08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í D-deild Alþingistíðinda. (3527)

76. mál, raforkusjóður

Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera hér fram fsp. til hæstv. fjmrh. um það, hvenær ríkisstj. hyggst greiða raforkusjóði skuld frá 1946, að upphæð 1½ millj. kr. Ég spyr ekki, hvort ríkisstj. ætli að greiða þessa skuld, heldur hvenær hún hyggst greiða hana. Það er nú svo, að það er dálítið langt um liðið síðan greiða átti skuldina, og raforkumálaskrifstofan hefur reiknað með þessu fé nú á hverju ári. Og þegar spurt hefur verið um þetta hjá hæstv. ráðh., sem með þetta hafa farið, hafa þeir ekki neitað að greiða þetta og ekki heldur játað, heldur færzt svona undan, þannig að ekki hefur orðið úr greiðslu.

Þannig er þessu máli háttað, að eins og kunnugt er, þá var á árinu 1942, þegar raforkusjóður var stofnaður, samþ. að greiða til raforkusjóðs ½ millj. kr. En 1946, þegar raforkul. voru sett, var þetta hækkað í 2 millj. kr. Þess vegna var talið, að fyrir árið 1946 bæri að greiða 2 millj. kr. til sjóðsins, enda þótt ekki væri í fjárl. þess árs, sem samþ. voru í des. 1945, nema ½ millj. kr. Raforkul. voru samþ. 2. apríl 1946, og þau l. upphefja þá með samþykkt þeirra þennan lið á fjárl., sem áður gilti fyrir raforkusjóð, eða ½ millj. kr., og það er ekki deiluefni milli lögfræðinga. Hitt er álitamál, hvort ríkissjóði beri að greiða fullar 2 millj. kr. í raforkusjóð fyrir árið 1946, þar sem 1/4 hlutinn af árinu var liðinn, þegar raforkul. voru sett. Það getur því verið deiluatriði, hvort ríkissjóði ber að greiða til raforkusjóðs fyrir þann 1/4 hluta úr árinu 1946 og þá 2 millj. kr., og þar með fyrir allt árið, eða aðeins fyrir 9 mánuði ársins eftir að l. tóku gildi. Nú hafa aðeins verið greiddar 500 þús. kr. í sjóðinn fyrir það ár, eins og var á fjárl., og má því deila um, hvort nú er vangreidd 1 millj. eða 1½ millj. kr. Og það er náttúrlega ekki um annað að ræða en að fá lagaskýringar á því hjá mönnum, sem sérstaklega geta úr því skorið, hvort þetta er 1 millj. eða 1½ millj. Ýmsir lögfræðingar hafa talið, að það bæri að greiða 2 millj. kr. fyrir þetta ár, vegna þess að raforkusjóðsl. næmu úr gildi þann lið fjárl., sem var um raforkusjóð. Aðrir telja þetta álitamál. Hitt orkar ekki tvímælis, að 500 þús. kr. er of lítið. Ríkissjóður er nú í lagalegri skuld við raforkusjóð um 1 millj. kr. eða 1½ millj. kr., og það, sem spurt er nú um, er þetta: Hvenær hyggst ríkisstj. greiða þessa skuld? Ég álit, að þessi skuld sé svo gömul, að ekki sé ástæða til að draga þetta lengur, og ég vænti þess, að hæstv. ráðh. lýsi því nú hér yfir á fundinum, ekki aðeins, að hann ætli að greiða þetta, heldur hvenær hann hyggst láta þessa greiðslu fram fara. Það er kunnugt, og hæstv. fjmrh. veit það manna bezt, hvernig fjárreiðurnar eru nú í raforkusjóðnum. Fjármagn raforkusjóðs hefur verið allt of lítið undanfarið, og þær framkvæmdir, sem eru á döfinni nú og áttu að ljúkast fyrir næstu áramót, eru nú alveg að stöðvast vegna fjárskorts. Þess vegna væri mikils vert, ef hæstv. ráðh. treysti sér til að lýsa því yfir, að þessi skuld yrði greidd fyrir næstu áramót.