27.11.1951
Efri deild: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

17. mál, varnarsamningur

Finnbogi R. Valdimarsson:

Herra forseti. Mig furðar mjög á því, að enginn af hæstv. ráðh. skuli vera hér viðstaddur til þess að mæla fyrir þessu máli hér í hv. d. Það verður að skiljast sem vottur þess, að hæstv. ríkisstj. beri ekki sérstaklega mikla virðingu fyrir þessari hv. d., því að annars mundi hún mæla fyrir þessu mikla máli sínu. — Ég hafði hugsað mér að gera þetta mál að verulegu umræðuefni, en hefði fyrst viljað heyra þau rök, sem hæstv. utanrrh. eða sá, sem nú gegnir störfum utanrrh., kynni að bera fram fyrir þessu frv. og þeim samningi, sem gert er ráð fyrir að staðfesta með þessu frv. Við þessa umr. hafði ég hugsað mér að gera sérstaklega að umræðuefni meðferð þessa máls og þær aðferðir, sem hafa verið notaðar til þess að koma á þessum samningi, sem hér liggur fyrir, og í öðru lagi þær afleiðingar þessara aðgerða, sem að mörgu leyti eru fyrirsjáanlegar.

Það er svo með þetta mál sem flest eða öll þýðingarmikil mál, sem lögð eru fyrir hv. Alþingi, að þegar þau koma til umræðu hér, eru þau að fullu ákveðin, jafnvel í smæstu atriðum, svo að umræður um þau hér eru næsta þýðingarlitlar.

Stjórnarfari okkar er svo komið, að öll mál, sem þýðingu hafa fyrir stjórnarstefnuna, eru fyrst rædd og ákvörðun tekin um þau í smáu og stóru á litlu þingi einhvers staðar hér í baksölum Alþingis, en þegar þau koma hér fram, þar sem enn heitir Alþingi, þá er hvert orð ákveðið og engum stafkrók má breyta.

Þetta mál er þó frábrugðið öðrum stórmálum, sem kunna að koma fyrir þetta þing, sem nú situr, að tvennu leyti: 1. Það er þeirra stærst og þýðingarmest. 2. Það eru nærri 7 mánuðir liðnir síðan það varð til lykta leitt á baktjaldaþingi.

Þegar endanlega var gengið frá þessum samningi, var Alþingi nýlega slitið. En samningsgerðin sjálf og grundvallaratriði þessa samnings voru löngu ráðin, áður en Alþingi var slitið, svo að hæglega hefði mátt leggja samninginn fyrir það áður en því lauk og fullnægja þannig ákvæðum stjórnarskrárinnar um samþykki Alþingis áður en samningnum var ætlað að taka gildi.

Auk ákvæða stjórnarskrárinnar var full ástæða til að leggja þennan samning fyrir Alþingi áður en hann var gerður, vegna þess að í honum felst fullkomin stefnubreyting frá þeim yfirlýsingum, sem gefnar voru, er Ísland var tekið í Atlantshafsbandalagið 1949 um, að ekki þyrfti að óttast, að farið yrði fram á, að hér yrðu herstöðvar á friðartímum. Þessar yfirlýsingar voru gefnar af forustumönnum þeirra þriggja flokka, sem þá voru í stjórn, en ég skal láta nægja að tilfæra þessa yfirlýsingu hæstv. utanrrh. Hann lýsti svo stefnu ríkisstj. síns flokks og Alþfl. og Framsfl., er hann og tveir ráðherrar þessara flokka voru nýkomnir heim úr för þeirra til Washington 1949:

„Við skýrðum rækilega sérstöðu okkar sem fámennrar og vopnlausrar þjóðar, sem hvorki gæti né vildi halda uppi her sjálf og mundi aldrei samþykkja, að erlendur her né herstöðvar yrði í landi okkar á friðartímum.

