26.10.1951
Sameinað þing: 8. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í D-deild Alþingistíðinda. (3347)
48. mál, námslánssjóður
Gísli Jónsson :
Herra forseti. Út af þeim till., sem hér liggja fyrir, vil ég taka það fram, að stúdentar hafa verið hjá mér hér í morgun og afhent mér frv., er þeir hafa samið. Af því er ljóst, að ef frv. yrði samþ., yrði sjóðurinn sjálfstæð stofnun að 30 árum liðnum og ætti um 7 millj. kr. í varasjóði. — Fulltrúar þessir hafa sýnt, að það er þeim áhugamál, að frv. þeirra nái fram að ganga.
Mér þótti rétt að láta þetta koma fram við þessa umr. og er fús til þess að afhenda n. öll þau gögn, er ég hef í fórum mínum.