10.12.1951
Efri deild: 40. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (339)

17. mál, varnarsamningur

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Hv. frsm. minni hl. hefur gert grein fyrir sínum skoðunum. Segja má, að þar hafi komið fram ýmsar skarplegar rökfærslur, en gallinn er sá, að þær hvíla allar á röngum forsendum, og er því um rangar ályktanir að ræða. Hv. frsm. vildi halda því fram, að varnarsamningur sá, sem hér liggur fyrir til umræðu, skerti sjálfstæði landsins og væri líkastur þeim samningum, er stórveldin beittu gegn Súdan, Egyptalandi og fleiri ríkjum. Sannleikurinn er hins vegar sá, að slík dvöl varnarliðs eins og er hér er einnig í þeim ríkjum, sem engum dytti í hug að segja um, að misst hefðu sjálfstæði sitt. Það er kunnugt, að Bandaríkin hafa margar flugstöðvar í Bretlandi og miklu meira lið en þeir hafa hér á landi. Sama er að segja í Frakklandi, bæði í heimalandinu og eins í löndum Frakka í Norður-Afríku. Svipað má segja um Þýzkaland. Það má að vísu halda því fram, að lið það, sem þeir hafa þar nú, hafi þeir sem sigurvegarar, en vitað er, að Þjóðverjar sækjast eftir því, að þetta lið haldi áfram að vera þar, jafnvel eftir að sú breyting á stjórnskipun landsins, sem fyrirhuguð er, er komin á. Það má því ætla eftir ummælum hv. frsm. minni hl. (FRV), að þessi ríki hefðu misst sjálfstæði sitt, en engum hefur dottið í hug, að þessi dvöl varnarliðs hafi á neinn hátt skert sjálfstæði þessara ríkja, og sannleikurinn er samt sá, að það er að ýmsu leyti verr um hnútana búið hjá þessum ríkjum en okkur, — svo að ekki sé nú talað um löndin í Austur-Evrópu, þar sem Sovétríkin hafa alls staðar setulið, t.d. í Finnlandi, sem eftir kenningu hv. þm. hefði þá átt að hafa misst sjálfstæði sitt. Sama er að segja um Pólland, Rúmeníu, Búlgaríu og Ungverjaland. Í öllum þessum ríkjum er rússneskt setulið, og hefur ekki heyrzt, að þessi hv. þm. eða flokksbræður hans hafi haldið því fram, að þessi ríki hafi misst sjálfstæði sitt af þessum sökum.

Það er einkennilegt að heyra þennan hv. þm. tala nú um og skýra Atlantshafsbandalagið. Það er kunnugt, að hann var því andvígur og hann og skoðanabræður hans héldu því fram, að það ætti að vera á móti inngöngu Íslands í það, vegna þess að það legði skuldbindingar á þjóðina. Eftir því sem þessi hv. þm. segir nú, þá er á honum að heyra, að svo hafi ekki verið, en þótt sá samningur væri allt öðruvísi en þessi hv. þm. og aðrir andstæðingar samningsins vildu halda fram, þá hafði hann í sér fólgna skuldbindingu fyrir íslenzka ríkið, og hv. þm. komst ekki hjá því að minnast á, í hverju sú skuldbinding var fólgin, en hún var sú að láta bandalaginu í té á ófriðartímum svipaða aðstöðu og Bandaríki Norður-Ameríku höfðu hér á landi í síðustu styrjöld. Nú má deila um tvennt í þessu sambandi, en það er, hvenær eigi að fullnægja þessum skyldum, og í öðru lagi, hver eigi að ákveða, hvenær þeim verður fullnægt. Hv. þm. las upp mörg ummæli eftir mig frá 1949 um það, að það væri íslenzka ríkið, sem hefði þar ákvörðunarvald. Þetta er rétt. Það var íslenzka ríkisstj., sem réð því, að varnarliðið kom til landsins, og þótt aðrir hefðu þar tillögurétt, þá hafði íslenzka stjórnin þar úrslitavald, og varnarliðið hefði ekki komið hingað, ef stjórnin hefði ekki samþ. það.