Dean Acheson utanríkisráðherra og starfsmenn hans skildu fyllilega þessa afstöðu okkar. Er því allur ótti um það, að fram á slíkt verði farið við okkur, ef við göngum í bandalagið, gersamlega ástæðulaus.“

Þegar hv. Alþingi staðfestir þennan samning, veitir honum lagagildi, eins og þetta frv. felur í sér, er það ekki aðeins að staðfesta samninginn sjálfan, heldur einnig að leggja blessun sína yfir þá aðferð, sem var höfð við gerð hans og alla meðferð málsins. Það er mín skoðun, að með því hafi Alþingi í raun og veru breytt stjórnskipun landsins, afsalað sér rétti, sem því er áskilinn í stjórnarskránni, og lagt það framvegis í hendur framkvæmdavaldsins að gera samninga við önnur ríki svo örlagaríka sem þennan, sem ekki má gera samkv. stjórnarskránni án samþykkis Alþingis fyrir fram eða framkvæma hliðstæðar stjórnarathafnir án þess að samþykki Alþingis komi til.

Í 21. gr. stjórnarskrárinnar frá 1944 er kveðið svo á, að þjóðhöfðinginn, forseti lýðveldisins, geri samninga við önnur ríki. Það gerist vitanlega með þeim hætti, að ábyrg ríkisstjórn gerir samningana, en forseti veitir þeim gildi með undirskrift viðkomandi ráðh., er þeir hafa verið bornir upp í ríkisráði, ef þeir teljast mikilvægir.

En þetta vald forseta og ríkisstj. til þess að gera samninga við önnur ríki er takmarkað í 21. gr. stjórnarskrárinnar, sem er svo hljóðandi:

„Forseti lýðveldisins gerir samninga við önnur ríki. Þó getur hann enga slíka samninga gert, ef þeir hafa í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef þeir horfa til breytinga á stjórnarlögum ríkisins, nema samþykki Alþingis komi til.“

Hefur nú þessi samningur í sér fólgið afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi?

Ég get ekki hugsað mér, að nokkur maður neiti því, að samningur, sem felur það í sér, að her erlends ríkis sé fengið landssvæði til afnota, feli í sér kvaðir á landi, landhelgi og lofthelgi. Hinn erlendi her, sem samkvæmt þessum samningi tók sér bólfestu á íslenzku landi, stendur ekki undir stjórn íslenzkra, heldur erlendra stjórnarvalda, þ.e. hernaðaryfirvalda. Hann fær ákveðin — eða það sem víðtækara er og verra: óákveðin svæði af Íslandi til umráða til sinna athafna, margvíslegra aðgerða, sem íslenzk stjórnarvöld hafa engin umráð yfir.

Í viðbæti þeim um réttarstöðu liðs Bandaríkjanna og eignir þeirra, sem fylgir þessu frv., segir, að hervöld Bandaríkjanna hafi „heimild til að fara með á Íslandi hvers konar lögsögu og eftirlit, sem lög Bandaríkjanna veita þeim, yfir þeim mönnum, sem lúta herlögum Bandaríkjanna.“ Enn fremur segir, að „hervöld Bandaríkjanna skuli ein fara með lögsögu yfir mönnum, sem lúta herlögum Bandaríkjanna, að því er varðar brot gegn öryggi Bandaríkjanna, en ekki lögum Íslands“. Enn segir, að hervöld Bandaríkjanna skuli hafa forrétt til lögsögu yfir mönnum í liði Bandaríkjanna í ákveðnum tilfellum. Og enn fremur segir, að hervöld Bandaríkjanna fari með lögregluvald og eftirlit á ákveðnum svæðum á Íslandi. Ég segi ákveðnum svæðum, en þó verður að bæta því við, að þessi svæði eru engan veginn ákveðin í samningnum sjálfum, þau geta e.t.v. náð til alls landsins, en gengið er út frá því, að það séu viss svæði á Íslandi, sem við vitum þó ekki hver eru, þar sem bandarísk herlög gilda og bandarísk yfirvöld fara með lögsögu og lögregluvald. Það er þetta, sem nefnt er þjóðréttarleg og ríkisréttarleg kvöð („servitut“), að ríki fái öðru ríki í hendur hluta af þeim yfirráðarétti, sem því ber yfir landi sínu, þannig að lög hins erlenda ríkis gilda þar að einhverju eða öllu leyti og það fer þar með lögsögu, en ekki það ríki, sem yfirráðarétturinn ber. Það er „kvöð á landi og landhelgi“, þegar yfirráðaréttur ríkis er þannig takmarkaður með samningi við annað ríki.

