21.11.1951
Sameinað þing: 16. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í D-deild Alþingistíðinda. (3419)
82. mál, drykkjumannahjálp
Flm. (Jónas Árnason):
Herra forseti. Það hefur eflaust komið mörgum á óvart að frétta það, sem stendur í grg. till., að í Reykjavík er hópur manna, sem hvergi eiga höfði sínu að halla, manna, sem bókstaflega hafa orðið að þola útlegð hér í miðri höfuðborg menningarríkisins Íslands. Fullyrða jafnvel kunnugir, að þessi hópur fari stöðugt stækkandi, og verður þá mál þetta allt ekki síður athugandi, þegar þess er gætt, að nú eru liðin 2½ ár síðan samþ. voru lög um, að hið opinbera hjálpaði þessum mönnum og bjargaði þeim úr útlegðinni. Lög þessi voru samþykkt í maí 1949 og staðfest af forseta 25. maí 1949 og heita lög um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Segir svo í 1. gr. þessara laga, með leyfi hæstv. forseta:
„Geðveikrahælið á Kleppi hefur með höndum yfirumsjón með gæzlu drykkjusjúkra manna þeim til umönnunar og lækningar samkvæmt ákvæðum laga þessara.
Á kostnað ríkisins skal reisa og reka í sambandi við geðveikrahælið og í hæfilegri nálægð þess gæzluvistarhæli fyrir drykkjusjúka menn, er fyrst og fremst sé miðað við þarfir þeirra sjúklinga, sem ætla má, að eigi sér sæmilegar batahorfur.
Nú vilja sveitarfélög, eitt eða fleiri saman, reisa og reka á sinn kostnað gæzluvistarhæli fyrir drykkjusjúka menn, er fyrst og fremst sé miðað við þarfir þeirra sjúklinga, sem ætla má, að þarfnist vistar og umönnunar í slíku hæli í langan tíma, og fer þá um þær framkvæmdir og ríkissjóðsstyrk til þeirra eftir lögum nr. 30 19. júní 1933, um sjúkrahús o. fl., og síðari breytingum á þeim lögum.
Eftir athugun sjúklinganna á geðveikrahælinu á Kleppi, að svo miklu leyti sem því verður við komið, skal þeim ráðstafað í gæzluvist á þeim hælum, sem fyrir hendi eru, og skipt á hælin eftir því, hvers eðlis drykkjusýki þeirra er og hversu þeir eiga saman. Á sama hátt ráðstafar geðveikrahælið sjúklingum þessum þeim til viðréttingar í gæzluvist á völdum einkaheimilum, eftir því sem á hverjum tíma telst henta. Læknar geðveikrahælisins hafa á hendi lækniseftirlit með sjúklingum, sem ráðstafað hefur verið í gæzluvist samkvæmt ákvæðum þessarar greinar. Sérstakt eftirlit skal haft með aðbúnaði, atlæti, líðan og framferði sjúklinga, sem ráðstafað hefur verið í gæzluvist á einkaheimilum, og ræður geðveikrahælið til þess eftirlitsstarfs ármenn eða árkonur eftir þörfum.“
Þarna er sem sagt kveðið svo á um ofdrykkjumenn, — en stór hluti þeirra eru hinir heimilislausu útlagar hér í Reykjavík, — að þeim skuli hjálpað á vísindalegan hátt og með raunhæfum aðgerðum. Þeir skulu stundaðir af læknum, á meðan þeir dveljast á hælum, og eftir að þeir eru farnir þaðan, eiga þeir að njóta leiðbeiningar.
Um meðferð ölvaðra manna segir svo í lögum þessum, með leyfi hæstv. forseta: „Þá, sem teknir eru höndum sakir ölvunar og eigi er unnt að sleppa þegar úr haldi, skal lögreglan að fengnu læknisvottorði flytja í þar til gert sjúkrahús eða sjúkrahúsdeild, ef fyrir hendi er, en annars í venjulegt sjúkrahús, sem hefur tök á að veita viðtöku slíkum sjúklingum.
