14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í D-deild Alþingistíðinda. (3580)

183. mál, dilkakjöt

Landbrh. (Hermann Jónasson):

Því er þannig háttað með þennan útflutning, að það er ekki ríkisstj., sem flytur þetta út, það er venjuleg verzlun með afurðir þær, sem framleiddar eru í þessu landi. En þó að þetta sé ekki sérstaklega verk ríkisstj., annað en að leyfa útflutning á vörunni, þá fór ég fram á, að þessar upplýsingar væru gefnar.

Um það atriði, hvað mikið sé 1. flokks og hvað mikið 2. flokks kjöt, er það að segja, að þær upplýsingar get ég ekki gefið á þessu stigi. Um hitt atriðið, að þetta sé úrval, er það að segja, að það er upplýst, að þetta er 1. og 2. flokkur, og þegar um 1. flokk er að ræða, þá er ekki um sérstakt úrval að ræða innan þess flokks. Það er eðlilega kvartað undan því, án þess að ástæða sé til þess að fara í umr. um það mál, að neytendurnir hafi ekki aðstöðu til þess að fylgjast með því, hvenær seldur er 1. flokkur af kjöti í búðunum og hvenær 2. flokkur, og um það hafa farið fram athuganir, sem ekki er ástæða til að draga inn í þessar umr. En það er alveg sérstök aðferð við að stimpla kjötið, þannig að stimpillinn sést á hverjum einasta bita, þó að kjötið sé tekið í sundur, en það er vitanlega atriði, sem nú er til athugunar. En af hendi framleiðenda er kjötið selt alltaf sem 1. flokks eða 2. flokks kjöt, þannig að af hendi framleiðenda er hér ekki neitt óhreint mjöl í pokanum. Þeir selja 1. flokks kjöt til neytenda þannig flokkað eins og þeir selja 1. flokks kjöt til Bandaríkjanna, — þar er um alveg sams konar úrval að ræða, — og 2. flokkur er stimplaður sem 2. flokks kjöt og selt sem 2. flokkur. Það er því ekki verið að velja neitt sérstaklega úr, eins og látið er skína í hér. Og það er leitt, að það skuli koma fram, því að það er langt frá því, að það sé verið að velja aðra tegund af kjöti handa landsmönnum en til þess að flytja út. Það er látið í það skína, að það sé valið úr kjötinu til að selja til útlanda og síðan sé afgangurinn seldur hér, en það er alls ekki tilfellið, og þau ummæli eru óverðskulduð og leitt, að þau skuli koma fram.

Viðkomandi verðlagningu framleiðsluráðs, hvernig það reiknar út kjötverðið með tilliti til þess verðs, sem við fáum fyrir kjötið, sem flutt er til Bandaríkjanna, þá hef ég ekki leitað mér upplýsinga um það, en að sjálfsögðu getur hv. þm. fengið það upplýst með því að bíða eftir svörum við fyrirspurn eða með því að hringja til framleiðsluráðs. Það er að vísu ekkert óeðlilegt, þó að menn vilji fylgjast með þessum atriðum, en satt að segja er ég dálítið undrandi yfir þeim úlfaþyt, sem er gerður út af þessu kjöti. Það er vitað, að ef okkur tekst að yfirstíga að verulegu leyti þá sjúkdóma, sem nú eru í sauðfjárstofninum, þá eykst kjötframleiðslan svo stórkostlega á næstu árum, að það er svo langt frá því, að það geti komið til mála, að alls kjötsins verði neytt innanlands; þess vegna er hrein vá fyrir dyrum fyrir þessa framleiðslu, ef við getum ekki selt kjötið út. Einn af þeim fáu atvinnuvegum, sem bera sig mjög vel, er sauðfjárbúskapurinn með því verði, sem fæst á frjálsum markaði fyrir vöruna. Og þegar ekki er þrengt meira að þjóðinni en í fyrra og þegar þess er gætt, að við borðum 40% meira af kjöti undanfarin ár en allar nálægar þjóðir, þá er ekki til mikils mælzt að fá að halda þessum markaði, því að þetta er ekki stórt magn, og einu óþægindin eru þessi útflutningur. Ég hygg, að flestar aðrar þjóðir leggi meira að sér um útflutning á þeim vörum, sem eru góðar markaðsvörur til útflutnings. Það þarf ekki annað en að líta til nálægra þjóða, þar sem mönnum er neitað um vöruna innanlands til þess að geta flutt hana út og dregið saman, þannig að varan er skömmtuð. Það mætti minna á, að jafnaðarmenn í Danmörku eru ekki að hika við að setja á oddinn að skammta smjör til þess að geta flutt það út, — það var eitt af þeim stóru ágreiningsefnum, sem urðu í seinustu stjórn jafnaðarmanna í Danmörku. Ég get ekki álitið, að þjóðin hafi mjög mikið fundið til kjötskorts í fyrra, og birgðirnar eru meiri nú en í fyrra, og þetta er sá atvinnuvegur, sem ber sig verulega vel.

Ég ætla ekki að orðlengja um þetta frekar, en það sýnist, að það megi deila á ríkisstj. fyrir flest, ef þetta á að vera eitt helzta ádeiluefnið.