Eða hvað er átt við í 21. gr. stjórnarskrárinnar, þar sem talað er um kvaðir á landi og landhelgi, ef það á ekki við þetta, að erlent ríki fari með það vald, sem íslenzka ríkinu er annars ætlað í íslenzkum lögum? Ákvæði samningsins, að hann skuli í engu raska yfirráðarétti Íslendinga, eru ekki aðeins út í loftið, heldur átakanlegt háð og spott um íslenzkt fullveldi.

Á styrjaldarárunum — hernámsárunum — var algengt að heyra íslenzka stjórnmálamenn, marga þá sömu og nú sitja í ráðherrastólum og á þingbekkjum, tala um, að þá væri tvíbýli á Íslandi, tveir búendur, íslenzka þjóðin og hinn erlendi her, tveir húsbændur, íslenzk stjórnarvöld og hin erlenda herstjórn.

Á ríkisréttarlegri og þjóðréttarlegri stöðu hins erlenda hers nú og þá a.m.k. eftir 1941 er enginn grundvallarmunur. Hér er aftur tvibýli á Íslandi. Hins vegar er með þessum samningi á allan hátt verr tryggður réttur íslenzka ríkisins og íslenzkra þegna.

En þar sem það er óumdeilanlegt, að samningurinn hafi í sér fólgnar kvaðir á íslenzku landi og landhelgi, þá er það jafnvíst, að ekki var samkv. 21. gr. stjórnarskrárinnar heimilt að gera hann, nema samþykki Alþingis kæmi til. Með því var brotið gegn stjórnarskránni, og því hefur hann ekki ríkisréttarlegt gildi og fær ekki fyrr en Alþingi hefur samþykkt hann.

Það er talið, að 42 eða 43 þingmenn hafi verið kallaðir til funda hér í bænum, áður en samningurinn var undirritaður, — hann var gerður löngu fyrr, — og ríkisstj. hafi tryggt sér samþykki þeirra á honum síðar hér á hv. Alþingi. Vill nokkur þessara 42 eða 43 halda því fram, að þeir hafi verið eða séu Alþingi? Ég veit, að engum þeirra dettur slíkt í hug. Þeir vita vel, að þótt 52 þingmenn komi saman, eru þeir ekki Alþingi, nema til fundar þeirra sé boðað með þeim sérstaka hætti, að Alþingi hafi verið kvatt saman og að þingfundir séu löglega haldnir.

En hvers vegna var Alþingi ekki kallað saman samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar? Og hvers vegna var samningurinn ekki lagður fyrir utanrmn. samkv. lögum? Hvers vegna hefur öll meðferð utanríkismála, sem snert hafa viðskipti okkar við Bandaríkin síðan 1945, er herstöðvakröfur þeirra komu fram, verið svo afbrigðileg og gagnstæð öllum góðum venjum um meðferð utanríkismála? Hvers vegna hefur verið farið með öll þessi mál með pukri og leynd, á bak við utanrmn. og bak við Alþingi?