Nú er ekki völ á sjúkrahúsi eða rúmi í sjúkrahúsi í þessu skyni, og skal þá láta hlutaðeigandi sjúklinga sæta læknismeðferð, eftir því sem við verður komið.“
Í 2. gr. laganna segir svo:
„Ölvaða menn, sem sæta meðferð samkv. ákvæðum 1. gr., skal hafa í gæzlu, unz af þeim er runnið, og allt að tveimur sólarhringum til læknisrannsóknar, eftir því sem ástæða þykir til samkvæmt ákvæðum 3. greinar.“
3. gr. er svo hljóðandi:
„Læknir, sem stundar ölvaða menn samkvæmt ákvæðum 1. og 2. gr., skal sjá um, að hlutaðeigandi sjúklingum sé látin í té viðeigandi aðhlynning, en auk þess gerir hann sér far um að kynna sér líkamlegt og andlegt ásigkomulag þeirra, svo og allar aðstæður með tilliti til drykkjuhneigðar þeirra og drykkjuskapar. Komist hann að raun um, að um drykkjusýki eða yfirvofandi drykkjusýki sé að ræða, tilkynnir hann hlutaðeiganda sjálfum eða aðstandendum hans, eftir því sem við á, niðurstöður sínar og er til ráðuneytis um, hvernig við skuli bregðast.“
Þarna er gert ráð fyrir, að þegar menn eru handteknir vegna ölvunar, þá skuli þeir sæta sérstakri meðferð. Hinn ölvaði skal fluttur á sjúkrahús, ef unnt er, en að öðrum kosti skal læknir úrskurða, hvað við hann skuli gert. Ef ástæða þykir til, skal læknir einnig rannsaka, hvort drykkjuskapur viðkomanda sé kominn á það stig, að um ofdrykkju sé að ræða, og gerir læknir þá þær ráðstafanir, sem í l. segir. Með þessu er: stefnt að því, að hægt sé að hjálpa mönnunum strax.
Hv. alþm. er vafalaust kunnugt, að raunhæfar aðgerðir samkv. l. þessum hafa engar orðið. Það kom fram í ræðu hæstv. forsrh. hér í Sþ. fyrir um hálfum mánuði, og það kemur einnig fram í grg. okkar hv. 5. landsk. með þessu frv. Ölvuðum mönnum er fleygt í kjallarann án nokkurrar læknisathugunar, og drykkjusjúkir menn ráfa um götur höfuðstaðarins og eiga hvergi höfði sínu að halla, útlægir úr mannlegum félagsskap. Við umr., sem urðu um, þetta mál hér í Sþ. um daginn, skaut hv. þm. V-Húnv. fram þeirri fyrirspurn, hversu lengi ætti að láta drykkjusjúka menn gista í kjallaranum. Það var sannarlega ekki að ófyrirsynju, að hv. þm. V-Húnv. gerði þessa athugasemd. Það er blátt áfram ógeðslegt og óforsvaranlegt að láta þá dvelja þar eina nótt við þann aðbúnað, sem þar er, hvað þá margar.
Í þessu sambandi vil ég nefna hér eitt dæmi, sem sýnir vel, við hvaða kjör þessir útlagar hér í höfuðstaðnum eiga að búa. Eins og tekið er fram í grg. með þáltill. þessari, þá er alltaf verið að sekta þessa menn fyrir brot á áfengislögunum. Þessar sektir eru látnar safnast saman, þangað til þær hafa náð ákveðinni upphæð, en þá fá þeir sérstakan dóm fyrir þær allar í einu lagi og eru látnir afplána þær í tukthúsinu við Skólavörðustig. Nú er það föst venja þessara manna, að þegar líða tekur að jólum, sækjast þeir eftir því að fá að sitja inni um jólin. Jólin eru, ef svo má að orði komast, „sentimental“ tími, tilfinningar manna eru næmari þá en endranær. Og svo bág eru sem sagt kjör þessara manna, að heitasta ósk þeirra er, að þjóðfélagið leyfi þeim að njóta aðhlynningar tukthússins einmitt meðan stendur á þessari miklu hátíð, þessari frelsis- og fagnaðarhátíð hins kristna heims.
Ég hygg, að þegar hv. alþm. hafa athugað allar aðstæður, þá sjái þeir, að hér þarf strax að hefjast handa, enda hefur hv. Alþ. áður sýnt vilja sinn í þessu efni, þar sem eru lögin um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, er samþ. voru 17. maí 1949. Hæstv. ríkisstj. hefur láðst að framfylgja þessum l. og þvo af þjóðinni þann smánarblett, sem ríkt hefur hér í sambandi við meðferð drykkjusjúkra manna.
Ég legg til, að er fyrri umr. lýkur, verði málinu vísað til allshn.