26.10.1951
Sameinað þing: 8. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í D-deild Alþingistíðinda. (3346)

48. mál, námslánssjóður

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Á síðasta þingi flutti ég ásamt hv. 1. þm. Rang. (HelgJ) till. svipaða þessari um námslánasjóð. Till. var vísað til hv. allshn., sem mælti með samþykkt hennar. Till. kom þó hvorki til umr. aftur né atkvgr., og þess vegna fluttum við hv. 1. þm. Rang. þessa till. í upphafi þings. Okkur var ekki kunnugt, að nú um nokkurt skeið hefur málið verið á döfinni hjá stúdentaráði, sem hefur unnið að málinu í sumar og nú þegar lagt það fyrir hæstv. ríkisstj., sem tók því vel. Um þetta var okkur flm. ekki kunnugt, og má segja, að ástæðulítið sé að samþ. okkar till. Það er engu síður ástæða til að óska þess, að till. verði vísað til hv. allshn. og hún ræði svo málið við hæstv. ríkisstj. Ég vona, að þessi hugmynd komist fram og ríkisstj. vilji taka málið til flutnings fyrir stúdentaráð. Þess er þó að geta, að till. stúdentaráðs á einungis við stúdenta, sem nema við Háskóla Íslands, en okkar till. nær einnig til íslenzkra stúdenta, er nema erlendis, en það kann að vera of umfangsmikið.

Ég vona, að ríkisstj. vilji sýna þessu máli skilning, en meginatriði þessa máls, er hér um ræðir, er það, að reynt verði að hverfa frá því, að stúdentum verði veittir árlegir styrkir, en fé í þess stað veitt í lánasjóð. Athuganir stúdentaráðs hafa leitt í ljós, að ef þær 250 þús. kr., sem árlega eru veittar á fjárlögum, væru lagðar í sjóðinn, þarf hann að taka 2.6 millj. kr. lán til þess að geta lánað 500 þús. kr. árlega. Ef sjóðurinn þarf ekki að byrja að borga lánið fyrr en eftir 10 ár, er gert ráð fyrir því, að hann hafi lokið greiðslunni á 25. eða 26. ári frá stofnun, þannig að sjóðurinn verður algerlega sjálfstæður á ca. 30 árum, og hætta þá styrkveitingar ríkissjóðs af sjálfu sér. Þetta tel ég mjög æskilegt.

Í frv. því, sem stúdentaráð hefur látið semja og ég hef hér hjá mér, er farið fram á það, að ríkið veiti árlega ½ millj. kr. í sjóðinn, og verður sjóðurinn þá orðinn algerlega sjálfstæð stofnun eftir 18–19 ár og þarf ekki að taka nema ½ millj. kr. lán. Ef ríkið því veitir 500 þús. kr. í styrk til stúdenta í stað 250 þús., sem nú er veitt, geta þessar greiðslur fallið niður eftir tæp 20 ár í stað 30 ára annars.

Meginhugsun þessa frv. stúdentaráðs er mjög heilbrigð. Það er mikill áhugi fyrir þessu máli hjá stúdentum, og hefur Árni Björnsson stud. jur., form. stúdentaráðs, lagt í þetta geysimikla vinnu. Ég legg því til. að n. sú, sem fær mál þetta til afgreiðslu, ræði það við ríkisstj. og óski þess, að hún leggi sem fyrst frv. um þetta mál fyrir þingið, og mun þá ekki standa á okkur flm. að leggja því lið. Ég tel enn fremur æskilegt, að Alþ. láti vilja sinn um þetta mál í ljós við ríkisstj.