Þegar kröfur Bandaríkjanna um herstöðvar komu fram 5 mánuðum eftir ófriðarlok í Evrópu, einmitt þegar Bandaríkjunum bar skylda til að vera farin með her sinn frá Íslandi, var farið með þær eins og mannsmorð mánuðum saman. Alþingi var ekki gefinn neinn kostur á að ræða hið nýja viðhorf í sjálfstæðismálum þjóðarinnar, sem skapazt hafði vegna þessa sögulega atburðar.

Á aukaþinginu sumarið 1946, sem var kallað saman í skyndi til þess að samþykkja inntöku Íslands í Sameinuðu þjóðirnar, án þess að þingmenn hefðu haft nokkurt tóm til þess að kynna sér það mál, var felld tillaga um að krefjast brottfarar herliðs Bandaríkjanna, og önnur tillaga sama efnis fékkst ekki rædd.

Þegar Keflavíkursamningurinn var gerður haustið 1946, var hann þó lagður fyrir Alþingi áður en hann tók gildi. Stjórnarskráin var ekki brotin í það sinn. En vinnubrögðin voru þá þegar svipuð og nú að öðru leyti. Til þess að sýna, að gagnrýni á þeim kom þá ekki aðeins úr einni átt, þ.e.a.s. ekki aðeins frá Sósfl., skal ég leyfa mér að tilfæra hér lýsingu hæstv. núv. landbrh., Hermanns Jónassonar:

„En samningsgerðin um flugvöllinn er einnig vandasamt utanríkismál. Það vakti því eðlilega ekki litla furðu, þegar utanrrh. lagði samninginn um flugvallarmálið fyrir Alþingi og sagði, að um það tvennt væri að velja að samþykkja hann eins og hann lægi fyrir eða hafna honum. Hann upplýsti, að þessi samningsgerð hefði staðið yfir í a.m.k. tvo mánuði. Og Alþingi fær enn þá ekkert um það að vita, hverjir að samningnum hafa unnið af Íslendinga hálfu með ráðherrunum. En það er vitað mál, að þetta mál var aldrei rætt í utanrmn. og hún fékk ekkert um það að vita fyrr en eftir að það var lagt fyrir Alþingi. Í lögum um starfssvið utanrmn., sem einnig eru tekin upp í 16. gr. þingskapa Alþingis, er svo fyrir mælt: „Til utanrmn. skal vísað utanríkismálum. Utanrmn. starfar einnig milli þinga, og skal ráðuneytið ávallt bera undir hana utanríkismál, sem fram koma milli þinga.“ Þetta er alveg ótvírætt ákvæði, og það er sett til þess að þeir þingflokkar, sem hafa svo mikið traust og fylgi hjá þjóðinni að fá þar sæti fyrir þingfulltrúa sína í nefndinni, geti, án tillits til þess, hvort þeir eiga fulltrúa í ríkisstj. eða ekki, fylgzt með gangi utanríkismála. Með þessum hætti þykir bezt mega tryggja það, að sem mest eining verði um utanríkismálin.

Það hafa engin rök komið fram til varnar þessari óþingræðislegu vinnuaðferð í flugvallarmálinu, sem er hreint og beint lögbrot.“

Þetta voru ummæli hæstv. núv. landbrh., Hermanns Jónassonar, frá 1946.

Og núv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, var þá ekki mildari í dómum sínum um vinnubrögðin í utanríkismálum. Hann hafði þá mjög ákveðna skoðun um það, hvernig ætti að fara með utanríkismál og hvernig ætti ekki að fara með þau. Hann sagði m.a.:

„Það var komið vel á veg með að leggja utanrmn. niður. Hver samningurinn gerður af öðrum án þess að bera hann undir hana, t.d. flugvallarsamningurinn við Breta.“ Og enn fremur: „Hæstv. utanrrh. mætir hér með samning, sem hann hefur gert bak við ríkisstj., utanrmn. og Alþingi, en hann hefur fyrir fram bundið meiri hl. þingmanna til þess að samþ. óbreyttan. Og þetta hefur verið tilkynnt gagnaðila í samningunum, eftir því sem ráða má af málgagni hæstv. utanrrh., Morgunblaðinu.“

