14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í D-deild Alþingistíðinda. (3576)
183. mál, dilkakjöt
Landbrh. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Viðkomandi fyrstu fyrirspurninni um birgðir af dilkakjöti er það að segja, að samkvæmt áætlun um það atriði, sem fer áreiðanlega mjög nærri lagi, — en nákvæmar skýrslur eru ekki komnar um það, — þá eru birgðirnar um 4 þús. tonn, en í fyrra 3940 tonn. Það verður því eitthvað um 60 tonnum meira, sem fellur til af kjöti nú en í fyrra. Það hafa verið seldar af þessu 600–700 smálestir, og birgðirnar eru nú 3300–3400 smálestir af dilkakjöti og geldfjárkjöti. Þegar búið er að flytja út af þessu kjöti það, sem áður er talað um, þá dragast þar frá 500–700 tonn. Til samanburðar má geta þess, að þegar maður ber saman kjötbirgðirnar nú, miðað við það, sem var farið eftir í fyrra, þá verða birgðirnar nú 2750 smálestir, en 2673 smálestir í fyrra. Nú var það svo á síðasta ári, að kjötbirgðirnar náðu nokkurn veginn saman með því að fara frekar sparlega með kjötíð, þegar kom fram á vorið og sumarið, en ekki hafði verið ástæða til þess að draga úr kjötneyzlunni fyrr.
Viðkomandi fyrirspurn nr. 2, hvert fob-verð sé á dilkakjöti, sem selt er til Bandaríkjanna, er því að svara, að það er 14,95 kr. fyrir hvert kg.
Og í þriðja lagi er spurt: Hvert verður nettóverð til framleiðenda á því kjöti, sem selt hefur verið til Bandaríkjanna? Það er gert ráð fyrir, að bændur fái 13 kr. fyrir hvert kg, og kemur það til af því, að geymslukostnaðurinn verður stórum minni.
Í fjórða lagi er spurt: Hvaða nettóverð er áætlað að framleiðendur fái fyrir dilkakjöt, sem selt er innanlands samkv. verðlagsákvörðun framleiðsluráðs landbúnaðarins á þessu hausti? Það er gert ráð fyrir, eftir því sem reiknað var út við verðlagningu, að það verði um 11 kr. að meðaltali af dilkakjöti og geldfjárkjöti.
Viðkomandi fimmtu fyrirspurninni: Hvað er greitt fyrir líflömb vegna fjárskipta á þessu hausti, miðað við kíló í lifandi þunga? — er því til að svara, að það verð er ákveðið þannig, að á hverju hausti er gert áætlunarverð á þessu, jafnhliða því sem kjötið er verðlagt, og áætlunin er nú 6 kr. í lifandi þunga. En eftir að greinilega kemur í ljós, hvað verðið verður fyrir kjötið á því ári, sem lömbin eru seld, eru greiddar uppbætur í samræmi við það, og verður það gert nú eins og endranær.