Hins vegar er svo að skilja á hv. þm. og ýmsum öðrum, að framkvæmdavaldið, þ.e.a.s. ríkisstj. og forseti væru ekki réttir aðilar, samþykki Alþingis þyrfti einnig við samningsgerðina. Við skulum láta það vera svo og segja, að samþykki Alþingis hefði þurft. Eina afleiðing þess yrði þá sú, að samningurinn yrði ógildur, þangað til hann yrði endanlega samþykktur af Alþingi, en hann verður jafnskjótt gildur og hann hefur hlotið samþykki Alþingis, og ef nú svo fer sem allt bendir til, að Alþ. samþykki samninginn, þá er óþarfi að deila um stjórnskipulegan rétt hans. Það skiptir því ekki máli um gildi samningsins, er Alþingi hefur samþykkt hann í því frv.-formi, sem ríkisstj. hefur lagt hann hér fram. Ef ríkisstj. hefði, eins og hv. þm. vill halda fram, borið skylda til að leita samþykkis Alþ. áður en samningurinn var undirritaður, þá er ekki annað hægt að gera en koma fram ábyrgð á hendur stjórninni. En ríkisstj. leit öðrum augum á þessa stjórnskipulegu hlið. Það var álit hennar og þeirra sérfræðinga, sem hún hafði sér til aðstoðar við samningsgerðina, og það var einnig skoðun meginþorra þeirra alþingismanna, er til voru kvaddir, að ekki þyrfti að leita samþykkis Alþingis, þar eð varnarsamningurinn væri aðeins framkvæmd á samningnum um Atlantshafsbandalagið. Ef Atlantshafsbandalagssamningurinn hefði ekki verið til, hefði orðið að leggja samninginn, áður en hann yrði gildur, fyrir Alþingi, en vegna þess að Atlantshafsbandalagssáttmálinn var til, var það álit okkar, að hann væri nægileg heimild til samningsgerðarinnar, og þá verður að athuga, að vitanlega er ríkisstj. bæði skylt og heimilt að rannsaka, hvenær atvik séu slík, að skuldbindingar Atlantshafsbandalagsins nái til eða ekki, því að ástandið getur verið þannig, að það sé aðeins á hennar valdi að finna, hvenær landinu sé hætta búin. Atlantshafsbandalagið varð til vegna þess, að hætta var talin yfirvofandi, og forseti og ríkisstj. eru einu aðilarnir, sem geta með skjótum hætti metið, hvort slík hætta vofir yfir eða ekki. Það var því eingöngu á valdi ríkisstj. og forseta að ákveða, hvort slík skilyrði væru fyrir hendi, að Íslendingar tækju á sig þær kvaðir, sem fylgja þátttöku Íslands í Atlantshafsbandalaginu.

Nú er það eftirtektarvert, að hv. þm. byggir allan sinn málflutning á því, að engar skuldbindingar hvíla á okkur samkvæmt bandalagssáttmálanum fyrr en árás hafi verið gerð. Eftír þeim kenningum ætti stjórninni að vera óheimilt að aðhafast neitt, fyrr en árás hefði verið gerð á einhvern samningsaðilann og þá ef til vill á Ísland sjálft. Nú er það vitað, að vegna hins illa útlits í alþjóðamálum hafa öll ríki eflt varnir sínar nema Ísland, svo að segja mátti, að Ísland væri eina landið, sem var algerlega varnar- og vopnlaust. Það sýndi sig í Kóreu, að varnarleysið bauð innrásinni heim. Það er því greinilegt, að ef ekkert mátti gera fyrr en árás hefði verið gerð, var sama sem verið að bjóða til innrásar og leiða meiri hættu yfir Ísland en nokkurt annað land. Það var því ekki hægt að taka þessu á þennan hátt, og elns og ég hef áður sýnt fram á, þá varð það að vera á valdi forseta og ríkisstj. að meta það og slá því föstu — ekki hvort árás hefði verið gerð, heldur hvort árás væri svo yfirvofandi, að óhjákvæmilegt væri að gera eitthvað í varnarskyni. Mér hefur aldrei dulizt, að ríkisstj. hafði bæði rétt og skyldu til að fara svo að í þessu máli. Og það var ekki aðeins álit stj., heldur einnig sérfræðinga hennar og þeirra alþm., sem settir voru inn í málið.

Að öðru leyti má segja, að þó að gaman sé að ræða við hv. þm. um þessi mál, þar sem hann ræðir þau af skarpskyggni út frá sínu sjónarmiði, þá sé þessi deila um stjórnskipuleg viðhorf deila um keisarans skegg, því að með samþykki Alþ. nú fær samningurinn fullt gildi, þó að hv. þm. sanni út frá sínum sjónarmiðum, að samningurinn hafi áður verið ógildur. Hvernig sem þessu er velt, er því ekki hægt að deila um það, að samningurinn verður endanlega fullgildur, þegar Alþ. hefur samþ. hann. Með endanlegri afgreiðslu málsins á Alþ. ætti því þessi deila að vera úr sögunni.