Þetta eru þungar ákærur og varla hægt að bera aðrar þyngri ákærur á einn utanrrh. fyrir meðferð utanríkismáls en þessa, að hann hafi gert allt, sem hann hafi aðhafzt, á bak við Alþingi og utanrmn., brotið lög og bundið meiri hl. þm. til þess að fylgja samningnum fyrir fram — og auk þess látið gagnaðilann vita um allt saman. — Á þetta við um þennan samning og vinnubrögðin við gerð hans? Það vantar aðeins það eitt, að stjórnarskráin væri brotin líka. Það var þó ekki gert 1946.

Þetta voru ummæli hæstv. ráðh. Framsfl., sem sæti eiga í núv. ríkisstj., um Keflavíkursamninginn 1946. — Á þinginu 1949 fór hæstv. landbrh., Hermann Jónasson, allþungum orðum um þá málsmeðferð, sem tillagan um þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu hefði fengið, og sagðist ekki vilja sætta sig við hana. Þessi ummæli hæstv. framsóknarráðh. sýna, að þeim hefur verið það ljóst, að meðferð utanríkismála í viðskiptum við Bandaríkin hefur af alveg sérstökum ástæðum verið með sérstökum og vítaverðum hætti.

En hvers vegna var þá þessi samningur gerður í vor með svo mikilli skyndingu? Var það vegna yfirvofandi stríðshættu? Ég held, að það verði erfitt að sýna fram á, að sérstök yfirvofandi stríðshætta hafi átt sér stað í maí í vor. Hver var þá ástæðan?

Sannleikurinn er sá, að þegar í fyrrahaust varð hæstv. ríkisstj. kunnugt um, að Bandaríkin höfðu nýjar kröfur fram að færa um hernaðarlegan viðbúnað hér á landi og nýja samninga um það efni. Ástæðan var ekki sérstök stríðshætta, heldur sú, að Bandaríkin sáu fram á, að þau þurftu nýja samninga til þess að tryggja sér hernaðarlega aðstöðu hér á landi. Samkvæmt ákvæðum Keflavíkursamningsins átti hann aðeins að gilda „á meðan á stjórn Bandaríkjanna hvílir sú skuldbinding að halda uppi herstjórn og eftirliti í Þýzkalandi“. En að óbreyttu hernámi Þýzkalands átti hann að gilda í 6 ár eins og kunnugt er. En þegar í fyrrasumar var það orðið fullráðið að fella hernám Þýzkalands formlega niður, en gefa Þýzkalandi leyfi til endurvigbúnaðar. Þetta hefur dregizt, en frá því í vor er þetta aðeins tímaspursmál. Það var sýnilegt í vor, að þetta þyrfti ef til vill að gerast á næstu víkum eða mánuðum. En um leið og formlegt hernám Þýzkalands — „skylda Bandaríkjanna til þess að halda uppi herstjórn og eftirliti í Þýzkalandi“ — félli niður, var Keflavíkursamningurinn óumdeilanlega úr gildi fallinn, og ef enginn samningur væri til í staðinn, sem tryggði Bandaríkjunum afnot af vellinum, var sýnilegt, að sú krafa yrði ómótstæðileg, að Íslendingar tækju sjálfir við öllum yfirráðum „á þessum stað Íslands“ eins og öðrum, eins og Hermann Jónasson orðaði það.

