31.10.1951
Sameinað þing: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í D-deild Alþingistíðinda. (3537)
180. mál, olíu- og bensínverð
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Ég er sammála síðasta ræðumanni, að ég tel svör hæstv. ráðh. ónóg. Það er alveg sérstakur skilningur hjá hæstv. ráðh., að hann hafi verið beðinn um upplýsingar um verð á olíum. Það var lagt fyrir ríkisstj. að koma á ákveðnu jöfnunarverði á olíum og benzíni, en hæstv. ráðh. telur það víst fyrir utan sinn verkahring. Nál. ber greinilega með sér, að meining meiri hl. þm. er sú, að hér sé komið á ákveðnu jöfnunarverði. Mér skilst, að ráðh. telji þetta fyrir utan sinn verkahring og vilji færa rök fyrir því, að eðlilegt sé, að annað verð sé á þessum vörum úti á landi en í Reykjavík, vegna þess að hingað sé flutt aðalmagnið af þessari vöru. Á s. l. Alþ. var það upplýst, að fyrir lægju tölur, sem sýndu, að meiri hluti olíunnar væri fluttur út á land. Það er vitanlega hagkvæmara að flytja olíu inn í stórum förmum, og er fragtin vitanlega lægri af olíunni, sem er skipað hér á land, en þeirri, sem er dreift héðan um landið, af því að henni er allri skipað á land hér. Það var tvímælalaust vilji Alþ., að komið verði á jöfnunarverði á olíur. — Hæstv. viðskmrh. gat ekki um eina tegund af olíu, svörtu, þykku olíuna, sem togaraflotinn notar, en það er miklu meiri verðmismunur á henni en á öðrum tegundum olíu.
Annars verð ég að segja það, að hafi hæstv. viðskmrh. ekki skilið þáltill. sem beina yfirlýsingu um vilja Alþ., þá sé óhjákvæmilegt fyrir þingið að gera þetta skýrara, og verði þá að leggja svo fyrir með l., að koma skuli jöfnunarverði á olíur.