En það, sem skiptir mestu máli, er það, hvort ástandið í heimsmálunum er þannig, að ástæða sé til þess að halda uppi vörnum. Hv. þm. vildi láta líta svo út, að það væri hreinn óþarfi, því að eftir að Mac Arthur hefði verið vikið frá störfum, væri hættan á heimsstyrjöld vegna Kóreustríðsins liðin hjá og við þar með úr allri hættu. Þarna kemur það fram, sem okkur ber á milli, en það er, hvort hættan af árás stafar frá Bandaríkjunum eða það er annar aðili, sem árásarhættan stafar frá. Það leiðir af því, sem hv. þm. sagði, að hann er þeirrar skoðunar, að hættan stafi frá Bandaríkjunum, en meginhluti Alþ. og meiri hluti þjóðarinnar hefur allt aðrar skoðanir á þessum málum, enda eru til sannanir fyrir því, hvaðan þessi hætta stafar.

Við skulum vona, að sættir komist á. Allir hafa ástæðu til að vona það, en enginn hefur þó meiri ástæðu til þess en Íslendingar. En það er því miður ekki hægt að halda því fram, að nú sé friðvænlegra í heiminum en var vorið 1949. Það er vitanlegt, að allar lýðræðisþjóðir tóku á sig stórauknar byrðar eftir að Kóreustyrjöldin hófst. Það getur verið, að hv. þm. viti betur, en ég efast um, að hann hafi svo nánar fregnir, að hann geti sagt, að þessi árás hafi verið stöðvuð. Hinar frjálsu lýðræðisþjóðir telja sig ekki hafa fengið sannanir fyrir því.

Við verðum því að slá því föstu, að mikil og óvænt hætta hafi komið í ljós, er árásin var gerð á Suður-Kóreu, en hún bar vott um kaldrifjaðri óskammfeilni en búizt hafði verið við.

Það dylst engum, að á slíkum hættutímum er óverjandi að láta land sitt vera óvarið, enda er það skoðun meiri hluta íslenzku þjóðarinnar.

Hv. þm. vitnaði til ummæla Eisenhowers hershöfðingja, er hann á að hafa viðhaft í ágúst, að Atlantshafsbandalagsríkin væru nú þegar búin að koma sér upp svo miklum herstyrk, að ekki væru líkur til þess, að á þau væri ráðizt. Þó að hv. þm. hafi lesið þetta í Times, er hér áreiðanlega um misskilning að ræða. Það er hugsanlegt, að Eisenhower hafi sagt, að Atlantshafsbandalagsríkin hefðu möguleika til að vígbúa sig og sækja í sig kraft, ef til styrjaldar kæmi, svo að óhugsandi væri, að Sovétríkin gætu unnið í langri styrjöld. En jafnvel þótt Eisenhower hefði sagt þetta, er hitt staðleysa, þó að hv. þm. hafi það eftir Times, því merkilega blaði. Hv. þm. var í mörg ár blaðamaður, og ég efast ekki um það, að hann hefur aldrei viljað, að hallað væri á sannleikann, en þó að honum hafi sjaldan skotizt í þeim efnum, er ekki nema von, að það geti hent Times.

Ég sé, að í Þjóðviljanum er það haft eftir Manchester Guardian — ég hef ekki séð það í Manchester Guardian — að Eisenhower hafi heimtað 20 þús. menn frá Íslandi til myndunar herdeildar. Ég get ekki sagt annað en það, að ef þetta er rétt, þá er það í fyrsta skipti, sem Eisenhower hefur komið fram með þá ósk. Það er sjaldgæft, að blöð hafi milligöngu í slíkum málum, og er auðséð, að þessi fregn hefur ekki komið ettir réttri leið, þó að Manchester Guardian sé bezta blað í heimi. Hér er málum blandað, og gildir í því efni hið sama um bæði blöðin, sem vitnað hefur verið til. Eitt er víst, að Eisenhower, er ég heyrði í Róm, hélt öðrum skoðunum fram um styrk beggja aðila en hv. þm. segir að komið hafi fram í Times.

Það kemur líka í ljós, að mörgum getur skotizt yfir. Hv. þm. er búinn að finna það út, að samningurinn hafi ekki verið gerður vegna þess, að varnarleysið hefði hættu í för með sér fyrir Ísland, heldur vegna þess, að Bandaríkjamenn hefðu séð, að Keflavíkursamningurinn mundi falla úr gildi við þá breyttu stjórn á Þýzkalandi, sem fyrirhuguð er. Þannig hefðu þm. verið ginntir til að gera þennan samning. Nú segir svo, með leyfi hæstv. forseta, í 12. gr. samningsins frá 1946:

„Samningur þessi skal gilda á meðan á stjórn Bandaríkjanna hvílir sú skuldbinding að halda uppi herstjórn og eftirliti í Þýzkalandi.“

