08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 313 í D-deild Alþingistíðinda. (3550)
181. mál, drykkjumannahæli
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Ég þarf raunar engu við að bæta. Hæstv. ráðh. telur varla sæmandi að gagnrýna fjarstaddan embættismann. Ég er honum ekki sammála um það, að hér sé ekki heimilt að gagnrýna störf embættismanna. Það voru aðeins tvö atriði, sem ég gagnrýndi, þ. e. að hælið á Úlfarsá skuli ekki vera tekið í notkun og að hann skyldi koma í veg fyrir, að Reykjavíkurbær fengi að reisa þar hæli. Mér finnst ástæða til að nefna landlækni, því að hæstv. ráðh. sagði hann vera ráðunaut í þessum málum.
Ég vil að lokum andmæla því, sem hæstv. ráðh. sagði, að það hefði ekki verið sýndur fullur vj1ji til samkomulags af hálfu stjórnar Reykjavíkurbæjar. Þetta eru ómakleg ummæli, því að fyrir mína forgöngu voru fengnir fróðir menn til að ná samkomulagi. Þegar samkomulagi var náð, átti ég munnlegar viðræður við hæstv. ráðh. og mæltist eindregið til þess við hann að láta ekki ágreining um staðarval tefja fyrir málinu. Lét hann ráðunauta sína hafa úrslitaatkvæði um málið. Þegar bæjarstjórnin var búin að fara fram á stofnun hælis og benda á stað, sem var hafnað, stæði næst honum að benda á annan stað. Við erum reiðubúnir að taka upp viðræður um nýjan stað. Þeir staðir, sem landlæknir hefur bent á, — sérstaklega einn staður, — hafa ekki fengið neinn byr hjá neinum þessara manna, vegna þess að hann er of nálægt Reykjavík. Flestir eru þeirrar skoðunar, að hælin eigi að vera í nokkurri fjarlægð frá Reykjavík, en ekki við bæjardyrnar eða innsiglinguna til Reykjavíkur.