Þetta var hin „yfirvofandi hætta“ í maí í vor. Keflavíkursamningurinn var aldrei vinsæli. Margir framsóknarmenn voru á móti. Það hefði getað orðið erfitt að framlengja hann, þegar aðalforsenda hans var fallin, og hann sjálfur fallinn úr gildi samkvæmt skýlausum ákvæðum hans. Hvað átti að koma í staðinn? Bandaríkin höfðu samkvæmt frásögn Ólafs Thors látið herstöðvakröfuna niður falla í bili, þegar þeir fengu Keflavíkursamninginn. Áttu nú að koma hermenn á Keflavíkurflugvöll? Hæstv. utanrrh. hafði sagt 1946, að ef Bandaríkin framkvæmdu Keflavíkursamninginn á þann veg að setja herstöð á Keflavíkurflugvelli, þá „jafngilti það hernámi landsins af hálfu Bandaríkjanna“. Það kom fljótlega í ljós, að Bandaríkjunum nægði ekkert minna en þetta, ef Keflavíkursamningurinn átti að falla niður, þ.e. opinber herstöð á Keflavíkurflugvelli, sem „jafngilti hernámi landsins“.

En nú voru góð ráð dýr. Allir forustumenn stjórnarfiokkanna og Alþfl. höfðu háð kapphlaup um það 1945, 1946 og 1949, hver þeirra gæti með hjartnæmustum og afdráttarlausustum orðum lýst því og svarið það, að aldrei skyldi vera herstöð eða her á Íslandi á friðartímum. Utanrmn. hafði jafnvel lýst því, að við vildum ekki leyfa Sameinuðu þjóðunum bækistöð á stríðstímum í viðureign við árásaraðila, sbr. 43. gr. sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hvað átti nú að gera? Það varð fyrst að samþ., að nú væru stríðstímar, og kingja öllum svardögunum með þvílíku munnskólpi.

Í vor voru allir farnir að sjá fram á, að Kóreustríðið mundi lognast út af, engin úrslit nást. Æðstu forustumenn og hershöfðingjar fóru að kveða niður móðursýkina. En þá þurfti hér:í landi af þessum sérstöku ástæðum að herða á móðursýkisáróðrinum, telja mönnum trú um, að sérstök árás Rússa á þetta land væri yfirvofandi.

Með þeim samningi, sem fylgir þessu frv., hefur Ísland á friðartímum og að því er virðist ótilneytt gerzt hernaðarlega verndarríki Bandaríkja Norður-Ameríku í friði og ófriði um ófyrirsjáanlegan tíma. Ísland hefur afsalað sér í hendur erlends ríkis einum þætti mála sinna, hluta af fullveldisrétti sínum, þeim rétti, sem hverju fullvalda ríki ber, réttinum til þess að verja land sitt og þjóð. Um það verður ekki deilt, að fullveldi ríkis er stórkostlega skert og yfirráðaréttur þess yfir landi sínu mjög takmarkaður, ef það felur öðru ríki að fullu og öllu hervarnir sínar. Og veit ég engin dæmi þess, að slíkt ríki sé ekki sett í flokk hálfsjálfstæðra og litt fullvalda ríkja.

Í rúman aldarfjórðung höfðum við erlendan, valdalausan þjóðhöfðingja og fólum öðru ríki meðferð utanríkismála okkar í umboði okkar. Við réðum öllu um meðferð þeirra, en við undum því ekki, fannst með réttu, að við værum ekki fyllilega sjálfstæð þjóð. Nú höfum við falið sterkasta herveldi veraldarinnar að fara með annan þátt fullveldismála okkar, landvarnir Íslands. Við ráðum engu um meðferð þeirra. Finnst okkur nú, að við séum raunverulega og fullkomlega sjálfstæð þjóð?

Nú kunna menn að segja, að við höfum áður falið sama ríki hervarnir Íslands, þ.e. með herverndarsamningnum frá 1941. dá, en á því að taka við erlendum her um stundarsakir af illri nauðsyn og jafnvel nauðbeygðir í ófriði með samningsákvæðum um, að hann skuli á brott jafnskjótt og ófriðnum sé lokið, og hinu, að fela ríki hernaðarlega forsjá sína á friðartímum um ótakmarkaðan og því ófyrirsjáanlegan tíma, er hinn mesti munur. Og því má heldur ekki gleyma, að við vorum þá hernumin þjóð hvort eð var.