Ég veit ekki, hve glöggar fregnir hv. þm. hefur af ráðagerðum Bandaríkjastjórnar gagnvart Þýzkalandi, en samkvæmt þeim gögnum, sem ég hef, hefur það ekki komið til mála, að Bandaríkjamenn flyttu burt frá Þýzkalandi, og meðan þeir halda uppi eftirliti þar, þá gat það ekki verið álitamál, að samningurinn héldi gildi sínu. Auk þess er það vist, að Bandaríkjamenn ætla sér ekki að semja um þessi mál við Þjóðverja, heldur byggja á Potsdamsamþykktinni, eins og gert hefur verið til þessa. Hitt er svo allt annað mál, að þeir ætla að hætta að hafa occupations-stjórn yfir þeirra civil-málum, eftir sem áður ætla þeir að halda áfram að hafa herlið í landinn. Allar bollaleggingar hv. þm. um þetta eru því úr lausu lofti gripnar.

Eins er um það, að Churchill ætli að banna Bandaríkjamönnum að hafa flugstöðvar í Bretlandi, eins og hv. þm. segir í nál. sínu. Eftir ummælum Churchills sjálfs að dæma er þetta rangt, því að hann bendir á, að Bretar láti þessi hlunnindi í té vegna þess, að það sé nauðsynlegt vegna heimsfriðar og öryggis.

En það er ekki nema von, að margt skolist til hjá hv. þm.

Út yfir tók þó, þegar hv. þm. fór að tala um brottfall samningsins og útskýra ákvæði samningsins milli Bretlands og Egyptalands, sem hann sagði að líktust ákvæðum þessa samnings. Ég held, að betra væri að gera sér grein fyrir ákvæðum samningsins milli Íslands og Bandaríkjanna. Íslendingar geta, frá því að þeir fyrst bera fram ósk um það, losnað við samninginn að 18 mánuðum liðnum. Ef Íslendingar telja, að ástandið í heimsmálunum hafi breytzt svo, að landið eigi að vera varnarlaust, geta þeir sagt þessum samningi upp með 18 mánaða uppsagnarfresti. Hv. þm. brá sér á skeið og sagði, að ef ráð Atlantshafsbandalagsins teldi það óráðlegt, að samningurinn félli úr gildi að 18 mánuðum liðnum, þá mundu Íslendingar telja það líka. Aðalatriðið er, að réttarlega séð er það öruggt, að Íslendingar geta sagt samningnum upp og losnað við hann eftir 18 mánuði, ef þeir óska þess. Þetta stendur skýlaust í greininni, en hv. þm. byggir á svo mörgum skökkum forsendum, að hann góða greind kemst ekki að. Hv. þm. fór að bera saman ýmis ákvæði þessa samnings og samningsins frá 1941. Sannleikurinn er sá, að í samningnum frá 1941 var ýmislegt tekið fram, sem kannske var óþarft, en þótti réttara, því að Ísland var þá hernumið land og hafði ekki endurheimt sitt gamla sjálfstæði. Þá þótti því ástæða til að taka ýmislegt fram, sem ekki þykir ástæða til að taka fram nú. En Ísland heldur öllum sínum rétti, engu hefur verið afsalað með þessum samningi. Ef borið er saman orðalag samningsins frá 1941 og orðalag þessa samnings, þá sést, að mjög miklar hömlur eru lagðar á Bandaríkin með þessum samningi og að réttur okkar er meiri en hann var samkvæmt samningnum 1941. Það hefur líka komið í ljós, að þó að margt hafi verið gagnrýnt, hafa einstök samningsatriði ekki verið gagnrýnd svo mjög og flestum finnst að vel hafi tekizt hvað þau varðar. Þess ber einnig að gæta varðandi þetta atriði, að 1941 var Ísland hernumið land, en nú erum við jafnréttháir og viljum ekki koma fram eins og betliaðili í samningum.

Varðandi brtt. hv. þm. er það að segja, að hann hefur reynt að setja upp áferðarfallegar till., en þær eru að því leyti óþarfar, að tekið er fram í samningnum sjálfum, að hann sé varnarsamningur, og réttur Íslands er þar tryggður, svo að ekki þarf frekari túlkun á því í lögum. Till. hv. þm. eiga að girða fyrir árás frá Íslandi, en þetta er varnarsamningur, eins og margtekið er fram, og vitanlega hvílir fylgi manna við samninginn á því, að hann er varnarsamningur. Hitt er ekki undarlegt, að þeir, sem telja þennan samning vera árásarsamning, geti ekki verið honum fylgjandi. Þar er um svo mikinn skoðanamun að ræða, að það bil verður ekki brúað.