08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í D-deild Alþingistíðinda. (3521)
46. mál, mæðiveikivarnir
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Það er eitt, sem ég get sagt í sambandi við þær fsp., sem hér hafa komið fram. Það var að minni tilhlutun, þegar ég fór með þessi mál áður, að gerð var sú ráðstöfun, sem ég vakti athygli á hér áðan, að eftir að unnið hafði verið á ýmsan hátt að útrýmingu veikinnar og unnið hafði verið að því að athuga, hvernig smitun hefði átt sér stað, var fenginn til þess erlendur sérfræðingur, — ég hygg mesti sérfræðingur, sem til var í þessu efni í öllu Bretaveldi, — og dvaldist hann hér, og skilaði það því miður engum árangri. Síðan hafa ýmsir innlendir menn fengizt við þetta. Það er löng saga, sem ég ætla ekki að rekja. En eftir að byrjað var á því að hefta útbreiðslu veikinnar, var bersýnilegt, að um bara eitt ráð var að ræða. Í stóli landbrh. var þá maður, sem ekki hafði mikinn kunnugleika á málinu, en bændum var sjálfum gefinn kostur á að velja 5 manna n. til þess að stjórna þessum málum. Í n. eru nokkrir úr hópi alþm., og það hefur aldrei síðan ég kom í starf landbrh. nú, svo að ég muni til, verið neitt látið ógert í þessu máli, sem þessir menn hafa imprað á. Og stundum, ef mér hefur þótt þurfa frekari aðgerða, þá hef ég rekið eftir því. Vitanlega ætti að vera og er sú mesta trygging, sem við getum fengið í þessu efni í landi, þar sem lifir þjóð, sem er ekki allt of fús til að hlýða lagaboðum, að mér finnst, — það er ekki hægt að fá betri tryggingu fyrir því, að þetta sé sæmilega framkvæmt, heldur en að valdir séu til þess menn, sem eiga um ráðstafanir gegn veikinni hagsmuna sinna að gæta meira en nokkrir aðrir. Vitanlega eru ýmis mistök, sem hafa átt sér stað. En það er ekki vafi á því, að í hverjum hópi annarra manna, sem átt hefðu að framkvæma þetta, hefðu mistökin orðið meiri. Það er ekki þægilegt að eiga við vinnubrögð í þessum málum, þar sem vírusinn, sem smituninni veldur, er alls ekki þekktur og ekki vitað, hvernig smitunin fer fram. Meðan svo er, er ekki þægilegt að fást við varnir og því síður þá við lækningu á veikinni.
En viðkomandi þeirri fyrirspurn til viðbótar frá hv. þm. Barð. get ég svarað því, að það hafa verið gerðar samþykktir um það í sauðfjársjúkdóman að endurbyggja báðar girðingarnar á Vestfjörðum, gera þær tvöfaldar báðar, þannig að það verður vitanlega framkvæmt áður en fé verður sleppt úr húsi í vor. Báðar girðingarnar verða endurbyggðar og tvöfaldaðar, bæði frá Steingrímsfirði í Berufjörð og eins frá Kollafirði í Ísafjörð.
Viðkomandi réttarrannsókn út af þessu máli er það að segja, að málið hefur verið á því stigi, eins og hv. þm. er kunnugt, að hver maðurinn eftir annan hefur farið þangað vestur til þess að rannsaka, með hverjum hætti veikin hefur komið upp á Hólmavík, en um það liggja ekki fyrir enn, svo að ég viti til, neinar sannanir, hvernig veikin hefur komið þarna upp að nýju. Það er talið líklegast, án þess að ég viti til þess, að fyrir því liggi ótvíræðar sannanir, að sá maður, sem átti það fé, sem veiktist, hafi hirt refi og gefið þeim lungu úr mæðiveiku fé, og að þannig sé hætta á því, að veikin hafi borizt til þeirra kinda, sem smituðust þarna á Hólmavík. Ef það hefði komið fram við þær tvær ferðir eða þrjár, sem sauðfjársjúkdóman. hefur látið fara til þess að rannsaka þetta mál, og ef vitneskja um það er í hennar höndum, að líkur séu fyrir því, að einhver brot hafi verið framin í sambandi við þetta mál, þá stendur sjálfsagt ekki á mér, ef mér berast skýrslur eða kærur um það atriði að láta fara fram réttarrannsókn í málinu. En ég tel það hins vegar ekki rétta leið, eins og fyrirkomulagi þessara mála er nú háttað á þessu stigi, að landbrh. taki það upp hjá sjálfum sér að láta fara fram rannsókn á þessu máli, meðan sauðfjársjúkdóman. lætur ekkert frá sér heyra þar um.