Þetta mál er sögulegt stórmál fyrir þá sök, að það er væntanlega lokaþátturinn í og vonandi endahnúturinn á ömurlega þróun í íslenzkum sjálfstæðismálum, sem hófst árið 1945, er Bandaríkin settu fram kröfur sínar um herstöðvar á Íslandi á friðartímum. Fram að þeim tíma hafði hver áfangi í sögu þjóðarinnar í 100 ár verið spor fram á við til aukins sjálfstæðis og fullveldis, unz við töldum okkur hafa náð fullu sjálfstæði, bæði formlega og raunverulega, árið 1944. Siðan 1945 hafa sporin, sem stigin hafa verið í utanríkismálum okkar, og þó einkum Keflavíkursamningurinn og þessi samningur takmarkað bæði formlegt og raunverulegt sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Við höfum formlegt sjálfstæði. Við tökum þátt í félagssamtökum og bandalögum þjóða og ríkja, bæði friðsamlegum og því miður einnig hernaðarlegum. Við erum þar viðurkenndir sem formlega fullgildur aðili. En við megum ekki láta það villa okkur sýn. Við þurfum að gera okkur það miklu betur ljóst en nú er, að margföld reynsla hefur sýnt það stærri og sterkari þjóðum en við erum, að það er hægt að halda fullkomlega formlegu sjálfstæði, en glata um leið með öllu raunverulegu sjálfstæði, þ.e. því að ráða sínum eigin málum sjálfir.

Enginn maður, sem hefur nokkurt yfirlit um viðskipti þjóða fyrr og síðar, mun halda því fram, að þjóð, sem býr við her annars ríkis í landi sínu, ráði málum sínum ein. — Þegar Roosevelt forseti staðfesti heit Bandaríkjastjórnar í herverndarsamningnum 1941 um, að allur her Bandaríkjanna skyldi hverfa héðan þegar að ófriðnum loknum, bætti hann við í orðsendingu til forsætisráðherra Íslands þessum orðum: „Svo að íslenzka þjóðin geti aftur ráðið öllum sínum málum.“ Honum var það ljóst, að íslenzka þjóðin réð ekki málum sínum ein, meðan erlendur her dvaldi í landinu, og var nógu víðsýnn til þess að viðurkenna það, þótt það væri amerískur her, sem ætti í hlut. En nú er það ekki Roosevelt forseti, sem ræður utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Hershöfðingjar hafa ráðið henni síðustu árin. Þeir réðu því, að hinar óskammfeilnu kröfur Bandaríkjanna um herstöðvar hér á landi voru bornar fram 1945, þegar herinn átti að fara héðan, og nú hafa þeir fengið sitt mál fram. Þeir hafa samkvæmt þessum samningi herstöðvar hér á landi um óákveðinn tíma. Þeir, sem af einlægni vöruðu við þeim háska, sem því yrði samfara, hafa beðið fullkominn ósigur. Deilum um það, hvort við ættum að leyfa Ameríkumönnum herstöðvar eða ekki, getur eðlilega verið lokið.

Af andstæðingum þess að leyfa herstöðvar hefur aðallega verið bent á ferns konar hættur, sem því væru samfara:

1. Siðferðilegar, aðallega fyrir æskulýðinn og þá einkum ungar konur.

2. Menningarlegar, að tungunni sé hætta búin.

3. Stjórnarfarslegar, að sjálfstæðið sé takmarkað.

4. Lífshættu fyrir þjóðina og hættu á tjóni á eignum landsmanna.

Ég tel, að eins og nú er komið sé mest undir okkur sjálfum komið, að við gerum okkur hreinskilnislega grein fyrir öllum þessum hættum og reynum að verjast þeim. Ég mundi telja þær í öfugri röð við það, sem ég áðan gerði. Á friðartímum er vitanlega aðeins um það þrennt að ræða, að siðferði, menningu og raunverulegu sjálfstæði sé hætta búin. Á stríðstímum er fjórða hættan, lífshættan, eignatjóns og eyðileggingar, aðalatriðið. En þá er allt undir því komið, til hvers á að nota stöðvarnar á stríðstímum.

