23.11.1951
Neðri deild: 32. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (357)

6. mál, togarakaup ríkisins

Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. Hafnf. sagði, að ríkisstj. hefði keypt togara í þessu skyni, vildi ég aðeins segja örfá orð.

Aðferðin er sú, að þegar sveitarfélag, þar sem atvinnuástandið er alvarlegt, hefur séð sig knúið til að reyna eitthvað til að bæta úr atvinnuleysinu, hefur ríkisstj. komið á móti því með því að aðstoða það til að geta eignazt skip og látið rannsaka hæfni skipanna. Hitt er svo rétt, að ábyrgðin nær líka til kaupverðsins, og er það sennilega það, sem hv. þm. Hafnf. á við. En stj. hefur ekki keypt neitt skip og ætlar ekki að gera það. Ég hef ekki enn fengið svo mikla sannfæringu um, að þessi gömlu skip, sem hafa verið skinnuð upp, séu fær um að byggja upp skipastólinn, að ég hafi trú á að setja slík tæki í stóran hóp af þeim. Ég held, að með því, sem nú hefur verið gert, ætti að fást reynsla á næstu vertíð, og verður þá tími til að athuga, hvort á að fara út í stórframkvæmdir. Ég vildi vona, ekki sízt vegna þeirra byggðarlaga, sem hafa reytt sinn síðasta eyri til að mynda félög um þessa útgerð, — og ég veit, að allir hv. þm. taka undir þá ósk, að þessi tilraun heppnaðist. En mér er sagt, að margir gömlu togaranna séu þannig, að ekkert vit sé að fara þannig með þá.

Vegna ummæla hv. þm. Borgf. þá er það rétt, að hann hafði mikla ástæðu til að ætla, að í þessari till. kæmi fram ósk um heimild til að ganga í ábyrgð fyrir kaupum á einum nýsköpunartogara handa Akranesi á svipuðum grundveili og gert var í brbl., þegar keyptur var togari handa Siglufirði. Akurnesingar óskuðu þess mjög eindregið í vor að fá einn af þessum 10 togurum. Þar er rekin ein blómlegasta og bezta útgerð hér á landi og ekki nema eðlilegt og gott, að þeir fengju slíkt tæki, en því miður var ekki hægt að sinna þessu, eins og síðar kom í ljós. Útgerðarfélag Akurnesinga var langt komið með að kaupa togara hér í Reykjavík, en þá kom í ljós, að ekki var talið hægt að selja þann togara út úr bænum. — Út af þessu vil ég svo taka það fram, að þótt stj. hafi þótt leitt að þurfa að neita þeim um einn af togurunum í vor og vilji koma á móti óskum þeirra, vill stj. þó ekki leggja til, að inn í lögin verði sett slík ábyrgðarheimild, því að það er náttúrlega ekkert glæsilegt fyrir ríkið að ætla að ganga í ábyrgð í þessum efnum fyrir miklu hærri upphæð en hvílir á skipunum, ef eigendaskipti verða. Ég vil taka það fram, að ég og ég held öll ríkisstjórnin viljum ekki blanda okkur inn í það, sem snertir rétt Reykjavíkurbæjar til þess að hindra það, að þeir togarar, sem hér eru, verði seldir úr bænum, og viljum ekki afla okkur heimildar í því skyni. Þær ákvarðanir verða að gerast á annan hátt. — Ég vil aðeins taka þetta fram út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði. En ég veit, að fullur vilji er fyrir því í ríkisstj. að koma á móti Akurnesingum hvað þetta snertir vegna þess, hve mikill myndarskapur er á útgerðinni þar og vel hefur gengið.