09.01.1952
Sameinað þing: 30. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í D-deild Alþingistíðinda. (3480)

137. mál, landhelgisgæsla á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes

Flm. (Sigurður Ágústsson):

Herra forseti. Ég hef flutt hér till. til þál. á þskj. 302, um landhelgisgæzlu á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes. Samhljóða till. flutti ég á síðasta þingi, og var henni vísað til hv. fjvn., sem tók mjög vel á henni, og var hún samþ. samhljóða hér í Sþ., eins og hv. þm. er kunnugt.

Ég hafði vænzt þess, eftir samtali við Pálma Loftsson, sem hefur þessi mál með höndum, að í till. hans nú fyrir næsta ár væri gert ráð fyrir sams konar gæzlu við Breiðafjörð og hann lét framkvæma á vetrarvertíðinni 1951, sem sé, að hann leigði skip til að annast gæzluna, eins og fjvn. hafði lagt til í sínum till. Þetta hefur nú samt sem áður Pálmi Loftsson látið ógert, því miður, og hef ég þó bæði skriflega og munnlega lagt mjög hart að honum, að þessari ósk yrði sinnt. Bæði útgerðarmenn og sjómenn á útgerðarstöðum við Breiðafjörð hafa mörg undanfarin ár látið óskir sínar í ljós um gæzlu á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes, og það er fyrst á síðustu vetrarvertíð, að þar hefur farið fram sæmileg landhelgisgæzla. Öll undanfarin ár hefur þetta verið í mestu molum og bæði útvegsmenn og sjómenn eðlilega mjög óánægðir með þá ófullkomnu landhelgisgæzlu, sem þar hefur verið höfð með höndum, og hefur það aðeins verið endrum og eins, þegar mest hefur verið af skipum í landhelgi, að varðskip hafa verið send öðru hverju til Breiðafjarðar til þess að koma þeim burt úr landhelgi. Það segir sig sjálft, að svona má þetta ekki ganga áfram, og hefði ég vænzt þess, að ekki hefði þurft að samþ. slíka þáltill. ár eftir ár, heldur að hægt hefði verið að láta vilja þingsins koma fram í eitt skipti fyrir öll, eins og hann kom fram í fyrra, en það virðist ekki vera hægt, og þess vegna hef ég orðið að flytja þessa þáltill. á ný.

Eins og ég tek fram í þessari till. minni, þá leggja útvegsmenn og sjómenn á það áherzlu, að þessi gæzla verði höfð um vetrarvertíðina, sem er aðalvertíð ársins við Breiðafjörð. — Ég vænti þess, að að lokinni þessari umr. verði till. vísað til 2. umr. og hv. fjvn.