08.11.1951
Sameinað þing: 13. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í D-deild Alþingistíðinda. (3557)

88. mál, upptökuheimili handa vangæfum börnum og unglingum

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég get látið mér nægja örfá orð, því að fyrirspurnin skýrir sig sjálf. Á síðasta Alþ. mun hafa verið samþ. með samhljóða atkv. þál. um heimild handa ríkisstj. til að reisa uppeldisheimili handa vangæfum börnum og unglingum, á þá leið, að Alþ. ályktaði að fela ríkisstj. að hefjast nú þegar handa um undirbúning slíkrar stofnunar samkv. ákveðinni grein laga nr. 29 1947 og taka upp í fjárlög nauðsynlega fjárhæð í þessu skyni. Þar sem liggur fyrir þál. frá síðasta þingi um þetta mál, er það ekki að ófyrirsynju, að þessi fyrirspurn er borin fram.