31.10.1951
Sameinað þing: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í D-deild Alþingistíðinda. (3532)
180. mál, olíu- og bensínverð
Fyrirspyrjandi (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. mun kunnugt, er verð á olíu og benzíni mismunandi á hinum ýmsu stöðum á landinu. Í Reykjavík, Hafnarfirði og Hvalfirði hefur verðið jafnan verið lægst, en farið hækkandi úti á landi. Þó að öll olíufélögin hafi keppzt um að staðsetja olíugeyma á stöðum í nánd við Reykjavík, þá er engin sanngirni í því, að verðið sé hærra úti á landi. Þetta er mjög óheppilegt fyrirkomulag. Rekstur allra þeirra fyrirtækja úti á landi, sem nota olíur og benzín til rekstrar, er því mun dýrari en sams konar fyrirtækja í Reykjavík og Hafnarfirði. Ég vil benda á, að víða í Evrópu er benzín selt við sama verði hvar sem er í sama landinu, hvort sem það er í hafnarborg eða 400–500 km inni í landi. — Olíuflutninga í kringum landið annast olíuflutningaskipin Þyrill og Skeljungur.
Það virðist þörf að athuga nánar verðlagningu hjá olíufélögunum. Verðgæzlustjóri upplýsti í bréfi, að hámarksverð á gasolíu 1950 væri 653 kr. til báta og til húsa 671 kr. smálestin. Þá upplýsir forstjóri Innkaupastofnunar ríkisins, að hann hafi gert samning við olíufélögin 3. apríl 1950 um lægra kaupverð á olíum, eða 120 kr. lægra tonnið. Hvernig má það vera, að hægt sé að setja svona miklu lægra verð á olíur en verðgæzlustjóri er búinn að samþ.? Það er tæplega hægt að gera ráð fyrir, að olíufélögin geri þennan samning án þess að hagnast á sölunni. Í ljósi þessara staðreynda er þörf að athuga þetta nánar.
Á síðasta þingi flutti ég þáltill. um jöfnunarverð á olíum og benzíni, og var hún samþ. hér á Alþ. Þar sem ekkert hefur heyrzt frá hæstv. ríkisstj. um þetta, leyfi ég mér að bera fram eftirfarandi fsp.: 1. Hefur ríkisstj. látið athuga verðlagningu á olíu og benzíni, sbr. þál., er samþ. var á Alþ. 28. febr. s. l.? Hvað líður framkvæmdum til að koma á jöfnunarverði á þessum vörutegundum, eins og sama þál. kvað á um? 3. Má vænta þess, að ríkisstj. leiði þetta mál til lykta fyrir næstkomandi áramót, með þeim árangri, að olíur og benzín verði seld á sama verði á öllum stöðum á landinu, þar sem olíuflutningaskip hafa aðstöðu til að geta losað á birgðageyma olíufélaga eða olíusamlaga?