félag einstakra manna eigi og reki fyrirtækið. Ég get því ekki greitt till. hv. þm. Borgf. atkv., en mun greiða atkv. með till. meiri hl.
Í sambandi við till. á þskj. 659 vil ég beina þeirri spurningu til ríkisstj., hverra aðgerða er að vænta í sambandi við það efni, sem fyrsti málsl. till. fjallar um, hvort þess megi vænta, að skjótlega verði svo komið, að flestar eða allar fiskvinnslustöðvar geti tekið til starfa. Í öðru lagi: Hvað líður framkvæmdum innanhúss í iðnskólabyggingunni, sem hafa mikla þýðingu til þess að bæta úr atvinnuleysi iðnaðarmanna í bænum? Ég sé í blöðum, að n., sem sér um bygginguna. hefur tekið því fjarri að byrja framkvæmdir í þessum efnum nú. Í fjárl. er ætluð 1 millj. kr. í þessu skyni og ½ millj. í fjárhagsáætlun Reykjavíkur, svo að þarna ætti að vera til ráðstöfunar 1½ milljón, og það er óafsakanlegt með öllu, ef ekki er undinn bráður bugur að því að byrja framkvæmdir núna, meðan atvinnuleysið er mest hjá þessum mönnum. Ég vil vænta þess, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að veita upplýsingar um þetta, áður en till. eru bornar undir atkv., því að mér er kunnugt um, að hún hefur átt viðræður við atvinnumálanefnd fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík um þetta efni, og ég ætla, að eftir þær viðræður hafi n. haft von um, að úr mundi rætast.