Í greinargerð samningsins — yfirlýsingu ríkisstj. frá í vor — er sagt, að „óþarft sé að taka það fram, svo sjálfsagt sem það sé, að ráðstafanir þessar séu eingöngu varnarráðstafanir. Aðilar samningsins séu sammála um, að ætlunin sé ekki að koma upp mannvirkjum til árása á aðra, heldur eingöngu til varnar“.

Þegar Atlantshafssamningurinn var til umræðu á Alþingi, lögðu fulltrúar Framsfl. í utanrmn. (HermJ og PZ) fram nefndarálit, þar sem þeir lögðu áherzlu á, að allar yfirlýsingar og fyrirvarar, sem við vildum gera, ættu að vera í samningnum sjálfum. Ég verð nú að segja eins og þeir sögðu þá: Hvers vegna má það ekki vera í samningnum sjálfum, að mannvirki hér á landi megi ekki undir neinum kringumstæðum nota til árása á aðra, heldur eingöngu til varna, ef á okkur yrði ráðizt? Hvers vegna mætti það t.d. ekki vera í samningnum sjálfum, að frá íslenzkum flugvelli mætti aldrei undir neinum kringumstæðum fara til árása á lönd í Evrópu með atómvopnum?

Við vitum, að amerískir hershöfðingjar byggja allar sínar áætlanir um næsta stríð á því, að atómsprengjur verði fljótt og auðveldlega fluttar til landa í Evrópu, bæði Rússlands og Vestur-Evrópulanda, sem kynnu að verða á valdi þeirra. Við vitum, að í því sambandi hafa þeir hugsað sér að nota stöðvar t.d. í Bretlandi, þar sem þær væru næstliggjandi. Við vitum líka, að sterk hreyfing hefur myndazt gegn þessu í Bretlandi, að brezka þjóðin hefur gert sér grein fyrir því, að þetta má ekki verða, ef hún á að halda lífi. Við vitum, að hershöfðingjar telja stórt og strjálbýlt land heppilegt sem atómstöð. Við vitum, að ef stöðvar í Bretlandi yrðu ekki taldar nothæfar, telja amerískir hershöfðingjar stöðvar á Íslandi næstbeztar á N.-Atlantshafssvæðinu. Hvers vegna skyldum við nú ekki þegar í upphafi og í þessum samningi eða í sambandi við hann tryggja okkur gegn þeim möguleika, að þeir notuðu Ísland sem slíka árásarstöð. Þetta kemur ekki við því, hvort um svokallað árásarstríð er að ræða eða ekki. Það er heldur ekki nóg, þótt í samningnum standi, að Bandaríkin taki að sér „varnir“ Íslands. Við vitum, að allir hershöfðingjar telja sóknina beztu vörnina. Þeir gætu hæglega sagt: Ísland verður bezt varið og jafnvel því aðeins varið, að héðan séu gerðar flugárásir með atómsprengjum á flugvelli í Evrópu, þar sem fyrir eru flugvélar með atómsprengjur, sem nota má til þess að gera árásir hingað. Til þess að fyrirbyggja það, verðum við að verða fyrri til og gera árás á þá. — Þá er spurningin, hvort íslenzka þjóðin vill verða fyrri til, hvort hún vill, að Ísland verði notað til þess að geta orðið „fyrri til“.

Ég mun við síðari umræðu gera mitt til þess, að það komi skýrt fram, hvort hv. þdm. hafa gert sér grein fyrir þessu atriði þessa máls, sem ég tel, eins og nú er komið, aðalatriði þess.