31.10.1951
Sameinað þing: 9. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 307 í D-deild Alþingistíðinda. (3541)

180. mál, olíu- og bensínverð

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Mér þykir fullmikill hiti kominn í hv. þm. Barð. í þessum umr. Þótt ég svari hér fsp. í þinginu, er ég alls ekki fyrir neinum rétti hjá honum.

Ég vil enn fremur benda honum og öðrum hv. þm. á, að ég á engan þátt í verzlun með olíurnar. Og þótt ég hafi upplýst, að það hafi verið gerð nokkur verðjöfnun á olíum (HV: Það sýnir, að hægt er að jafna olíuverðið til fulls.), þá hef ég ekki látið uppi neitt álit á því, hvort ég sé með eða móti jöfnunarverði. Ég hef aðeins verið að gefa upplýsingar um ástandið í þessum málum eins og það er, en stj. hefur enga yfirlýsingu gefið um afstöðu sína með eða móti jöfnunarverði á olíum.

Það mætti æra óstöðugan að svara öllum smáatriðum, sem hægt er að spyrja um svona mál. Ég vil aðeins benda á, að kostnaðurinn við að koma olíum út á land er geysimikill, og ef olíurnar væru seldar hér, minnkaði dreifingarkostnaður stórkostlega. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem ég hef fengið frá olíufélögunum, kemur fram, að heildarkostnaður er kr. 204,03, og er þá kominn inn í þá tölu allur dreifingarkostnaður, sem er 33.06 kr. hærri úti á landi. Þetta eru tölur, sem sýna, hvernig verðhlutfallið er úti á landi og hér í Reykjavík. Annars tel ég ekki, að málið verði miklu ljósara, þótt ég fari að þylja hér langan lista af tölum.