16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í D-deild Alþingistíðinda. (3484)
137. mál, landhelgisgæsla á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes
Gísli Jónsson:
Út af þessari fsp. hv. þm. Snæf. vil ég leyfa mér að lesa eftirfarandi bókun upp úr gerðabók fjvn., með leyfi hæstv. forseta:
„55. fundur fjvn. var haldinn á venjulegum stað fimmtudaginn 10. jan. 1952, kl. 9 f. h. — Allir nefndarmenn voru mættir nema Halldór Ásgrímsson. Þá mætti einnig á fundinum, samkvæmt beiðni n., Pálmi Loftsson, forstjóri Skipaútgerðar ríkisins.
Þetta gerðist:
1. Nefndin ræddi við Pálma Loftsson, forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, um fram komna till. til þál. á þskj. 302, 137. mál, um landhelgisgæzlu á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes, og þáltill. á þskj. 197, 105. mál, um eftirlitsbát fyrir Norðurlandi. Enn fremur ræddi n. við forstjórann um óskir þingmanna Árnesinga, en þeir voru mættir á fundi n., þar sem þeir fara fram á, að settur verði sérstakur bátur til landhelgisgæzlu yfir vetrarmánuðina á svæðinu frá Þjórsárósum að Reykjanesi.
Upplýsti forstjóri Skipaútgerðar ríkisins, að ef framkvæma ætti allar þessar óskir til hlítar, mundi þurfa 1.2 millj. kr. hærra framlag til landhelgisgæzlunnar en hann hefði lagt til við ríkisstj., þegar fjárlfrv. var samið, því að nauðsyn bæri til að leigja 100 smálesta bát allt árið til viðbótar þeim skipakosti, sem fyrir er.
Að gefnum þessum upplýsingum véku fyrr nefndir aðilar af fundi.
N. var sammála um að afgreiða ekki fyrr nefndar till. til 2. umr., en vill upplýsa eftirfarandi:
Við afgreiðslu fjárl. var framlag til landhelgisgæzlu hækkað úr 9259 þús. kr. í 9760 þús. kr., eða um 441 þús. kr., með tilliti til þess, að unnt væri að auka landhelgisgæzluna, eftirlit með veiðarfærum og björgunarstörf frá því, sem gert hafði verið ráð fyrir, þegar fjárl. voru samin, á þeim stöðum, sem þörfin er mest á hverjum tíma, meðal annars fyrir Norðurlandi og á svæðinu frá Látrabjargi og austur fyrir Grindavíkursjó.
Vill n. hér með beina því til ríkisstj., að landhelgisgæzlunni verði hagað þannig, að uppfylltar verði, eftir því sem unnt er, þær áskoranir, sem felast í fyrr nefndum till. til þál., og óskir þeirra þm., sem rætt hafa þessi mál við fjvn., eins og að framan greinir.“
Þessi fundargerð hefur verið send hæstv. ráðh., og vænti ég, að hann taki á móti þessari ósk n. og framkvæmi hana eins og getið er um í bókuninni.