23.11.1951
Neðri deild: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 175 í B-deild Alþingistíðinda. (354)
6. mál, togarakaup ríkisins
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Það er alllangt siðan þessi umr. um þetta mál hófst hér og var frestað að ósk minni, vegna þess að ríkisstj. hefur haft til meðferðar nokkur atriði í sambandi við þetta mál, sem lögin frá síðasta Alþingi um togarakaup ríkisins og brbl. fjalla um. Ég hef leyft mér að bera fram fyrir hönd ríkisstj. brtt. á þskj. 247 og vil leyfa mér að fara um hana nokkrum orðum.
Eins og hv. þm. vita, fékk ríkisstj. heimild á siðasta Alþ. til að ábyrgjast allt að 2 millj. kr. lán til kaupa á gömlu togurunum og til að setja olíukyndingu í þá gegn 1. veðrétti í þeim. Ábyrgðin skyldi þó ekki fara fram úr 75% af matsverði skipanna með olíukyndingu. Urðu allmiklar umr. um þetta mál þá, og vildu sumir hv. þm., að veitt yrði rýmri heimild. Ríkisstj. óskaði ekki eftir því, þar sem allt var á huldu um, hvort nokkurt vit væri að ráðast í þetta. Nú hefur stj. notað þessa heimild og raunar nokkru meira, þ.e.a.s. gerðar hafa verið tvær ákvarðanir í sambandi við þetta. Það er togari, sem Höfðakaupstaður keypti, sem að vísu ekki heyrir undir þessi lög hér, heldur nýbyggingarlög frá fyrri tíð um Höfðakaupstað, og var þessi ábyrgð samkv. þeim lögum.
Hinn togarinn, sem búið er að ganga frá samningum um, er fyrir Þingeyri, og er hann bráðum tilbúinn, en Skagastrandartogarinn er þegar kominn úr kví og tilbúinn til veiða. Auk þessa hefur stj. samþ., þó að ekki sé búið að ganga frá því, að Flateyri kaupi einn slíkan togara, og þessi rýmkun, sem hér er farið fram á í brtt. minni, byggist á því, að verja megi allt að 61/2 millj. kr. til þessa og að í stað 75% í lögunum, eins og þau nú eru, megi ábyrgjast 90% af kostnaðarverði togaranna, þ.e.a.s. kaupverði og kostnaði við breytinguna. Á þetta að vera nóg til að ganga þannig frá 4 togurum, þeim 3, sem ég hef nefnt, og auk þess vill stj. gjarnan hafa heimild fyrir einn til, ef hyggilegt þykir. Þetta er upphaflega byggt á því að reyna að láta þessi atvinnutæki koma að gagni á þeim stöðum, þar sem bátaútvegurinn hefur algerlega brugðizt á siðasta ári, og þetta hefði ekki verið gert á öðrum grundvelli. Ríkisstj. hefur látið sérfræðinga athuga hvert skip og alveg farið eftir þeirra umsögn. — Það hefur komið í ljós, að þessi 75% af kostnaðarverðinu er ekki nóg, því að eigendurnir eru allir févana, eins og að líkum lætur, þar sem þetta eru þorp, þar sem algert veiðileysi hefur verið undanfarin ár, og hefur því stj. talið, að ábyrgðin yrði að fara í 90%, til þess að skipin kæmust á veiðar og úr því fengist skorið, hvert gagn er að þessari tilraun. — Ég veit, að sumir eru á móti þessu, og ég ber ekki mikið skynbragð á þessi mál, en ég og öll ríkisstj. lítum svo á, að hér sé um að ræða tilraun, sem vert sé að gera, þar sem hér er annars vegar um að ræða skip, sem eru ónýt eins og þau eru, og hins vegar að þessi viðgerð á þeim fer fram innanlands, svo að ekki er um stórkostlega gjaldeyriseyðslu að ræða, nema hvað efni snertir. Þessir togarar, sem þegar eru útbúnir, munu kosta á aðra millj. kr., en hvorugur fara upp í 2 millj. þannig fullgerður.
Ég vænti þess, að ég hafi með þessum fáu orðum gert hv. þm. ljóst, hvers vegna ríkisstj. fer fram á þessa auknu heimild. Það ætti að fást fljótlega reynsla um, hvernig þetta gengur, og mundi það þá hafa áhrif á, hvort stj. vildi fara lengra í þessum efnum eða ekki. En sem sagt, stj. vill gjarnan hafa heimild fyrir einum togara til, og er þá gert ráð fyrir, að gengið verði frá samningum um Flateyrartogarann.