23.01.1952
Sameinað þing: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í D-deild Alþingistíðinda. (3303)

165. mál, hótelhúsnæði

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Það er bara til að leita smávegis upplýsinga. — Fyrir nokkrum árum voru samþykkt lög á Alþ. um hótelbyggingu, þar sem ríkið skyldi leggja fram 5 millj. kr., einstaklingar 5 millj. og Reykjavíkurbær 5 millj. kr., og átti því hótelið að kosta 15 millj. kr. Ég vildi gjarnan fá upplýsingar um þetta mál frá þeirri nefnd, sem hafði með það að gera, hvað byggingunni líði og hvað hafi orðið um teikningar þær, sem amerískir menn gerðu, og um ráðstafanir til að finna hótelinu stað. Geti nefndin ekki gefið upplýsingar um þetta, ætti ríkisstj. alltaf að geta það, þar sem framkvæmd þessara laga snertir hana svo sem framkvæmd annarra laga.