16.01.1952
Sameinað þing: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í D-deild Alþingistíðinda. (3487)
137. mál, landhelgisgæsla á Breiðafirði og sunnan við Snæfellsnes
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Í sambandi við þetta mál vil ég leyfa mér að benda á það, að nú er nýbúið að samþ. fjárlög og ætla þar ákveðna fjárupphæð til landhelgisgæzlunnar og sú fjárupphæð var ákveðin eftir allýtarlegar umræður á milli fjvn. og ríkisstj. Þá var og kunnugt um þessar till., sem komið hafa fram um aukna landhelgisgæzlu, enda var niðurstaðan sú, að fjvn. og ríkisstj. töldu rétt að auka allverulega við landhelgisgæzluna. Þegar fjárlögin voru rædd, komu ekki fram neinar brtt. frá neinum hv. þm. um frekari aukningu á framlaginu til landhelgisgæzlunnar, og mér finnst því ekki koma til mála, að þingið fari nú, nokkrum dögum eftir að gengið hefur verið frá fjárlögunum, að bæta við einstaka liði á þeim. Það væri alveg ný starfsaðferð, og slík afgreiðsla væri ekkert annað en viðundur. Þess vegna tel ég, að ekki sé um neitt annað að gera en að reyna að fá sem mest út úr þeirri upphæð, sem nú er á fjárlögunum til þessara nota, og halda sig innan þess ramma, sem þar er ákveðinn. Það þýðir það að sjálfsögðu, að ekki verður unnt að verða við öllum þeim óskum, sem fram koma í þessum efnum, eins og hæstv. dómsmrh. benti réttilega á. Ég vil einnig benda á, að við höfum nú til landhelgisgæzlunnar sama flota og í fyrra að viðbættu þessu nýja varðskipi, og það hlýtur, eins og hv. þm. Barð. benti á, að leysa einhverja þörf, að hafa til viðbótar þetta vandaða skip. Það hlýtur því að vera hægt að koma nokkuð til móts við þessar óskir um aukna landhelgisgæzlu án þess að fara nú að veita aukna fjárhæð í því skyni.