08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í D-deild Alþingistíðinda. (3413)
79. mál, verðlagsuppbót á lífeyri starfsmanna ríkisins
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. flm. sagði, að það er óhæfilegt misræmi, sem gætir í greiðslu eftirlauna. Uppbætur eru greiddar á öll laun í landinu og yfirleitt einnig á eftirlaun samkvæmt þar að lútandi grein í fjárlögum. Flest af því fólki, sem við eftirlaun býr, á við þröngan fjárhag að stríða, og því er ómögulegt að mæta vaxandi dýrtíð, ef ekki eru greiddar uppbætur á laun þess.
Brtt. á þskj. 131 leggur í fyrsta lagi til, að ákvæði hennar nái ekki aðeins til lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, heldur einnig til allra lífeyrissjóða opinberra starfsmanna, og breytist þá fyrirsögn till. samkv. því. Ég veit, að þetta var tilætlunin hjá flm., þó að það lenti í undandrætti af vangá.
Það þarf ekki að hafa mörg orð um þessa till. Ég vil aðeins vekja athygli forseta á því, að tillgr. felur ríkisstj. að greiða þessar uppbætur. Það er engin leið önnur til þess en að hún greiði þetta sjálf, því að lífeyrissjóður getur þetta ekki og honum er það ekki skylt, hann meira að segja má það ekki lögum samkvæmt.
Það er því engin leið önnur en að ríkisstj. beri þetta. Ég vil vekja athygli forseta á þessu, því að þetta mun, ef samþykkt verður, leiða til smávegis útgjalda fyrir ríkissjóð, sem þó eru smávægileg, ef t. d. er litið á heildarupphæð fjárlaganna.
Það má gera ráð fyrir, að ef uppbæturnar verða greiddar frá því í maí 1950, þá muni heildarupphæðin nema 50–100 þús., miðað við vísitöluna 81/3, og fyrir árið 1951 má gera ráð fyrir 390 þús., miðað við vísitöluna 31; því mun vera um 490 þús. kr. að ræða, frá því að gengisbreytingin var gerð og til loka þessa árs.
Ég sé ekki betur en óhjákvæmilegt sé að gera þarna ráð fyrir fjárveitingu, ef þetta verður samþykkt, og sé það ríkisstj. nægileg heimild til að greiða þetta.